Friday, June 30, 2006

Sumarið er dásamlegt!

Rosalega er gaman að lifa svona á sumrin...

Sundferðir eru stór partur af okkar lífi núna... fara út á peysunni er einnig algengt þessa dagana... notum mikið nýju sólargluggatjöldin sem við keyptum okkur... þríhjólaferðir eru ótrúlega vinsælar... fá að vera aðeins úti í garði í fótbolta eftir að það er komin "týpískur" háttatími... sumarið er yndislegt...

Ég fór upp á Skaga að horfa á litla kallinn minn (sem er ekkert lítill lengur, nær mér yfir brjóstin og er að fara í 3 bekk) keppa... hann stóð sig eins og hetja og skoraði 4 mörk á mótinu auk þess sem hann var fyrirliðinn... hann er að brillera í þessu enda er boltinn með segulstál við fæturnar á honum og sama hvað við bönnum honum að vera með boltan inni þá gleymir hann sér alltaf og er kominn hérna á stofugólfið og er að sóla upp völlinn... Ég var líka að brillera sem socker-mom... díííí hvað þetta var gaman... með uppörvunarorðin og hvatningarhrópinn á línunni... með frasana á hreinu... keeemur, íann-íann, láttann vaða, flott þetta halda áfram svona (klapp-klapp-klapp) jaaaaaaaaááááá það var lagið, glæsilegt skot!!! (hopp, hendur upp í loft og klappað ákaft á meðan drengurinn fer í sín heljarstökk og dansar fagnaðardans) hann fagnar aldrei eins og kallar þetta "mismunandi fögn" hahahahah svo yndislegur!

Stelpan mín er líka að blómstra... elskar að vera svona mikið úti og fá að sofa svolítið frameftir... elskar að busla í sundinu og er að standa sig svo vel á öllum sviðum... Það kom kona til mín í sundi og sagði að þessi stelpa ætti eftir að ná langt í framtíðinni, svo ákveðin og einbeitt væri hún... já ég held það nú bara... ég var að syngja um daginn "You make me feel lika a natural woman" og svo var hún farin að blasta það sama "jú meik í fíl læka vúúúman" ahhahah svo fyndið og svo þegar ég var að fara í stigspróf þá var ég að æfa skala og hún er með dúrskalan alveg á hreinu upp og niður! jábbs... börnin mín eru einstök ;) ég veit að allar mömmu segja það og það er það frábærasta við það... öll börn eru einmitt einstök bara á sinn hátt!!!!!

Maðurinn minn er dásamlegur líka og allt það.. nenni ekki að tíunda það núna... hann er bara frábær...

Við erum að fara til Spánar á fimmtudaginn í næstu viku, við fjögur og svo mamma og pabbi minn (sem eru einmitt þau bestu í heimi líka ;) ) og ég hlakka alveg svakalega til... úúú þvílíkt næs!!!

Í lokin ætla ég að setja nýjar myndir af nýjasta meðliminum... njótið vel!







Kærleikskveðja til ykkar frá mér...

-Ágústa Ósk

5 Comments:

Blogger Alda said...

börnin þín eru náttlega bara snillingar :o)
ég sé þig svo fyrir mér að missa þig á fótboltaleiknum....hahahah :o) þú ert einstök :o)
Þú segir að Aron Elí nái yfir brjóstin þín í hæð... minnir mig á blýantaprófið sem við tókum einu sinni... úff...það bætast æ fleiri blýantar við hjá mér...en hjá þér? er það kannski ástæðan fyrir að Aron Elí nær yfir þau...eða er hann bara að stækka? híhíhí ;o)
koss og knús...hlakka svooooo til að fá ykkur í sveitina!´
Alda palda

11:59 PM  
Blogger agusta said...

aaaaaaaaaaaaaaahahhahahahahahahahha good point Da... ég hlakka líka til að koma til þín í sveitina, þú ert mín uppáhaldskona... þú ert nú sú einstakasta Aldan mín... love you soooo...

2:50 AM  
Blogger Álfheiður said...

Eruð þið að fara núna á fimmtudaginn? Getum við ekki reynt að hittast fyrir þann tíma?
Kv. Álfh.

11:58 AM  
Blogger agusta said...

jú endilega Álfheiður...

Ég er í fríi alla þessa viku og er ég þokkalega til í að hitta þig eitthvað.. hringjumst og ákveðum að hittast eitthvað með börnin...

Sjáumst Ágústa

1:11 PM  
Anonymous Anonymous said...

Sæl, er hérna í tölvunni hennar Rakelar í sveitinni, vildi bara segja ykkur að ég hef verið að hugsa til ykkar hjónanna undanfarið. Sakna ykkar! Þið eruð alveg frábærir og gefandi vinir! elska ykkur milljón!

10:40 PM  

Post a Comment

<< Home