Saturday, March 18, 2006

Hjartað mitt er upptendrað í þínum faðmi...

,,Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmdir. Því að með þeim dómi sem þér dæmið, munuð þér dæmdir verða og með þeim mæli sem þér mælið, mun yður mælt verða... , ...Gefði ekki hundum það sem heilagt er og kastið ekki perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum og þeir snúa sér við og rífa yður í sig. (Matt.7:1-2 og 6)

Ég er búin að vera á svakalega erfiðu tímabili varðandi einn hlut í mínu lífi... og það sem meira er... ég hef ALLS ekki skilið af hverju mér líður svona og hvað sé eiginlega í gangi... er ég komin aftur á gelgjuna eða hvað er í gangi???

Þessi blessaði hlutur (ef hlutur má kallast) er hæfileiki sem Guð hefur gefið mér, Svið í lífi mínu sem hefur með mína þjónustu til Hans að gera og er einnig tengdur því að geta blessað aðra mikið í gegnum, fyrir utan það að ég elska að gera þetta og nýt þess alveg í botn. En einhvernvegin hef ég verið að finna svo SVAKALEGAN vanmátt í þessu og sjálfstraustið er á við litla gula baun. (það teygar ekki einu sinni upp í græna skiljiði!!!) Þetta svið á við sönginn og þá rödd sem Guð hefur gefið mér og engum öðrum.

Ég hef verið eins og lítil gelgja sem (eins og mamma mín sagði við mig í gær) er sæt en segist vera ljót (við höfum líklega allar gengið í gegnum þetta). Afsakið það sem kemur núna og kannski finnst einhverjum það hrokafullt og algjörlega stangast á við það sem ég sagði um sjálfstraustið hérna 5 línum fyrr... en ég veit að fólk blessast á því að heyra mig syngja og ég er búin að vera að vinna rosalega mikið í röddinni minni og hún er að þroskast gríðalega... svo að þá kemur það skrítna í þessu og ég segi það hérna sem ég sagði við Írisi Lind vinkonu mína í gær ,, ég skil ekkert í þessu því að ég veit alveg að ég get sungið en samt líður mér svona, og gerir það að verkum að ég er búin að vera að hugsa alvarlega í því að hætta í Gospelkórnum því að mér finnst ég vera að taka plássið sem einhver önnur BETRI söngkona ætti frekar að hafa." Og málið er að ég var ekki að segja þetta til þess að hún færi að segja ,,nei þú átt að vera hérna" og eitthvað... MÉR RAUNVERULEGA FANNST ÞETTA en samt skildi ég alls ekki af hverju, því að ég sá líka hina hliðina á málinu (að ég ætti alveg að vera í kórnum)

Ok þetta er orðið mjöööög flókið... í stuttu máli... Mér fannst eitthvað í huganum en í hjartanu vissi ég að það væri rangt. Ég vissi hvað ég gat, en samt var sjálfstraustið á við gula baun. Ég gerði mér grein fyrir þessu en samt skildi ég ekki hvað var að eða af hverju í ósköpunum mér leið svona. Ég fann að þetta var ekki gelgjuskapur en samt var það það!!!

Ég er búin að vera að leita Guðs í nótt (er sem sagt að vinna) og grátbiðja hann um að hjálpa mér að finna út úr þessu... því að trúið þið mér ÞETTA ER KRÍSA!!! og manni getur allllls ekki liðið vel á þessum stað!

Viti menn... Guð lætur ekki á sér kræla (hvað er kræla???) og Hann sýnir það enn og aftur að Hann er lifandi Guð sem ber umhyggju fyrir mér (og þér) og orð Hans (Biblían) er lifandi og kröftug og hefur svör við ÖLLU sem við þurfum að vita!!!

Hann sýndi mér... (þetta er erfitt að ljóstra þessu upp svona á netmiðli sem allir geta lesið hversu mikill gallagripur ég er... en í auðmýkt geri ég þetta, því að ég trúi því að kannski er einhver sem rambar inn á þessa síðu og hann er kannski búinn að vera að kljást við eitthvað svipað og ekki get ég setið á svarinu sem ég er búin að finna) OK... hér kemur það... Hann sýndi mér að... Með þeim dómi sem þér dæmið munuð þér dæmdir verða!!!

