Thursday, February 23, 2006

Ekki fyrir viðkvæma!!!!!!!!!!



Komið þið sæl og blessuð...

Þetta eru fallegu og saklausu börnin mín! Aron Elí 7 ára og Árnheiður Ósk 2.5 árs. Mér finnst svo notalegt og gott að vita að þau séu bara börn og séu saklaus... því rak mér í rogastans (segir maður það???)við upphringingu sem ég fékk um daginn. Í símanum var Elli pabbi hans Arons Elís og var með upplýsingar fyrir mig sem ég vildi að ég hefði ekki þurft að fá (ég er samt ánægð með að hafa fengið þær, en ég vildi að svona þurfi ekki að gerast!!!!!!!!!!) Ég minni á að þetta er ekki færsla fyrir viðkvæma og orðbragðið verður ekki með snyrtilegu móti.

Það er sem sagt drengur í bekknum hans Arons Elís sem var að fræð Aron Elí (saklausa barnið mitt) og annan um alls konar... m.a. tott og homma!!!!! Þessi strákur sagði þeim hvað væri að totta (ég minni á að þetta er bekjarbróðir hans) og sjálfur sagðist hann vera hommi og ætti kærasta og eftir skóla ætluðu þeir að fara að totta hvern annan!!!!!!!!!! JÁ FÁIÐ SJOKK!!!! ÉG FÉKK ÞAÐ!!! Ekki nóg með það en hann sagði Aroni Elí að segja JÁ og Aron Elí gerði það og þá sagði strákurinn "núna átt þú að totta mig" og Aron Elí neitaði en þá sagði strákurinn við hann að hann hafi sagt já og hann YRÐI að gera það. En Aron Elí var með skynsemi og setti puttana í eyrun og labbaði í burtu... SEM BETUR FER. Elli fékk að heyra þetta um seinustu pabbahelgi og sagði mér sem sagt frá þessu... úffffff

Nú var málið að við Ingvar tækju son okkar 7 ÁRA í kynlífsfræðslu!!!!!!!!! Við settumst niður með barninu okkar og sögðum honum frá því að við vissum um þetta og hvort hann vildi tala um þetta og hann opnaði sig upp á gátt... Hann talaði og talaði og spurði og spurði t.d. -þarf maður að RÍÐA til að eignast börn!!!!!- (er það nú subbulega orðað, en svona orðar þessi strákur hlutina!) og ég sagði "já maður þarf að stunda kynlíf til þess" og þá sagði hann "þarf ég að gera það þegar ég verð 12 ára???" (þá ætlaði þessi strákur að totta fram að 12 ára aldri og fara þá að ríða!!!) Aron Elí var frekar stressaður og sagðis ekkert kunna þetta (ÞAÐ ER KANNSKI EKKI SKRÍTIÐ ENDA BARA 7 OG ÉG ENDURTEK 7 ÁRA, pælið í hvað er verið að leggja á börn... hann er komin með kynlífsáhyggjur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég meina það!) Við sögðum honum að 12 ára væri allt of ungt og hann þyrfti ekkert að hafa áhyggjur af þessu. Kynlíf væri bara fyrir fullorðna en ekki börn og unglinga. Hann færi ekki að stunda kynlíf fyrir en hann væri búin að eignast konuna sem Guð ætli að gefa honum og þá yrði það allt gott. En eins og er er það ekkert fyrir hann að hafa áhyggjur af. Og svo komum við aðeins inn á kynferðislegt ofbeldi (fyrst við vorum á þessum nótum) og sögðum honum að það mætti ENGINN ENGINN snerta á honum typpið eða knúsa hann nema hann vildi sjálfur. Hann væri orðinn nógu stór til þess að þvo sér sjálfur, klæða sig sjálfur og þurka, hann þyrfti enga hjálp og svo sagði ég honum að ef einhverntíman hann lenti í þannig aðstæðum að einhver vildi að hann gerði eitthvað sem hann vildi ekki og hann væri búinn að segja nei en viðkomandi hlustaði ekki, þá ætti hann bara að sparka í manninn og forða sér út!

Svo báðum við saman og hann bað sérstaklega fyrir þessum strák (án þess að við stungum upp á því, hann fann það bara að hann þyrfti á fyrirbæn að halda, gott hjá honum og gott hjá Guði að hjálpa honum og láta Aron Elí vita að það væri ekki allt eðlilegt í kringum þennan strák).

Ég ætla að láta þetta gott heitið í dag. Vonandi misbauð ykkur ekki við þessa lesningu en ég hvet ykkur til að spjalla við börnin ykkar áður en einhver annar gerir það!!!!

