Gospeltónleikar
Ég ætla að nota þetta frábæra tækifæri til þess að auglýsa vortónleika Gospelkórs Reykjavíkur!!!
Þeir verða þann 2. júní og verða alveg rosalegir. Í ár verður lofgjörðarþema og verður allt sungið á íslensku. Hljómsveitin verður æðisleg á þessum tónleikum því að þrír úr Mezzoforte munu spila með, þeir Gulli Briem, Jói Ásmunds og Óskar Guðjóns svo er auðvitað snillingurinn sjálfur (sem er ekki í Mezzoforte) Óskar Einarsson.
Ég hlakka mjög mikið til og veit ég að Þú sem munt koma verður ekki fyrir vonbrigðum. Það kostar 2000 kr inn og ef þú vilt fá miða hringdu þá í mig í síma 899-5886.
Ég skora á þig að koma og eiga yndislega kvöldstund með okkur og koma út full(ur) af blessun

0 Comments:
Post a Comment
<< Home