Úffff.... búmmm, Ágústa... dæmdu og þú verður dæmd... kannski ekki af öðrum en af sjálfri þér!!! (Því að það hefur örugglega enginn annnar í kórnum en ég sjálf fundist ég ekki eiga að vera þarna, samt var ég að hugsa um að örugglega öllum þætti það, en samt hugsaði ég nei þeim finnst þetta ekki) ooo aftur er ég orðin flókin!

Málið er sem sagt þannig að ég hef verið ROSALEGA dómhörð á allar kvennaraddir sem ég heyri... ég hef verið að finna að tóninum í röddinni, þó svo að tæknin sé alveg brilljant hjá manneskjunni (tek það fram að þótt ég fíli ekki tóninn, þá eru milljón manns sem fíla tóninn í röddunum á þessum söngkonum sem ég hef verið að dæma) ((og annað... ef ég hugsaði ekki svona um söngkonur, þá væri ég örugglega að njóta þess að hlusta á þær) ((( og annað, það eru örugglega margir sem fíla tóninn í röddinni minni og örugglega margir sem fíla hann ekki))) Ég hef sem sagt verið að dæma allar söngkonur í staðin fyrir að samgleðjast þeim. Ég hef verið að rífa niður í staðin fyrir að uppbyggja (kannski ekki sagt mikið en í huganum mínum). Hef verið að finna að í staðin fyrir að njóta þess sem er til staðar...

BARA AÐ ELSKA... það er málið... kærleikurinn sem Guð hefur gefið okkur til hvors annars...
Ok sem sagt ásæðan fyrir því að ég hef verið að tærast að innan er þessi...
ÉG hef gefið hundunum og svínunum(sem er líking fyrir illa anda í þessu tilfelli í Biblíunni) ((tek það fram að hundar og svín eru ekkert tengdir illum öndum í daglegu lífi...) það sem heilagt er og það er til dæmis það að elska náungan og hans hæfileika, umburðarlindi, samgleðjast og leifa náunganum að njóta sín (án þess að vera að finna að) og kastað því frá mér, þar sem illir andar(júbb þeir eru til) troða þessu heilaga undir fótum sér. Þeir gera nefnilega meira en það... samkvæmt þessu versi í Matteusi þá snúa þeir sér við og rífa mig í sig!!! Ááááiii og það er einmitt það sem hefur verið að gerast... þeir hafa rifið mig í sig með því að rífa sjálfstraustið niður... láta mig halda að allir séu að hugsa eins um mig og ég hef hugsað um þau, sem sagt að ég ég sé ekkert góð af því að svona og svona og þetta og þetta er ekki fullkomið í röddinni og með því að vera orðin svo hræðilega bundin af því hvað öðru fólki finnst... það á ekki að skipta máli... þetta er nú ekki fallegt og eru kannski einhverjir sem eru hættir að lesa... en til þess að ég áttaði mig á því sem var að gerast hjá mér, þá opnaði þessi ritningarstaður algjörlega augun mín.

ÉG VAR SEM SAGT AÐ FÁ ÞAÐ TIL BAKA SEM ÉG HAFÐI SÁÐ!!! og það var að rífa mig að innan!!!

Pössum okkur á því hvernig við hugsum um náungan í kringum okkur... DÆMUM EKKI SVO AÐ VIÐ VERÐUM EKKI DÆMD! Köstum ekki perlunum okkar fyrir svín!!!

Ég er búin að biðja Guð um að fyrirgefa mér og þá geri ég fastlega ráð fyrir því að lækningaferlið sé farið að stað... það mun taka einhvern tíma að lænast algjörlega en það mun gerast, ég sleppi ekki þessari perlu sem Guð hefur svo ákveðið agað mig með í nótt. Nei ég sleppi ekki minni perlu en Hann á aðra fyrir þig. Ef það er eitthvað sem þú ert að kjást við sem þú skilur ekki alveg, þá á Guð svarið fyrir þig. Kannski er þessi færsla byrjunin af því að Guð sé að eiga við þig og þá hvet ég þig til að lesa Hans orð og fá fleiri perlur frá Honum!

Guð blessi þig... (hahahha ekki veit ég nú hvort þú hefur lesið allaleið niður, svaka langloka hér á ferð, en þetta er leið fyrir mig til að leisa um og átta mig á því sem Guð hefur talað) og ég vil þakka þér svo mikið fyrir að hafa farið alla þessa leið með mér með því að lesa þetta allt saman! Takk fyrir.

