Sunday, February 12, 2006

Flókið líf????

Talandi um takta... þetta er eins og getraun, getið þið sagt mér í hvernig stellingu Aron Elí er í? Hann var sem sagt í fótbolta og ég náði þessari flottu mynd og mér finnst hún alveg kostuleg.

Stundum líðu manni eins og maður sé bara hreinnt og beinnt í flækju... það getur verið andleg flækja eða veraldleg. Lífið þarf ekkert að vera geggjaðslega flókið.

Í Biblíunni stendur að við eigum að gera plön en Guð ræður því svo hvað gerist með þau (það er að segja ef við treystum á hann og viljum að hann skipti sér af lífinu okkar.) Við köstum teningunum en Guð ræður hvað kemur upp. Nú er ég ekki að tala um það að við getum bara sest upp í sófa, viðrað tærnar og gert ekki neitt, nei alls ekki! En við þurfum ekki að vera í stressi, áhyggjum og því böli. Við vitum að lífið okkar er í Guðs hendi og hann mun vel fyrir sjá ef við leitum fyrst ríkins hans og réttlætis, mun allt veitast okkur að auki (í því sem við gerum).

Gerum lífið ekki flóknara en það er... Njótum þess að vera til... Elskum fólkið í kringum okkur... Gerum okkar besta... Treystum Guði... Leitumst eftir vilja hans... BROSUM.

love you... Posted by Picasa

2 Comments:

Blogger Álfheiður said...

AMEN!!! Vel að orði komist Ágústa. Margt af því sem þú segir talar svo til mín, eitthvað sem ég er búin að vera að pæla í. Við erum greinilega eitthvað á sömu línu ;)

9:25 PM  
Blogger agusta said...

Gaman að heyra að þetta talaði til þín Álfheiður og ég þori næstum að fullyrða það að við erum ekki einar um að vera í þessum pælingum... stundum geri ég lífið mitt svo ógeðslega flókið að ég sé ekki fyrir næsta horn, en svo er þetta ekkert svo rosalega flókið þegar ég staldra við og tala við hinn hæsta.

Takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta á mig... mér þykir meira en vænt um það!

9:39 PM  

Post a Comment

<< Home