Thursday, May 29, 2008

Jarðskjalfti???

Allt að gerast á Íslandinu... jarðskjálftar, við komumst upp út undanúrslitunum í Júró, efnahagsástandið í vaskinum og sumarið að koma...

Ég var í bónus á meðan jarðskjálftin reið yfir svæðið og ég verð að segja að ég er svolítið svekkt yfir því að hafa misst af þessu, hillurnar í bónus eru greiiinilega niðurnelgdar af fagmönnum því að ekkert haggaðist þar :) Ég man enn hvar ég stóð árið 2000 þann 17. júní þegar hinn stóri gaur reið yfir og ég man hvernig adrenalínið skaust í gegnum kroppinn og ég hefði viljað upplifa það aftur... og þá hefði ég ekki komið svona gjöööörsamlega af fjöllum þegar bekkjarbróðir minn (í CVI í DK (fyrir þá sem kunna að lesa skammstafanir ;) ) ) (vá margir svigar að lokast í einu) í Hollandi hringdi í mig og spurði hvort það væri allt í lagi með mig. Ég skildi ekkert og HANN sagði MÉR fréttirnar frá MÍNU landi!!! Frekar halló sko.... (halló með hörðum LL-UM ekki linum) Hann fékk fréttirnar um risa jarðskjálfta á íslandi bara 50 km frá Reykjavík og hann hringdi beinnt í mig því að hann bjóst við að ég væri UPP á rústunum á húsinu mínu grátandi og ætlaði að hugga stelpuna... nei nei... annað kom nú í ljós og stelpan VISSI bara ekkert af þessu :S

Allavegana... mér þótti þetta skemmtileg saga og pæliði í því að mér þótti hún það skemmtileg að ég ákvað að blogga um hana, hef ekki bloggað í laaangan tíma haha...

Hvar voru þið þegar þið funduð fyrir gaurnum?

Þau voru nú aldeilis flott í júróvísjon... ég var stolt af þeim :)

Jæja... síjú next tæm....
Þið eruð alveg ágæt...

Ykkar Ágú-págú-fílírágú...

Tuesday, April 22, 2008

Endilega lesið niður og njotið minninga..

Hér eru 45 atriði sem ég fékk sent á facebook og ákvað að þýða þau, því að þau glöddu mig svo mikið... Þetta minnir mann á að það þarf ekkert alltaf svo stór og mikil atriði til að verða glaður með hvern dag... Njótið vel!!! Sum atriðanna færðu mér sérstakan yl í hjartað og það er hellingur af þessu bara ný búið að gerast... það var gaman að rifja upp við öll atriðin hvenær þetta og þetta gerðist síðast fyrir mig...

1. Verða ástfangin.
2. Hlægja svo rooosalega að þú meiðir þig í andlitinu.
3. Heit og yndisleg sturta.
4. Engin röð í búðinni.
5. Sérstakt augnatillit.
6. Fá skemmtilegt mail.
7. Fara í bíl/mótorhjólatúr á fallegum stað.
8. Heyra uppáhaldslagið sitt í útvarpinu.
9. Liggja í rúminu og heyra rigninguna dynja á þakinu.
10. Heit og hrein handklæði beinnt út úr þurrkaranum.
11. Súkkulaði shake (jarðabera eða vanillu).
12. Freyðibað.
13. Fliss.
14. Góðar samræður.
15. Ströndin
16. Finna 5000 kall í vasanum á jakkanum sem maður hefur ekki farið í síðan seinasta sumar.
17. Hlæja að sjáfum sér.
18. Horfa í augun á einhverjum og vita að sá hinn sami elskar mann.
19. Símtal sem varir lengi við einhvern sérstakan
20. Hlaupa í gegnum úðara.
21. Hlæja af engri ástæðu.
22. Heyra einhvern segja við mann að maður sér fallegur.
23. Hlæja af einkahúmor með vinum
25. Óvart heyra einhvern segja eitthvað fallegt um mann.
26. Vakna og líta á klukkuna og fatta að maður á enn nokkra tíma eftir áður en maður þarf að vakna.
27. Fyrsti kossinn (annað hvort fyrsti ever eða með nýrri manneskju)
28. Eignast nýja vini eða vera með þeim gömlu.
29. Leika við nýjan kettling eða hvolp.
30. Þegar einhver fiktar í hárinu á manni.
31. Góðir draumar.
32. Heitt súkkulaði.
33. Ferðast um Ísland með vinum.
34. Róla í rólu.
35. Mynda augnkontakt við ókunnugan.
36. Baka smákökur.
37. Fá eitthvað heimagert frá vini.
38. Halda í höndina á einhverjum sem manni þykir vænt um.
39. Rekast á gamlan vin og átt sig á því að sumt (gott eða slæmt) breytist aldrei
40. Sjá svipinn á einhverjum sem fær gjöf frá þér sem þú veist að þeim mun líka vel.
41. Horfa á sólarupprás.
42. fara fram úr á morgnanna og vera þakklátur fyrir annan fallegan dag.
43. Vita að einhver saknar þín.
44. Fá faðmalag frá einhverjum sem þér þykir mjög vænt um.
45. Vita að þú hafir gert það rétta, sama hvað aðrir segja um þig.