Svo eitt stutt... í sambandi við gelgjurnar sem eru sætar en finnst þær samt vera lótar... kannski hafa þær verið að finna að útliti annarra stelpna!!! Spurning???

Þín Ágústa

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Kæra Jesústelpa !

Þú þekkir mig ekki baun og ég ekki þig en ég las bloggið þitt og vittu til það hitti í mark. Er að leita að Guði og fékk þetta vers um daginn og skildi lítið í því. Skrifin þín voru uppljómun og veistu ég er líka sek um að dæma, og nú skil ég ýmislegt í mínum kolli og hjarta. Takk fyrir djörfungina að skrifa þetta þú varst verkfæri Guðs inn í mitt líf.
P.s
Hef heyrt þig syngja og það snart mig - svo finnst mér þú líka sæt;-) Kv. vonandi bráðum Jesústelpa

2:27 PM  
Anonymous Anonymous said...

Halló Ágústa
Ég les stundum bloggið þitt, og þú hefur veitt mér ótrúlegan innblástur og skilning á mörgu sem hefur verið að brjótast í mér undanfarið. Takk fyrir það.
Ég hef líka hlustað á þig syngja og mér finnst þú með svakalega flotta rödd.
Gangi þér allt í haginn og haltu áfram að vera innblástur í ífi fólks.
Kv. Sibba

1:27 AM  
Blogger agusta said...

Takkk kærlega fyrir kommentin ykkar stelpur... þau hafa blessað mig mjög mikið og uppörvað!

Til þín ein að leita... Trúðu því að ef þú heldur áfram á þessari braut að vera svona opin og móttækileg fyrir Guði og því sem hann hefur upp á að bjóða þá verður þú komin fyrr en þig grunar í hóp JESÚSTELPNA híhíhí, hlakka til að frétta af þér þegar þú ert búin að taka þetta skref... Svo annað, að Guð svarar alltaf því sem við erum að pæla í, ef við skiljum ekki eitthvað í Hans orði þá fer hann einhverjar leiðir og að þessu sinni þessa leið... mér finnst alveg magnað að heyra að þú hafir verið að velta þessu versi fyrir þér um daginn!!! hahahhaha alveg magnað og þá finnur þú þessa síðu sem ég veit ekki hvernig í óskupunum þú fórst að en það var blessun fyrir okkur báðar... þú fékkst svör og ég fékk svo sannarlega uppörvun og staðfestingu á því að kannski væru einhverjir að lesa þessa blessuðu færlu mína í gegn (engin smá lengd skilurðu...)
En Guð blessi þig og endilega leifðu mér að fylgjast með ;)

Elsku Helga Vilborg mín... takk fyrir kommentið þitt... alltaf svo frábært að fá komment frá þér alla leið frá Afríkunni (pældu í því). Já ég man svo sannarlega eftir þínu söngdæmi að missa röddin og allt það, úff erfitt tímabil... ég vona að ég gangi ekki í gegnum það þannig en það hefur verið afskaplega erfitt tímabil í sambandi við sönginn hjá mér undafarið, en ég trúi því að þessi uppljómun frá Guði hafi verið byrjunin á lækningaferlinu í mínu tilfelli (vona það og trúi því bara). Takk fyrir að vera alltaf vona hughreystandi og frábær... heyrumst seinna ;)
Love you...

Blessuð Sibba og takk fyrir síðast! ;) Rosalega var gaman hjá okkur... hahahaha. takk fyrir kommentið á sönginn (og þið hinar tvær að sjálfsögðu líka, var dýrmætt fyrir mig) og ég fór á síðun þína og mér fannst alveg frábært það sem ég las.. og titillinn alveg frábær sem var einfaldur "Ég trúi á Guð" og svo innihaldið í færslunni alveg magnað... rosalega er dýrmætt að sjá þig í þessum hugleiðingum og veit ég að gleðitár falla úr augum Jesú og það er yndislegt. Haltu áfram að leifa Guði að dæla í þig og vertu dugleg að taka við...
Heyrumst bráðlega og endilega höfum samband...

