Wednesday, February 15, 2006

Allt og ekkert.

Góðan og blessaðan daginn...

Bara eitt stutt og laggott blogg í dag, ég er að vinna alla þessa viku og því fer kannski ekki mikið fyrir bloggi hjá mér en kemur allt í ljós. ég ætlaði að láta mynd af Addý fylgja þar sem hún er á koppnum.. það er nefnilega það nýjasta að hún er ekki með bleyju á daginn en gerir þarfir sínar í koppinn og ég er svoooo stolt af henni og þetta er sparnaður út af fyrir sig.. já segðu!!!

Annað... Hún Álfheiður mín var að láta mig vita af því að það hefur enginn getað kommentað nema members only en nú er ég búin að breyta því svo að go creizy á kommentunum.. nei nei segi bara svona..

Ég er í skrítnu skapi í dag... svona nettur svefngalsi í kellingunni. Vakti í alla nótt nátturulega og svoleiðis og mun gera það alla vikuna, en það er í lagi... ég er að rembast við að klára að hekla barnateppi sem ég ætla að gefa Sæunni frænku minni sem fæddi 8 marka barn.

Jæja gott fólk (allavegana góða Álfheiður sem ég veit að kíkir á síðuna mína) bið að heilsa ykkur!

Galsakveðjur til ykkar frá mér...
Ágústa Ósk

9 Comments:

Blogger Álfheiður said...

Þú ert flott! Og það er svo gaman að lesa bloggið þitt og fylgjast með.
Kveðjur frá gömlu konunni í sveitinni.

5:19 PM  
Blogger Jasser said...

Hey, flott blogg! Ég er ánægður með þetta, ekkert blog.central kjeeeeftæði...;) ekkert diss samt við þá sem nota það....eeeee....já!
Og ég er sérstaklega ánægður með hvað þú ert farin að blogga mikið! Ég ef þér svona....tvo mánuði...;) Nei, grín...3 mánuði. En að öllu gríni slepptu, keep it up, ánægður með þig!

kveðja!

12:27 PM  
Blogger agusta said...

já Jasser það getur vel verið að þetta verði bara 1, 2, eða 3 mánuðir.. ég ætla bara að taka einn dag í einu...

Takk fyrir að kommenta og takk álfheiður mín.

2:59 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já þetta er allt annað! Nú er sko hægt að kommenta;)

2:57 AM  
Blogger Álfheiður said...

Hei!!! Mér finnst að það mætti vera "linkur" á mína síðu ...

4:32 PM  
Blogger agusta said...

hey... ég kann ekkert að gera það... Ég verð að læra það. Málið er að Siggi Þór gerði þessa linka fyrir mig fyrir tveim árum, svo að... bráðum Álfheiður mín ;)

11:38 PM  
Blogger agusta said...

Takk fyrir Helga Vilborg mín... mikið rosalega var gaman að sjá að þú sért enn að koma við hjá mér og takk fyrir uppörvunina! Takk takk takk... Já svo sannarlega kemur þú aftur í kórinn okkar og líður varla æfing að Óskar tali ekkert um þig, ég meina það, eða spyrji um þig eða eitthvað, svo að þitt pláss er svo sannarlega frátekið og kemur engin í þína skó þar. Þú ert yndisleg og mér þykir svooo væny um þig Helga mín!

Þín Ágústa

8:16 PM  
Anonymous Anonymous said...

Sæl, heyrðu...talandi um börn....þá var ég að lesa grein í lifandi vísindi og þá var ein greinin einmitt um fyrirbura. Þá hafði sem sagt eitt barn fæðst 25cm og 250g...frekar lítið. Allavega...fróðleikur!
Kv. tóti

10:28 PM  
Blogger agusta said...

Takk fyrir þetta Tóti.. alltaf gaman að fá svona óvæntan fróðleik ;) Þú er flottur...

Síjú

9:04 AM  

Post a Comment

<< Home