Vonandi hefur þú notið þess að lesa í gegnum þennan lista. Ég veit að ég gerði það og færði mér meira vor í hjarta.

Monday, April 14, 2008

Sigurhelgi...

Halló halló heillandi lesandi :) (önnur augabrún upp)

Mikið rosalega átti ég góða helgi, er enn með bros á vör...

Föstudagur:
Vaknaði snemma og sótti Sigga Þór og Ólöfu og við lögðum af stað til Akureyrar í sigurförina :) Við áttum frábæran akstur. Stoppuðum og fengum okkur að borða, hlustuðum á frábæra tónlist, skiptumst á skemmtilegum sögum og bara nutum þess í botn að vera að ferðast í faaallegu veðri. Ég og Siggi Þór skiptumst á að keyra. Komum á Akureyri og Siggi Þór fór á æfingu fyrir keppnina... Svo skelltum við okkur í sund og svo á Greifan... Kvöldið endaði með hriiikalega fyndnu leikriti þar sem frænka mín Kristín Þóra fór gjöööörsamlega á kostum... ó jiii við öskruðum af hlátri öll þrjú... roosalega var þetta skemmtilegt!

Laugardagur:
Þurftum að mæta á æfingu snemma (segi við... en auðvitað var það bara hann... við vorum jú mikilvægar líka því að við vorum "standa við bakið hópurinn" og hvöttum hann til dáða... ég var svoooo viss um að hann mynd vinna þetta) og vorum á æfingu og rennsli alveg til 4 um daginn.. þá fórum við heim og lögðum okkur örlítið. Fengum okkur að borða og svo bara keppnin... Keppnin var náttlega sérlega skemmtileg og brá mér mikið við það að gítarinn hans var ekki inni... en ég var svoooo stolt af honum að halda bara ótrauður áfram og spila bara með. Sýndi mjög mikið hvað hann er pro og öruggur með það sem hann er að gera. Hann á framtíðina fyrir sér gaurinn! Ég hef miiikla trú á honum... Svo fór þetta eins og maður hafði sagt allan tíman og drengurinn vann. Hann bjóst ekki við þessu, svo að þetta kom honum skemmtilega á óvart. Hann er með fæturnar á jörðinni þó svo að á einni viku hafi hann klárað vel heppnað leikrit (sem aðalleikari), komist inn í leiklistaskólan (sem er nú ekki hlaupið að) og unnið söngkeppni framhaldsskólana!!! Ég er nú hrædd um að ég væri búin að fljúga örlítið upp frá jörðinni en hann stendur stöðugur... vá mér finnst það magnað. Eftir keppnina fórum við bara upp á hótelherbergi að tjilla... mjög notalegt... Svo fór ég heim til mín (ég gisti hjá frænku minni) og ákvað að kíkja aðeins á ballið og hlusta á hljómsveitina Buff. Mikið var það gaman, geggjuð hljómsveit... þeir höfðu það svoo gaman á sviðinu og gerðu allt sitt svo vel. Gaman að heyra loks í Pétri almennilega þar sem hann er kallaður "bakrödd Íslands" ég verð nú aðeins að fá að segja að hann er nú bara muuun meira en bakrödd... hann er fanta söngvari!!! Hinir líka Stebbi og Hannes stóðu sig mjög vel... þétt hljómsveit þarna á ferð! Ég stóð bara aftast og hlustaði... horfði á krakkana dansa og skemmta sér...
Laugardagurinn var í heild sinni alveg frááábær og ég naut hverrar mínútu!!!!!!!

Sunnudagurinn:
Tókum okkur góðan tíma í að vakna og fengum okkur að borða í róleg heitum. Keyrðum svo heim í sæluvímu eftir frábæra helgi á Akrueyri. Þegar heim var komið voru mamma og pabbi búin að grilla sigurgrill. Sæmundur og Vala, Ingvar og Addý mætt á staðin og allir að rifna úr stolti yfir litla kallinum okkar!!! Sigurður Þór Óskarsson er flottastur!!!!