Þið eruð frábærar!!!
Takk kærlega vel fyrir mig og láta mig vita af ykkur...

4:07 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég las bloggið! Ég vil bara eindregið hvetja þig í að gefast ekki upp í þinni göngu þó að hlutirnir ganga illa! Það er allavegana það sem ég hef feilað á frekar oft! Einhvers staðar heyrði ég að það væri djöfullegt að liggja en guðdómlegt að rísa upp. Og hey.... þú ert algjört gull, ég meina það af öllu hjarta!!! Ekki draga sjálfa þig niður...þú átt meira skilið!!

5:09 PM  
Anonymous Anonymous said...

he..he..takk jesús fyrir að vinna í henni ágústu minni :)

þú ert bara alveg frábær elsku stelpan mín..ert þú sem þú ert og engin önnur..við vitum alveg hvar við höfum þig..ja..alla vega fyrir rest..þú berst trúarinnar góðu baráttu sem er ekki auðveld og við vitum ekki alltaf hvað guð er að gera..en þú kemur alltaf inn á grundirnar grænum og upp á tindana..sterkari og vitrari en fyrr og ekki aðeins það..þú hefur alltaf hjálpað einhverjum öðrum í leiðinni..
ég er svo stolt af þér að ég er hreinlega...klárlega að springa..ef þú værir hér núna myndi ég knúsa þig svo fast að þú næðir ekki andanum :)
GO ÁGÚSTA!

8:48 PM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku Ágústa. Ég tek undir með öllum hér að framan. Er eitthvað andlaus akkúrat núna en langar svo að segja eitthvað fallegt við þig. Þú ert æði, sæt, alvöru pæja og yndisleg, syngur vel og ert sönn í því sem þú ert að gera og það skiptir máli. Þú sækist eftir því að vera með hreint hjarta þegar þú lofar Guð og það mættu margir taka sér til fyrirmyndar sem hafa þá ábyrgð að leiða okkur hin í lofgjörð til Konungs konunganna. Lovjúforever, þín Kolbrún

12:27 AM  
Blogger agusta said...

Takk fyrir kommentin elsku vinir mínir... þessi færsla var samt ekki til að biðja ykkur um að segja eitthvað fallegt um mig, heldur var tilgangurinn hennar að segja ykkur frá lausninni sem ég upplifði... EN engu að síður er ég mjög þakklát fyrir hrósið ykkar og það er alltaf gott að heyra eitthvað fallegt um mann ;) hahahahha

Á móti ætla ég að fá að tjá mig...

Tóti þú ert algjör gullmoli sjálfur. Heimurinn væri svo sannarlega ekki verri ef um fleiri Tóta væri að ræða, en ég er fegin að þú sért samt bara eina eintakið af því að þá ertu UNIK og það er frábært að vera einstakur og það ertu svo sannarlega. Guð blessið þig í baráttunni við lífið sjálft, það fer í hæðum og lægðum en sólin er ekki langt undan og svei mér þá að þú sért ekki bara orðinn útitekinn sem þýðir að sólin er komin...

Árný mín... þú ásamt mömmu minni eruð konurnar í lífi mínu. Uppörvunin sem þú ert er gífurleg og þú gætir ekki trúað því hvað þú hefur oft oft oft blessað mig og hitt í mark. Ég hlakka til að hitta þig og fá stóra knúsið. og eitt í viðbót... ég er ferlega stolt af því að vera lík þér, því að þú ert Guðskona og með sterkan karakter... fíla það í botn!!!
Elska þig ofboðslega mikið...

Kolbrún mín... ég sakna þín og fjöldkyldunnar þinnar svoooo mikið. Ég get bara ekki beðið eftir því að fara að lofa Guð með ykkur aftur... Það er eitthvað sem við gerum í framtíðinni, er alveg viss um það. Þú ert svo sönn og maður veit alltaf hvar maður hefur þig... svona eðal ákkurat pæja ;) og svo hlakka ég svo mikið til að sýna þér kettlinginn... ahhahahahahha það verður svo rosalega gaman að sjá ykkur í sumar, hlakkar svo til og svo hlakka ég enn meira til að koma í heimsókn til ykkar einhverntíman til útlandins ;)
þykir svakalega vænt um þig og bið að heilsa heim til þín...

6:01 PM  

Post a Comment

<< Home