Siggi Þor Snillingur... mamma afmælisbarn :)
Jæja... Nú er maður að spriiiiinga úr stolti, svo ekki meira verði sagt!!!
Hann Siggi Þór minn er kominn inn í leikaranámið í Listaháskólanum og hananú!!! Verða tvítugur gaurinn og þrumaði sér þarna inn í fyrstu tilraun. Ég hafði þessa trú allan tíman, veit hvað hann hefur að bera og það sem hann hefur að geyma... GLÆSILEGUR!!!
Til hamingju elsku kallinn minn... þú ert snillingur og ég er stolt af þér!!!
Annað... mamma mín á afmæli í dag! Ég elska hana líka rosalega mikið og er ánægð með hana. Besta vinkona mín og besta mamma sem hægt er að hugsa sér. Þú ert frábær mamma mín og ég elska það að það varst ÞÚ sem fæddir mig... :)
Hérna er myndband þar sem Siggi Þór fer á kostum (alveg við hæfi að skella því hérna inn :) ) og kærastan hans hún Ólöf Jara er þarna líka (sem sagt stelpan sem hann syngur með og er skotinn í haha)
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&ba=leita&leit=kr%E6&id=5376
Kær kveðja frá Háaleitisbrautinni...
Hei hei og hó hó (samt ekki mercedes club kveðja)
Ágústa stolta :)

3 Comments:
Takk fyrir mín kæra dóttir. Já mikið er ég nú stolt af börnunum sínum öllum þremur. Hvert öðru yndislegra. Elska ykkur öll af öllu mínu hjarta :-)
Sjáumst í kvöld - kát og hress
Til hamingju með Sigga Þór ... já og mömmu þína, knúsaðu hana frá mér :o)
Til hamingju með ltila Sigga Þór, bæði með leiklistina og sigurinn í söngkeppninni ;)
Kv Margrét Ingu syss ;)
Post a Comment
<< Home