Þetta var bara lítil ferðasaga takk Siggi Þór að vilja hafa stóru systir með og Ólöf, það var frábært að fá að kynnast þér örlítið betur. Takk Krístín Þóra fyrir að leifa mér að sofa heima hjá þér, þú gerðir þessa helgi yndislega og takk fyrir elsku þið sem gerðuð þessa helgi sérstaka!!!

Ykkar Ágú

Monday, April 07, 2008

Siggi Þor Snillingur... mamma afmælisbarn :)

Jæja... Nú er maður að spriiiiinga úr stolti, svo ekki meira verði sagt!!!

Hann Siggi Þór minn er kominn inn í leikaranámið í Listaháskólanum og hananú!!! Verða tvítugur gaurinn og þrumaði sér þarna inn í fyrstu tilraun. Ég hafði þessa trú allan tíman, veit hvað hann hefur að bera og það sem hann hefur að geyma... GLÆSILEGUR!!!

Til hamingju elsku kallinn minn... þú ert snillingur og ég er stolt af þér!!!

Annað... mamma mín á afmæli í dag! Ég elska hana líka rosalega mikið og er ánægð með hana. Besta vinkona mín og besta mamma sem hægt er að hugsa sér. Þú ert frábær mamma mín og ég elska það að það varst ÞÚ sem fæddir mig... :)

Hérna er myndband þar sem Siggi Þór fer á kostum (alveg við hæfi að skella því hérna inn :) ) og kærastan hans hún Ólöf Jara er þarna líka (sem sagt stelpan sem hann syngur með og er skotinn í haha)
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&ba=leita&leit=kr%E6&id=5376

Kær kveðja frá Háaleitisbrautinni...

Hei hei og hó hó (samt ekki mercedes club kveðja)
Ágústa stolta :)

Wednesday, April 02, 2008

1. april

Í gær hringdi Aron Elí í mig frá skrifstofunni í skólanum sínum eftir skóla og bað mig um að sækja sig því hann væri svo haltur. Ég skaust náttlega um leið út í bíl og brunaði niðrí skóla að sækja slasaða drenginn minn. Á móti mér tekur glaður drengur á hjól sem kemur á harðaspani á móti mér og spyr "ertu komin mamma?" og ég segi að sjálfsögðu "já" og þá segir hann sigri hrósandi "FYRSTI APRÍL" váááá ég hef aaaaaaaldrei verið tekin svona!!! Mér fannst þetta fyndið með honum og hló mikið því þetta kom mér svo innilega á óvart!

Í dag fór ég að fá mér bensín. 25 kr af lítranum já takk... það má fara inn í bílinn minn!!! Ég lét fullt af fólki vita í gegnum sms í símanum og kannski komu allir tíkallarnir þannig út á eitt ahhaha veit ekki. Kom á bensínstöðina, var alveg viðbúin því að þurfa að bíða í röð en engin röð var þar og ég renndi bara bílnum að næstu pumpu og setti kortið í, tók svo dæluna, setti hana í gatið og dældi þangað til að bíllinn gubbaði næstum bensíni. Þegar ég kom inn aftur og setti hann í gang þá fór rauða nálin aaaalveg upp og það er sjón sem ég hef ekki séð mjööög lengi! Mér leið bara mjög vel þegar ég keyrði af stað :) Ég er nefnilega sú týpan sem týmir ekki að kaupa sér mikið bensín, dæli yfirleitt ekki fyrir meira en 2000 kall og nálin hreyfist varla. Bróðir minn sagði eitt sinn við mig að hann væri hissa á að bensínljósið mitt væri ekki orðið perulaust því að það væri í raun alltaf logandi :/ EN EKKI NÚNA!!!

Mér finnst þetta frábært átak sem vörubílstjórar og trukkar hafa verið í !!! Hibb hibb húrrey...

Voru þið tekin 1. apríl?

Kv Ágú

Thursday, March 13, 2008

Læst WC eður ei???

Hi...

Ég er í Danmörku núna og það er alveg frábært... Er á fullu í skólanum og það eru svo mikil forréttindi fyrir mig að hafa fengið að kynnast CVI og öllu því sem kemur þessu við... I'm so happy!!!

