Það er búið að vera svo yndislega mikið að gera hjá mér og ég elska það, og ég elska allt sem ég er að gera! ooo svo frábært... Í dag fór ég í ræktina og fór svo í pottinn sem er svo sem ekkert sérstaklega frásögu færandi nema það að ég ELSKA þetta dásamlega land sem ég bý á... vá maður, ég fór út í í sólskini, stuttu eftir að ég kom ofan í þá kom svo ROSALEGT haglél og strákar sem eru líkelega í 10unda bekk (með testasterónið á fullu flæðandi út um allt og var ég mest hrædd um að ég fengi vægan skammt af því bara með því að liggja í sama pott og þeir... og þvílíkt var fyndið að vera með lokuð augun og þykjast ekki vera að fylgjast með en hlusta á þá... úfff) voru í skólasundi en voru svo miklir töffarar fóru í keppni hverjir gætu verið lengst upp á bakkanum í haglélinu. Töffaraskapurinn fór nú heldur betur þegar sundkennarinn kom og skammaði þá fyrir að hlaupa á bakkanum og rak tvo upp úr af því að þeir voru að leika með bolta!!! Þeir áttu bara að vita það að þeir mættu ekki leika sér með bolta, eitthvað frekar skrítið... En já nóg um unglingsstráka... og áfram með veðrið, það sem sagt kom sól eftir haglélið, svo kom svo rooosaleg ský og grenjandi rigning... jiiimiinn... ég var að hugsa um hvort ég ætti kannski bara að koma mér upp úr, en ég átti stefnumót og ætlaði að hitta gelluna kl 12, svo að ég beið eftir Maríu... hún kom og þá fór sólin að skýna... svooo skrítið þetta dásamlega land... maður veit aldrei við hverju er að búast... En við María áttum góðan tíma í pottinum að tala um söngdýfur á meðan við mökuðum á okkur brúnkunni, því að við erum líka í brúnkukeppni ;)
Svo fór ég til ömmu minnar og hún er alltaf jafn yndisleg. Hún var að segja mér að þegar hún handleggsbrotnaði um daginn þá hafði afi séð hana gráta í FYRSTA skiptið á ævinni!!! ÉG átti ekki til orð (dramdrottningin sem græt stundum freeekar mikið) og spurði hana, hvort hún hafi í alvörunni ekki grátið fyrir framan afa fyrr og hún sagðist bara aldrei gráta, nema hún fellur stundum tár þegar hún er að velta fyrir sér hvort hún sé nógu góður lærisveinn Jesú og þegar henni finnst hún ekki hafa staðið sig þá fyllast augun hennar af tárum! Ég óska þess að ég eigi svona ævi... að mitt takmark sé himinninn... sem það og er... en að hafa átt svona ævi... ég dáist að ömmu minni og hún er mér svo mikil fyrirmynd í mörgu...
En lífið er gott, mikið að gera í tónlistinni og fyrir ykkur sem hafið áhuga þá er WE WILL ROCK YOU sjóvið á fimmtudaginn kl 20:00 og munu við María vera áberandi það kvöld... svo endilega látið sjá ykkur niðrí FÍH á fimmtudaginn 24. mai kostar 1000 kall inn...
Síjú...