Friday, November 03, 2006

Killer Queen

Hæhæ...

Ég horfði á svolítið athyglisvert brot um daginn, úr Kastljósi. Var þetta brot um hvort seinþroska fólk ætti að fá að eignast barn og viðtal við freeekar krúttlega svona foreldra... Ég verð að segja að ég held að þetta fólk leggi sig bara mun meira fram heldur en t.d. ríkt fólk sem kaupir krakkana sína og lætur þau alast upp á tölvuleikjum og skóladagheimilum... Það er margt ábótavant hjá þessum þroskahömluðu en þau þiggja aðstoð og segi ég bara gott hjá þeim! Ég legg til að við sem trúum á bænina, biðjum fyrir þessum litla strák. Að hann verði ekki fyrir aðkasti vegna foreldra sinna.... það er það eina sem ég hef í maganum út af!

Veit ekki af hverju ég þurfti að tjá mig aðeins um þetta mál, það hefur verið í hausnum á mér síðan ég sá þetta!

Ég fékk eitt aðalhlutverkið í Rock-söngleik sem verður settur upp í skólanum mínum (FÍH). Það eru sem sagt 3 aðalhlutverk og er ég það þriðja... þetta er geggjað hlutverk. ÉG verð sem sagt vonda konan sem kallast Killer Queen og byggist þetta á lögum með Queen... ég mun syngja 6 lög og eru öll þessi lög alveg svakalega skemmtileg... Killer Queen, A kind og magic, Play the game, Don't stop me now, Another one bites the dust og rock kaflan í Bohemian Rhapsody!!! Síííís hvað þetta verður gaman. Ég mun sýna á mér algjöörlega nýja hlið hahahhaha þessi týpa er mikill groddi og syngur samkvæmt því... rífur röddina og syngur mjög rockað.. úúú gaman, nýtt tjallens fyrir mig og ég elska það... Þetta verður sýnt í lok janúar.

Guð blessi ykkur kæru vinir...

Ágú

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Sæl Tóti hérna, Gaman að heyra í þér, gott að þú ert glöð og mikið sé að gerast hjá þér.Guð blessi þig og mér þykir vænt um þig systir!!

12:58 PM  
Blogger Glimmergella said...

Vá, ekkert smá frábært. Til hamingju með þetta stelpa :)

7:46 PM  
Blogger Álfheiður said...

Þú rokkar feitt stelpa!
Saknaði þín í gær, var á samkomu og vonaðist SVOOOO mikið til að hitta þig.
Það verður bara næst!

8:26 PM  
Anonymous Anonymous said...

AAHHH!!! og ég missi af þessu!!!!
En til hamingju, gaman að þessu ;o)

3:29 AM  
Blogger Bryndís said...

hahaha.....þokkalega sem þú verður að bjóða mér á þetta, ágústa rokkaragella...sé það alveg! Gott hjá þér stelpa....you go!

2:38 PM  
Blogger agusta said...

Tóti:
Mér þykir líka mjög vænt um þig bróðir og þú stendur þig svakalega vel þarna fyrir austan... sönn Guðshetja!
Dóra:
Takk kærlega fyrir
Álfheiður:
Já ég var búin að vera ein með krakkana alla helgina (Ingvar á unglingamóti) og bakið mitt sagði bara "hingað og ekki lengra, þú þarft að leggja þig" en það hefði verið yndislegt að hitta þig.
Kolbrún:
AAHHH!!! En þú ert í USA svo að það er nú ekki svooo slæmt, en það hefði verið meiriháttar hefðir þú getað séð þetta, verður geggjað sko ;)
Bryndís:
Já auðvitað er þér boðið... held að það kosti ekki neitt (samt ekki alveg viss um það) og mig langar mjöööööög mikið til að fá þig þangað!!! Taktu þessa helgi bara frá núna strax... 27 og 28 jan (veit ekki alveg hvorn daginn). Hlakka til að fá þig!¨!! Er búin að sakna þín ýkt þessa dagana, hef verið að reyna að suma pallíettu-jólasokkinn hennar Addý og það var svona sameiginlega hadavinnan okkar og þú áttir hug minn allan þegar ég þræddi pallíetturnar á sinn stað!
Love you sooo much.

Kær kveðja til allra frá Agústu rokkgellu ;) hahahah

10:42 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þú ert á fullu swingi elsku Ágúst mín sem er frábært og ég sé mun á þér hvað andlega líðan varðar, Dýrð sé Guði. En þið þarna, hún Ágústa var ekki búin að segja frá því að hún er að fara að syngja tvö kvöld á Lækjarbrekku,( held það sé rétt hjá mér ) þannig að þið verðið að fara í jólahlaðborð og hlusta á Ágústu syngja !! svo ætla ég pottþétt að fara á Killer queen og sitja fremst ;Þ I lov ya

1:03 PM  

Post a Comment

<< Home