Saturday, February 11, 2006

Sumar í nánd???


Góðan daginn...

Dagurinn í dag er búinn að' vera dásamlegur... Byrjaði á kóræfingu og svo kom ég heim og við hjónin fórum út með börnin, út á róló og þar lékum við Addý okkur en strákarnir spiluðu fótbolta. Aron Elí er orðinn þrusugóður í fótbolta og þvílíkir taktar!

Þegar við fjölskyldan vorum á heimleið löbbuðum við fram hjá gleðitíðindum!!! Já ég meina það, við fórum fram hjá runna sem var að byrja að blómstra... bíddu hvaða dagsetning er eiginlega í dag? Ég vona að runninn eigi eftir að lifa þetta af... hann gaf mér allavegana gleði í hjartað og ástæðu til þess að stoppa, hugsa og mynda reyndar líka...

Kannski ýkt tekið til orða að sumarið sé í nánd en ég ætla að leifa einu Biblíuversi að fylgja þessu...

"Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér að sumar er í nánd." (Matt.24:32)

Guð blessi okkur öll.

Ágústa Ósk

1 Comments:

Blogger Álfheiður said...

Sumar í hjartanu kannski, allavega held ég að það sé farið að sumra, a.m.k. vora í mínu hjarta ...

11:51 PM  

Post a Comment

<< Home