Jiiii í gær var mjög sérstakt sem ég lenti í... Við vorum að halda tónleika og það sem var svona sérstakt við það var að þeir voru haldnir á stað sem kallast Operaen og sá staður var í Christianiu! Já já mín er orðin veraldarvön með meiru.... en í alvöru talað það var mjög sérstök lífsreynsla sem ég varð fyrir... Andrúmsloftið þegar maður gekk um göturnar var mjög rólegt en samt á einhvern hátt þrúgandi, lyktin var angan af hassi og á hverju götuhorni voru karlar að kynda, með eld í stórri tunnu og var lyktin af því líka einkennandi. Ég var að fíla þetta (ekki svo að skilja að ég var að fíla hassið og allt það, heldur bara fólkið fannst mér bara mjög vinsamlegt og þessi götustemning fannst mér heillandi, allt í svona sérkennilegum básum og svoleiðis) og fann ekki til ógnunar á nokkurn hátt en sumir í hópnum voru bara hreinlega hræddir að ganga þarna í gegn. Þegar við gengum upp tröppurnar til að komast inn á staðin þar sem við áttum að syngja voru tvær stúlkur að rúlla sér jaaah líklega heitir það jónu, það var spes og mjög sorglegt. Það voru geðveikir tónleikarnir, ég blúsaði af mér rassinn (svo að nú er ekkert sem heitir rass á mér hahaha iiii jú það er víst nóg af honum enn ;) ) oooooh það var svo gaman!!!! Svo kemur það skrítnasta við þetta allt saman... ég þurfti að pissa, kannski ekkert skrítið í sjálfu sér, en baðherbergið á Óperunni í Kristjaníu var ekki læst og það voru ekki almennilegar hurðar, það var bara svona kúreka-hlerar... Sást á milli hleranna og meðfram og allt... mjööööööög sérstakt, en ég var í spreng svo að ég þurfti bara að let it go... það kom enginn á meðan, svo að það var gott, já og það var ekkert merkt karlar og konur... jebb sem sagt allt verulega frjálslegt í Kristjaníu!

Já ég segi meir bráðum... en ég kann enn betur að meta það að geta læst að mér þegar ég fer á klósettið, því að ég náði engan veginn þessari "ahhhh hvað þetta var gott" tilfinningu, sem maður fær stundum þegar maður er í spreng og kemst loks á klósett, þetta var meira svona "fljót, fljót, fljót buna... drííífa siiiig"

Ok komið nóg af klósettumræðu...

Síja sún...

Hi hi

Ágú

Tuesday, March 04, 2008

Nokkrar tilnefningar...

Gúdden tag...

Ég ákvað að hafa nokkra daga á milli blogga vegna háðs í síðustu færslu frá kommentfriend... Ég veit ég dett alveg inn í þennan lúðagýr í sambandi við bloggið og svo sjáið þið ekkert í marga annaðhvort daga, vikur eða mánuði.
Ég ætla að krýna nokkra í dag...

Afrek dagsins í dag:
- Án efa Dagný svilkonan mín sem eignaðist tvíburastelpur í dag!!! TIL HAMINGJU ELSKU ELSKU DAGNÝ OG ARNAR... Þá eiga þau BAAARA 5 stykki af börnum og öfunda ég þau tæplega, en ég samgleðst þeim bara enn meira! Hlakka til að fá að hitta skvísurnar, bíst við að þegar þær vaxa úr grasi fái ein rautt hár eins og Dagný og hin ljóst hár eins og Addý... nú á ég þetta skjalfast! Ég er mjög stolt af henni... Hetjan mín...

Hrós dagsins:
-Fá án efa gæjarnir í fiskibúðinni... rosalega voru þeir nettir á því!!! Hressir og hjálplegir,,, töluðu um að allir dagar þeirra væru föstudagar... þeir fengu aldgjörlega að heyra það frá mér að ég kynni að meta það að ganga inn í fiskibúð og fá svona móttökur... Addý sagði þegar hún kom út í bíl "þetta voru góðir og flottir gaurar" hahaha

Óréttlæti dagsins:
-Án efa hefur Herkúles (kisinn minn) verið beittur mesta óréttlætinu í dag... Hann var að leika með dótamús og naut þess í botn, svo missti hann hana frá sér og þá kemur Dísabella (hinn kisinn minn og kærastan hans) og tekur músina og þegar aumingja Herkúles ætlar að fá hana aftur þá urraði mín bara á kallinn og hann lagðist niður í uppgjafarstellingu... "bbbara svona að láta þig vita það elskan mín að þú mátt bara alveg vera með músina... já bara eins lengi og þú vilt"

Útpælari dagsins:
-Án efa Kjartan Ísak (sonur bróður míns) honum var sem sagt keyrt í skólan í morgun sem er í Hafnafirði og Sæmi býr í Hvassaleiti og kl 10:30 var hringt heim úr skólanum og Kjartan Ísak orðinn veikur... Þeir fara í bakaríið á leiðinni heim og strákurinn svoooona líka hress eftir það! Já já saknaði bara pabba og langaði heim (pabbi hans er að fara til útlanda í 2 vikur og hann ætlaði bara að nota allan þann tíma sem honum gæti gefist)

Jamm fleiri verða tilnefningarnar ekki í dag... en kannski fleiri seinna!

Takk fyrir mig...