Love you ... Ykkar Ágústa Ósk

9 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Já, þetta er nú ljóta málið. Að reyna að halda í sakleysi barna okkar er bara mkikið mál! En þetta fór nú vel sem betur fer!
vildís

12:38 AM  
Blogger Oddur said...

Sonur ykkar er náttúrulega snillingur sem lætur ekki plata sig útí einhverja vitleysu. Spurning hvort strákurinn sem var að segja honum frá þessu hafi ekki lent í einhverju vafasömu. Annars veit maður ekki hvað svona krökkum dettur í hug. Ég myndi allavegana tilkynna kennaranum þeirra þetta eða eitthvað álíka.

8:53 AM  
Blogger agusta said...

Já Oddur ég var einmitt að hugsa það sama... t.d. af því að hann sagði Aroni Elí að segja já áður en hann vissi neitt við hverju hann var að segja já við, og svo af því að hann var svo æakveðin að Aron Elí mætti ekki breyta um skoðun (hann var búin að segja já við þessu) einhverstaðar er maður hræddur um að hann hafi lært þessa aðferð!!! En takk fyrir kommentin :) Gaman að sjá ykkur hérna :) :) ´

Já Aron Elí er yndislegur og algjööör snillingur!!! og það er hræðilegt hvað sakleisinu er ógnað snemma!

3:24 PM  
Anonymous Anonymous said...

Sæl Ágústa,
Því miður er það nánast alveg öruggt að þessi strákur hefur verið misnotaður kynferðislega, þetta er hrikalegt.
Ég myndi tilkynna skólayfirvöldum þetta, þetta er mjög alvarlegt. Guð blessi ykkur, kær kveðja, Kristín Jóna Helga Guðna kona :) (www.xanga.com/kristinjona)

1:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég þakka þér Drottinn minn fyrir það hver þú ert. Ég þakka þér fyrir Aron Elí og þá áætlun sem þú hefur fyrir líf hans. Þakka þér fyrir að hann er nú þegar stiginn inn í þessa áætlun og hann mun verða, heilbriðgur maður sem óttast þig og þjónar þér af heilum hug hjarta. Þakka þér fyrir konuna sem þú ætlar honum og fyrir góðu foreldrana hans. Gefðu þeim áframhaldandi visku og vísdóm í uppeldinu. Í nafni konungs konunganna AMEN!!!!!!!!!
Efesusbréfið 6:12
Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum.

Þetta er alveg svakalegt og ber að tilkynna viðeigandi aðilum. Það er einhver að klikka einhversstaðar varðandi þennan vesalings dreng. Biðjum að hann megi öðlast lækningu og um leið bindum við, í Jesú nafni, allar tilraunir óvinarins til að nota þennan dreng til að særa blygðunarkennd saklausra barna.

4:43 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já, það virðist allavega vera ekki í lagi með strákinn, kannski eitthvað að heima...maður veit ekki.

6:12 PM  
Anonymous Anonymous said...

þetta er meira en rosalegt..guði séu þakkir fyrir að hafa komið þessu upp á yfirborðið...gott að vita að hann sér um sína...
það er nokkuð víst að þetta er ekki eina barnið sem á í svona vandræðum..
ég vona ágústa að þú látir skólavöld vita til að þessi blessaði drengur fá kannski einhverja hjálp..og aðrið verði ekki fyrir því að lenda í þessari snöru..

11:21 PM  
Blogger agusta said...

Takk allir fyrir kommentin ykkar... Takk fyrir bænina Kolbrún, hún snart mig og takk fyrir bænirnar allir sem hafið beðið fyrir okkur og líka þessum strák.

Kristín Jóna Helga Guðna kona.. gaman að sjá kommentið þitt (með það í huga að þú hafir kíkt á síðuna mína, ekki það að strákurinn hafi líklega verið kynferðislega misnotaður að sjálfsögðu) og ég var þokkalega lengi að átta mig en þegar ég las hægt þá gekk þetta (fannst þetta ofsalega langt og flókið nafn ;) ) en bið að heilsa Helga og Guð blessi ykkur þarna úti.

Árný mín takk fyrir uppörvunina, ég gat ekki þagað, fannst það ekki rétt. En auðvitað sjokkerar þetta suma en það verður bara að hafa það! Þetta mál er sjokkerandi og ég hef ekki sungið mitt síðasta í sambandi við kynferðismál og veit ég að margt mun sjokkera marga en ég ætla að vera djörf og gera það sem Guð hefur lagt mér á hjarta.

Ég ætla að tala við skólan á miðvikudaginn (það er frí núna) og láta þau vita... svo veit ég ekki meir með þetta, nema bara að halda vel utan um strákinn minn.

Takk fyrir öll þið, þið eruð dýrmæt! Kær kveðja Ágústa Ósk

1:03 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þetta er nú alveg svakalegt!

8:37 PM  

Post a Comment

<< Home