Sálin og gospel... gleðileg jól og gleðilegt ár!
Gleðileg jól elsku þið...
Mynda forritið í tölvunni minni er eitthvað mis þessa dagana svo að ég hef ekki náð að setja neinar myndir af fallegu börnunum mínum eins og ég ætlaði mér... en vonandi fer þetta að lagast ;)
Það eru þrusutónleikar í kvöld með sálinni og gospel og vitiði hvað... ég á að syngja sóló í fyrsta laginu :) veiii ég hlakka ekkert smá til... við kórinn munum sem sagt syngja 3 gospel lög til að byrja með... munum taka amazing grais (sem ég syng sem sagt ein í ) svo tökum við lean on me (sem Edgar fer á kostum í) og svo í lokin af þessari gospelsveiflu tökum við o happy day... já þetta verður svaka gaman... hlakka til!! hey... 2700 manns ;)
Ég ætla að fara að hafa mig eitthvað til... er að fara á æfingu fyrir herlegheitin... heyrumst betur seinna...
Gleðilegt ár og vonandi verður árið 2007 yndislegt!!!
Mamma og pabbi, sæmundur með börnin sín yndislegu og siggi þór munu koma til okkar í mat á gamlárskvöld... ofninn hjá mömmu og pabba sagði "hingað og ekki lengra, annars tek ég rafmagnið af íbúðinni ykkar" á aðfangadagskvöld og það gerði hann nokkrum sinnum, þar til þau tóku mark á hótuninni ... Þetta verður GAMAN!!!!
Love from me to you...
Ágústa Ósk Óskarsdóttir (formleg í þessu bara ;) )
