Rugl...
góðan daginn...
Takk fyrir kommentið Álfheiður mín, það gladdi mitt litla hjarta...
Í dag fór ég í nálastungu... ég spurði fyrist mjög ítarlega hvort þetta væri ekkert kukl og eitthvað sem fylgdi þessu en sjúkraþjálfarinn sem stakk mig vildi meina ekki. Svo að ég sló til. Þetta á að hafa góð áhrif á mígreni (sem er eitt það versta sem ég fæ)... Þetta var mjööög svo sérstök lífsreynsla. Ég þessi nála hrædda manneskja lá varnarlaus á bekknum þar sem maðurinn kom með nálarboxið inn og sagðist ætla að stinga í hendurnar, fæturnar, ennið, hnakkan og gagnaugað á mér... ég styrðnaði öll upp og mér leið ömurlega. Maðurinn var með fallegt bros og sagði að ég þyrfti nú ekkert að hafa áhyggjur. Hann byrjaði á höndunum. Stakk og þurfti að snúa nálinni til að hreyfa við bandvefnum. Þetta voru pííínulitlar nálar sem fóru bara svona 2 mm niður. Svo kom að fótunum á mér, hann stakk í ristina og það var svooo vont... mér varð að orði að aumingja Jesús, hann fékk þykka nagla ákkurat þar sem ég fékk pííínu litlu nálina og ég svitnaði! ÚFFFFF.... Mér leist nú ekkert á þegar hann stakk ennið á mér, það vr verst... en nóg um það... vonandi mun þetta ganga! En til að klára þá var ég nálahrædda manneskjan með 10 nálar í mér í 30 mín... Til hamingju Ágú að þú fæddist hér!!!
Ég er búin að vera hyber í dag... mjög skrítin tilfinning. Ég kom heim alveg eins og lurkum lamin og lagði mig... vaknaði og ólgaði öll inn í mér, rosalega skrítið, var að skrifa á lyklaborðið og hugsaði svo hratt og fingurnir fylgdu ekki og allt varð einhvernvegin vitlaust. Ég var að tala við fólk á msn og ég var svo hrædd um að fólkið færi bara án þess að ég næði að skrifa en samt var ég að skrifa svo hratt... hugurinn var bara hyyyyyyper!!!
Búið að vera sértakt kvöld... hef bara verið ein og mér finnst ég vera að bíða eftir einhverju en ég veit ekki hverju. kannski er það bara eftir Desperat housewifes, en held samt ekki, hef ekki horft á þann þátt í þúsund ár (að minnsta kosti).
vá þetta hefur verið skrítin færsla, skrítin dagur, skrítið hugarástand.
Furðó... hef ekki annað orð yfir þetta...
Rugl!

2 Comments:
Hyper-heitin hafa örugglega verið út af nálastungumeðferðinni. Vinur minn fór í svona til að laga slæman fót.Fóturinn lagaðist ekkert en hins vegar missti hann áhuga á áfengi. Hann lagaðist svo....bæði í löppinni og lystinni.
Já ég veit ekki Pétur, það er ekki gott að segja... Gaurinn sem stakk mig sagði að ég yrði mjög þreytt og eftir mig en ég varð eiginlega aaalveg öfugt... haha... Gott að heyra að vinur þinn lagaðist í fætinum, samgleðst honum með það, vonandi fer hausverkurinn minn líka :)
Post a Comment
<< Home