Bænagangan...
Bænargangan í dag og tími til að vakna til lífsins á þessu bloggi á degi Drottins hér á Íslandi...
Ég hef mjög miklar væntingar fyrir þessum degi og trúi því að Guð ætli að láta dýrð sína í ljós og láta blessanir sínar rigna yfir land og þjóð... Þetta er dagurinn sem Guð hefur valið til að láta ljós sitt (okkur fólkið hans) skína skærar en myrkrið en þetta er aðeins byrjunin, Ég trúi því að við erum að fara inn í rosalega spennandi tíma þar Guð mun opnbera sig sem aldrei fyrr!!!
Ég hef átt mjög furðulegt ár og að vissu leiti finnst mér ég hafa brugðist big time frammi fyrir Guði mínum á þessu ári, því hann setti mig í próf sem ég hef í raun ekki náð að standast þar til nú. Ég hef upplifað það að vera ekki eins sterk og mikið ljós og eins og hann skapaði mig til að vera fyrir þennan heim. EN ég ætla ekki að dvelja í því lengur því að Guð hefur fyrirgefið mér og þetta ár er í raun enginn tími miðað við þau ár sem ég á eftir hér á jörð svo ég tali nú ekki um eilífðina.
Þannig er mál með vexti að ég greindist með ólæknandi baksjúkdóm fyrir rúmu ári síðan og hef látið það draga mig svakalega niður og hugur minn hefur verið frekar fastur á þessum veikleika... Þegar fólk hefur spurt mig hvernig mér líður þá hef ég alltaf sagt hvernig mér líður í bakinu því að það var það sem átti minn hug allan. En ég held að það hafi ekki verið viturlegt af mér að einbeita mér svona rosalega mikið að því að vera í sársauka alla daga og allan daginn (sem ég er og enn í) heldur frekar að einbeita mér að því að vera þá allavegana heilbrigð í sálinni og hjartanu sem ég var alls ekki EN ÉG ER Í DAG. Allt í einu áttaði ég mig á því að hætta að einbeita mér svona að því hvað er að gerast líkamlega og frekar leifa Guði að komast að í hjartanu mínu og gefa honum tíma og vááá hvað hefur margt breyst... Mér líður yndislega, ég er hamingjusöm, ég elska það að vakna á morgnanna og ég hlakka til að taka þátt í því sem er að fara að gerast og er að gerast. Jú ég finn enn mikið til í bakinu en ég er viss um að Guð muni lækna það þegar rétti tíminn kemur!!! Þegar fólk spyr mig núna hvernig mér líður þá svara ég frá hjartanu en ekki bakinu ;) ég svara hvernig mér líður andlega og ég meina það... þegar það er allt í lagi á milli míns og skaparans míns þá er lífið mitt svo allt annað... Þetta er ekki ímyndun í mér!!! Ég meira að segja horfi öðruvísi á fólk, finn einhvern spes kærleika til þess, ég hef tilgang til að vera hérna, ég er í mission, vá svo spennandi! Ég þrái að allir fái að upplifa þetta, þetta er svo sannarlega LÍF Í FULLRI GNÆGÐ!
Megi Guð blessa þennan dag svo um munar fyrir Ísland og ef þú lesandi góður átt ekki þetta samfélag við Jesú... Þá get ég aðeins sagt við þig: Gefðu honum tækifæri... Viltu svara nokkrum spurningum í huganum fyrir mig?
Finnst þér lífið tilgangaslaust? Já Nei
Er langt síðan þú upplifðir SANNA hamingju? Já Nei
Þegar þú finnur gleði, staldrar hún þá stutt við? Já Nei
Er gleðin þá bundin við einhver atburð eða hlut sem þú heldur að muni gefa þér varanlega hamingju en svo kemstu að því að hann gerir það ekki? Já Nei
Ef þú hefur svarað þessum spurningum játandi þá er svarið fyrir þig að þú þarfnast Guðs því að tilgangurinn sem hann hefur fyrir þitt líf er ekki tilgangslaust og innantómt, gleðin er ekki bundin við hluti eða atburði heldur samfélagið við hann. Nú finnst þetta þetta kannski svolítið flókið og mikið vesen því að þér finnst kannski eins og Þú mundir aldrei heyra í Guði og kunna að vera með honum en þetta er einfaldara en það því að þú þarft aðeins að taka eitt skref og hann hleypur á móti þér (eins og pabbinn í týnda syninum) Gefðu Guð tækifæri, gefstu upp frammi fyrir honum! Hann mun fylla hjartað þitt af von og kærleika...
Ástæðan fyrir því að ég spyr þessara spurninga er að mér er búið að líða svona seinast ár og ég gat svarað þessum spurningum öllum játandi á þeim tíma og ég held að ég hafi aldrei verið í eins "svörtu myrkri" og þá... Ákvað ég að taka þetta eina skref og gefast upp og viti menn líf mitt hefur tekið hröðum breytingum undanfarið.
Ég læt þetta gott heita í bili og ætla að taka þátt í Bænagöngunni í dag með milli von um að Guð fái að taka sér bólstað í fullt fullt fullt af hjörtum!!! Í JESÚ NAFNI...
Kærleikskveðja og gott að vera komin aftur...
Ykkar Ágústa Ósk

4 Comments:
Hæ! Lagið heitir Ásdís Birta Einarsdóttir eftir dóttur hans sem dó nokkurra klukkustunda gömul.
Gott að þú ert komin aftur elsku Jesústelpa. Hlakka til að lesa bloggið þitt, það uppörvar mig alltaf. Love you a lot.
Y.n.d. -yndislegt!!!!!!
Vá, gaman að lesa bloggið þitt. Alveg frábært. Takk fyrir í gær :)
Dásamlegt hvað Guð er að gera.
Kveðja Ingunn
Óli: Sorglegt og lagið ber þess merki, en alveg stórglæsilegt lag og píanóspilið til fyrirmyndar ;) Mjög flott!
Mamman mín: Já gott að vera komin aftur og mér finnst sambandið okkar svo frábært mamma. Við erum alltaf tilbúnar með uppörvunina fyrir hvora aðra þegar hin þarf á að halda... Þú ert mín dýrmætasta!!!
Ingunn mín: Jebb yndislegt og þú ert yndisleg ;) takk sömuleiðis fyrir í gær þetta var frábær dagur og ég hlakka til á næsta ári að endurtaka þetta... og svo hlakka ég líka til bara næstu daga, því að Guð er svo sannarlega að vinna þessa daga.
Post a Comment
<< Home