Monday, May 31, 2004

Gospeltónleikar

Ég ætla að nota þetta frábæra tækifæri til þess að auglýsa vortónleika Gospelkórs Reykjavíkur!!!

Þeir verða þann 2. júní og verða alveg rosalegir. Í ár verður lofgjörðarþema og verður allt sungið á íslensku. Hljómsveitin verður æðisleg á þessum tónleikum því að þrír úr Mezzoforte munu spila með, þeir Gulli Briem, Jói Ásmunds og Óskar Guðjóns svo er auðvitað snillingurinn sjálfur (sem er ekki í Mezzoforte) Óskar Einarsson.
Ég hlakka mjög mikið til og veit ég að Þú sem munt koma verður ekki fyrir vonbrigðum. Það kostar 2000 kr inn og ef þú vilt fá miða hringdu þá í mig í síma 899-5886.

Ég skora á þig að koma og eiga yndislega kvöldstund með okkur og koma út full(ur) af blessun

Halló, halló

Aldrei hefði ég trúað því að ég fengi mér blogg, en ég ætla að prufa í smá tíma og get þá commenterað pistlana hennar Kristínar Þóru og kannski dett ég svo rosalega inn í þetta að ég fer að nota þetta til að skrifa einhverskonar dagbók! Hver veit???? Ég ætla að tékka hvort þetta komi upp á skjáinn!

Heyrumst betur seinna.