Sunday, May 07, 2006

7. mai

Fallegur dagur og hefur verið fallegur dagur síðan ég man eftir mér... Ég get bókað það að það verður gott veður... ég man ekki eftir einum einasta 7 mai án þess að það sé sól og mikið vor í lofti...ég elska þennan dag! Annað við þennan dag, hann minnir mig alltaf á að ég er orðinn einu ári eldri en ég var þann 6. mai og fyrir það er ég líka þakklát fyrir... enn eitt árið í heilbrigði, ást og umhyggju vina og vandamanna... ég elska þennan dag! Mamma mín og pabbi eignuðst að sjálfsögðu gullmola þann dag og held ég að þau séu þakklát hahhahah. Þennan dag gaf Guð mér, mér persónulega til þess að gleðjast, fá gjafir, fá hamingjuóskir já og bara athygli hahhahahaha. Þennan dag valdi Guð sérstaklega og skrifaði í bókina sína um að ég ætti að fæðast... magnað... mér þykir vænt um það. Ég á þennan dag nema ég veit um eina sem á hann með mér, annars hef ég ekki vitað um neinn annan sem á þennan dag... Guð blessi litlu vinkonu mína sem á hann með mér :) (hún er bara tveggja ára í dag) Munaði litlu að ég fengi Kísak í afmælisgjöf (sonur bróður míns) hann er algjör snillingur og eitt það fallegasta barn sem ég hef séð en hann fékk sinn eigin 9.mai.

Ég er búin að eiga yndislegan afmælisdag. Ég og Ingvar fórum á humarstaðinn á Stokkseyri í gær og keyrðum svo Frakka til Reykjavíkur (danskennara og höfund af dönsunum sem Solla Stirða í Lazy town litla sæta stelpan dansar) og við náðum að vitna svo mikið fyrir honum og hann spurði og spurði um okkar Jesú... svo gáfum við honum lofgjörðardiskinn okkar með Michael W Smith og biðjum núna bara fyrir að hann opni hjartað sitt fyrir Guði... Í Jesú nafni...

Ég svaf út í morgun (krakkarnir gistu hjá afa sínum og ömmu... takk elsku foreldrarnir mínir fyrir að passa fyrir okkur. Það gaf okkur svo mikið að geta bara verið svona tvö ein saman) fékk morgunmat í rúmið frá bóndanum... yndislegt. Svo lærði ég í tónfræði og labbaði svo yfir til mömmu og pabba, fórí sólbað og hafði það gott... ég fékk sparibuxur og bol frá mömmu og pabba, svo íþróttagalla frá bóndanum og frá krökkunum bol og veski... ekki amalegt það...

Fórum í afmæli til Bjarneyjar (hún átti afmæli 5 mai) og hittum þar yndislegt fólk, Vildísi og Eika, Benna og Björg það var gaman... svo enduðum við fjölsk. að fara á KFC að borða kjúlla... þar voru gígantískar rennibrautir fyrir krakkana og þau voru svo ánægð og glöð!

Sem sagt FRÁBÆR dagur og mikill friður...

Ég fékk líka frábæra afmælisgjöf frá Öldu minni... þau hjónin hringdu og sungu dúett fyrir mig (afmælissönginn) og Alda bauð mér til Akureyrar, bara við tvær að slappa af, sauma, prjóna, sund, (bikinivax... óóóó mæn) sofa út, borða, tala jájájá tala og tala saman... finna okkur stað fyrir Júróvísjon og bara að njóta þess að vera með hvorri annarri... hlakka til Alda mín og ég elska þig svo mikið!

Ég kveð í bili... enda góði dagurinn minn senn á enda og góður dagur framundan...
Kær kveðja Ágústa Ósk

13 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Elsku Ágústa mín.
Innilega til hamingju með daginn. Gaman að heyra að þú hafir átt svona góðan dag. Megi Guð blessa þig ríkulega.
Klem frá Kristiansand, Inga

11:05 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hmmm. Var full fljót á mér þegar ég las bloggið og hoppaði yfir byrjunina. Ég ætlaði nefnilega að reyna að ná að skrifa meðan þú ættir ennþá afmæli. En ég hef af einhverjum ástæðum fest mig algjörlega í það að þú ættir afmæli þann 7unda. En nei, og í þetta skiptið ætla ég mér að læra það. Alla vega, til hamingju með afmælið í gær. Á næsta ári tekst mér kannski að óska þér til hamingju á réttum degi:)

11:08 PM  
Blogger agusta said...

ég á afmæli þann 7unda kjánaprik...

7:49 AM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku Ágústa mín.
Innilega til hamingju með afmælið þitt í gær. Guð hefur gefið þér yndislegan afmælisdag, með sól og sumri.
Hafðu það gott.
Þín vinkona í tölvuheiminum,
Sibba.

10:39 AM  
Blogger Alda said...

til hamingju með gærdaginn elsku Ágú mín.
Hlakka líka svooooooo til að fara á Akureyrelsið saman ;o)
koss og knús, Alda palda.

1:57 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn í gær... við litla daman erum glöð að þú áttir líka góðan dag í gær... frábær dagur til þess að verða 2ja ára á ;)

4:43 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn Ágústa mín og miiiiikið eigið þið eftir að hafa það gott á Agureyris!!!!!!! Knús í krús úr brjálðu þrumuveðri í Ameríku.....

2:32 AM  
Anonymous Anonymous said...

mmm...góður dagur hjá þér, Ingvar flottur á því (matur í rúmið). Bið að heilsa!
Kv. Spiki

5:28 PM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku Agusta min, hjartanlega til hamingju med afmaelid og eg er svo glod ad heyra ad tu attir svona yndislegan dag. Love you :) Tin vinkona, Ingunn... p.s. eg sendi ter tolvupost, en eg veit ekki hvort tu fekkst hann.

6:22 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég held svei mér þá að ég þurfi að læra að lesa aftur. Þurfti að lesa þetta einu sinni en til að skilja að þú þann 7unda varðst einu ári eldri en þann sjötta. En nú er ég alla vega búin að ná þessu, og mun þar með bara halda áfram að óska þér til hamingju með afmælið þann 7unda á komandi árum;)
Knús frá mér

8:43 PM  
Anonymous Anonymous said...

hæhæ innilegar hamingjuóskir með afmælið , gott að þú áttri góðan dag , hafðu það gott
Kveðaja allý

6:30 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ. Langaði bara að kasta kveðju á þig og óska þér til hamingju með daginn um daginn. Hafðu það alltaf sem best og Guð blessi þig alla tíð. Kv. Elsa Rós.

3:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku hjartans Ágústa mín!! Jii ég vissi ekki hver ammælidagurinn þinn væri...fyrirgefðu og ég hitti þig þarna hjá Bjarneyju..iss!
Allavega..vonandi áttiru yndislegan dag og mér sýnist það nú, það eru forréttindi að þekkja þig! MANY kisses :) I love ya!
Your Annie

12:13 AM  

Post a Comment

<< Home