Friday, February 10, 2006

Bryrjuð aftur (þökk sé Álfheiði)

Blessuð og sæl öll sömul.. eða allavegana Álfheiður!!!

Vá maður, er ekki komin tími til að byrja að blogga í alvörunni aftur. Málið er að ég fékk hvattningu frá vinkonu minni Álfheiði (sem býr því miður á Egilsstöðum) að ég þyrfti að byrja að blogga aftur og ég fór að hugsa málið og komst að þeirri niðurstöða að endurvekja gaaamla bloggið mitt og setja mögulega einhverjar myndir líka. Svo ætlaði ég að fara að byrja en fattaði þá að ég bjó í Hvassaleitinu þegar ég var með þetta og Siggi Þór var mín tölvuhjálparhella þar og ég kunni EKKKERT Á ÞETTA... hvað þá að setja myndir. Álfheiður var á msninu og bauðst til að aðstoða kellinguna (mig sem sagt) og er var alveg að fara að gefast upp (nokkrum sinnum) og þá sagði kennarinn bara "við gefumst ekki svona auðveldlega upp" (hún kenndi mér líka að hekla og það hefur gefist vel) og hún hélt áfram og áfram og svo leistist þetta á órtúlegan hátt.. (í stuttu máli) ég er búin að eiga þessa síðu í 2 ár... ég geymi myndirnar mínar á picaso og það var ekki flóknara en svo að þessar tvær síður eru í samstarfi!!!!! ÓTRÚLEGT... EN SATT!!!! AAAAAAAAHAHHAHAHAHAHAHAH æææ kannski finnst ykkur þetta ekki eins fyndið.. þetta er bara svona "had to binn ðer" aðstæður...

Allavegana.. ég ætla að tékka hvort þetta mun ganga betur hérna megin...

Takk Álfheiður mín og kannski verður þú sú eina sem kíkir hingað en þá er það þess virði... þú ert algjör gull!!!

Þín Ágústa Posted by Picasa

2 Comments:

Blogger Álfheiður said...

Þokkalega sem ég mun kíkja hér við og læt þig ekki í friði með bloggið hér eftir. Ef þú klikkar á þessu hefur kvöldinu verið illa varið (samt vel varið með þér) hehe

11:52 PM  
Anonymous Anonymous said...

var bara að finna þig hérna..ótrúlega flott og skemmtilega síða!
myndir og allt..nú verður gaman að fylgjast með..

9:23 PM  

Post a Comment

<< Home