Thursday, December 14, 2006

jóla jóla jóla...

Nokkrir dagar í jólin.. hvernig finnst ykkur á það???
Mér persónulega finnst það yndislegt, í raun allt sem tengist jólunum er yndislegt... Allt í einu finnst öllum ekkert mál að tala um Jesú og syngja um hann, elska jólaljósin, finnst svo gaman að gefa í skóin og börnin mín vita alveg að ég gefi en ekki einhver jólasveinn... persónulega hef ég aldrei haft áhuga á að ljúga af börnunum mínum ;) Kertaljós, jólasöngvar, bros á vör, jólahlaðborðin, jólatónleikar, jólafrí, jólatré, jólagjafir, vera mikið með fjölskyldu og vinum og fleira og fleira.

Merkilegt hvað tvær mandarínur geta glatt bara af því að þær voru í skónum, Aron Elí var himinlifandi. Það þarf ekki mikið og ekki dýrt til að gleðja börnin, bara að gefa við öðruvísi aðstæður... Svo var svo fyndið, ég gaf þeim sitthvora baðbombuna og Aron Elí tók þetta úr skónum og bara "hvað er þetta?" ég sagði "Baðbomba" þá horfði hann á mig og sagði "hef ég eitthvað við þetta að gera"???? hahahaha ég sagði honum frá freyðibaðinu og hvað það yrði góð lykt.. og já strákurinn var svona ánægður með þetta... æææ svo gaman. Stelpan er ánægð með þetta allt, bara svo spennandi að fá gjöf á hverjum degi ;)

Jæja best að fara ð skrifa jólakort... ég eeelska jólakort... í fyrra voru fyrstu jólin ever sem ég skrifa engin jólakort og það fannst mér miður skemmtilegt og þar af leiðandi var ekki eins gaman að lesa jólakortin sem maður fékk, af því að ég gladdi engan með þessum hætti. En nú verður það ekki svoleiðis, ég ælta að skrifa jólakort, en kannski fæ ég engin af því að ég sendi engin í fyrra, en það er þá bara allt í lagi, þá verð ég bara að hlakka til næstu jóla! annars hef ég ekki haft þann háttinn á, ég hef ekki bara sent þeim sem senda mér og ef ég missi út eitt ár frá einhverjum þá er það í lagi maður. Ég skrifa þessi kort af því að mig langar að gleðja einhvern NÚNA þessi jól, þýðir að ég er að hugsa til þess aðila, ekki bara af því að ég ÞARF þess...

En jæja komið gott... heyrumst elsku vinir.

Kær kveðja Ágústa Ósk

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hæhæhæ, gaman að sjá nýja færslu frá þér :) Við erum búin að skrifa ykkur jólakort þannig að þið fáið að minnsta kosti eitt ;)

11:05 PM  
Blogger Alda said...

bara að láta vita að tölvufælan ég sem hef ekki sett myndir inn á síðuna hjá guttanum mínum, svarað einum einasta tölvupósti eða bloggað á bloggið mitt í hundrað ár var að kíkja á síðuna þína... þú ert ein af mjöööööööööööög fáum útvöldum ;o)
koss og knús úr sveitinni...hvenær kemurðu í húsmæðraorlof til mín í sveitina?????
knús og kossar dillibossar, Alda palda.

1:35 PM  

Post a Comment

<< Home