geggjaðir tónleikar

Þá er sýningin búin og það gekk rosalega vel, hvernig sem á málið er litið... tónlistin var frábær, kórinn skemmtilegur, einsöngvarar frábærir.. og þar eru ég og María meðtaldar að sjálfsögðu.. við fórum á kostum (þó ég segi sjálf frá)... ég ætla að skilja eftir tvær myndir af mér sem KILLER QUEEN...

Það er ekki laust við að það sé töluverð áreynsla í gangi og miiiikill fílingur skal ég segja ykkur!
Á sunnudaginn fer ég til Danmerkur og er að fara að hefja þar 3 ára kennaranám í söngtækninni sem hefur verið að gera kraftaverk fyrir röddina mína síðasta árið... Complete vocal technique heitir sú tækni og hlakka ég ekkert smá til að mennta mig í þeim fræðum og hjálpa öðrum... hú-hú... love it!!! Ég verð fram á föstudag og kem þá aftur í 6 vikur og fer svo aftur úr í 5 daga og svo framvegis... þetta verður yndislegt!
Jæja.. heyrumst brátt og fyrir ykkur sem misstuð af sýningunni þá verður önnur eftir páska! GEGGJAÐ STÖFF!!!
KILLER KVEÐJA......... Ágústa Ósk

8 Comments:
Flott ertu!
Góða ferð til Danaveldis og gangi þér vel mín kæra.
Kv. úr sveitinni
Hæhæhæhæ elsku Ágústa! Ég rakst nú bara á síðuna þín aaalveg óvart. Ótrúlega flottar myndir sem fanga vel þennan klikkaða fíling sem var í þér þetta kvöld. Þú varst frábær! Algjörlega frábær...ekkert flóknara en það! Eru fleiri myndir einhversstaðar?
En skemmtu þér ótrúlega vel úti og lærðu eitthvað sniðugt! Við sjáumst svo 4. mars eða hvað?
Knús, Hreindís
Þú varst GEGGJUÐ!!! Og ég og allir bara!! ohh hvað þetta var gaman. Endilega settu myndirnar frá þér einhvers staðar á netið.. mig langar að sjá meira!
Frábært að heyra hvað þetta gekk vel, til hamingju með það. Þú ert nú alveg gorgeous á þessum myndum:) Mér líst vel á söngkennaranámið - þetta verður örugglega algjört ævintýri. Good luck og kær kveðja,
Fanny Kristín
Flott hjá Ágústa mín,
Rosalega flottar myndir af þér,
þá meina ég...ROSA ROSA....
ROCK ON og ha en god reise til Danmark, ég læt mér duga að það eru danskir dagar í Hagkaupum..
Guð geymi þig dúfan mín,
Kær kv. Kiddý
Hei, hvenær eftir páska eru tónleikarnir??? Ég kem nefnilega heim í nokkra daga eftir páska(mamma verður fimmtug) og það hefði verið geggjað gaman ef að ég kæmist á tónleikana. Verð heima 20-30 apríl:)
Flottar myndir af þér btw;)
Klem og knús frá Ingu
takk fyrir kommentin ;)
Inga.. ég veit ekki alveg hvenær þeir verða... kemur í ljós, en það er ekki ólíklegt að það verði þessir dagar.. en það kemur í ljós maður.. það væri geggjað að hafa þig þar ;)
Love you Ágústa
Hvernig væri að koma með smá ferðasögu frá Köben...eða bara annað blogg sama um hvað það er...?
Post a Comment
<< Home