Sunday, June 13, 2004

Allt hefur gengið upp! Dýrð sé Guði

Vá...... ég og maðurinn minn eigum íbúð!!! Jei, ég er svo hamingjusöm með þetta allt saman. Við fengum hana á nákvæmlega því verði sem við vildum og "höfðum efni á" og við kítum á hana í fyrradag, það var eftir að við skrifuðum undir og mér leið svo vel að ganga þarna inn og finna það að þetta er íbúðin mín. Við ætlum að dúllast aðeins við hana, m.a. að rífa allt út af baðherberginu og endurnýja algjörlega... (svo að ég vona að allir mínir gestir þurfi að pissa þegar þeir koma í heimsókn ;).
Íbúðin er á Háaleitisbraut 54, annari hæð til vinstri, svo að það er ekkert ofsalega langt fyrir eldra fólk að ganga upp stigana. Við fáum afhent um mánaðarmótin ágúst/september og þá verða hendur látnar standa fram úr ermum. Ég get varla beðið en ég verð að viðurkenna að það er pínu kvíðahnútur... að fara úr foreldrahúsum í rauninni í fyrsta sinn!!!!!!!! Tími til komin!

Hey get ekki skrifað meira ætla að fara í nokkrar húsgagnbúðir áður en þær loka!

Kær kveðja til þín sem lest þetta frá mér!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home