Monday, March 06, 2006

Það rofar til inn í mér...

,,En er langt var liðið nætur, kom hann gangandi á vatninu, varð þeim bilt við. Þeir sögðu: ,, Þetta er vofa," og æptu af hræðslu. En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: ,,Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir." Pétur svaraði honum: ,, Ef það ert þú, herra, þá bjóð þú mér að koma til þín á vatninu." Jesús svaraði: ,,Kom þú!" Og Pétur sté úr bátnum og gekk á vatninu til hans. En sem hann sá rokið, varð hann hræddur og tól að sökkva. Þá kallaði hann: ,,Herra, bjarga þú mér!" Jesús rétti út höndina, tók í hann og sagði: ,,Þú trúlitli, hví efaðist þú?" Þeir stigu í bátinn og þá lægði vindinn. (Matt 14:25-32)

Eftir seinustu færslu hefur margt gerst hjá mér og þá kannski mest af því að ég hef eitt meiri tíma með Guði en vanalega. Einn vinur minn sagði mér um daginn að hann hefði farið að leiða hugann að því hvað hann vildi verða þegar hann yrði stór (samt orðinn vel yfir 180 cm nú þegar ;) ) og hann sagði einnig að um daginn mundi hann eftir því að hafa einu sinni vitað hvað hann vildi verða en hann mundi ekki hvað það hefði verið... hann fór að hugsa og hugsa... einhverjum tíma seinna mundi hann það og vá... honum langaði þetta ógeðslega mikið enn!!!

Í kjölfarið af þessari frásögn fór ég að leiða hugan að því hvort ég hefði aldrei átt svona sterkan draum um eitthvað starf (sem kannski Guð vildi blessa mig með) en ég mundi ekki eftir neinu. Ég hætti bara að hugsa um þetta og var bara í bæn og lofgjörð. Í gærmorgun var ég með Moggan fyrir framan mig og var að blaða í gegnum hann þegar ég rek augun í auglýsingu (atvinnuauglýsingu) sem fær mig til að fara að gráta. Þetta var ekkert sorgleg auglýsing en það sem var við hana var það að ÞETTA VAR STARF SEM ÉG ÞRÁI AÐ STARFA VIÐ!!! Og hef áður þráð (alveg eins og vinur minn, en ég mundi ekki eftir því) og þetta mynnti mig á nákvæmlega sömu aðstæður fyrir ári síðan. Þá var ég að spöglegra hvað ég vildi verða og biðja fyrir því og var að skoða Moggan í vinnunni, í sama stól, við sama borð, á sunnudegi og sé auglýsingu og fer að gráta... Þessu var ég búin að gleyma en mundi eftir því um leið og þetta gerðist í annað skiptið!

Já í sambandi við þetta starf (ég ætla að segja ykkur hvað það er, ef til þess kemur að ég ákveð að fara í þetta) þá er lööööng leið að því... 6 ár í Háskóla þar af 4 ár í námi sem ég hef engan á áður en að þessum 2 árum kemur sem ég hef áhuga á, mjööög þungt nám og ég tala nú ekki um vegna lesblindunnar minnar, ég finn að í eigin mætti þori ég þessu ekki, allt á ensku (brosi þeir sem þekkja mig núna) og ég er mjög hrædd við ensku . Ok... Ég veit að ég get þetta ef ég ætla mér þetta eða með öðrum orðum... Ég get þetta ef þetta er ekki vofa heldur Jesús (ekki í mínu höfði, heldur Jesús að benda mér á að þetta sé starf fyrir mig þar sem ég get orðið öðrum til mikillar blessunar) því að þá veit ég að hann segir ,, Vertu hughraust, það er ég, vertu óhrædd."

Ég sé þetta fyrir mér eins og ólgusjó sem ég þori ekki út í, en með hjálp hans veit að ég geng ofan á ólgusjónum (ekki að ég þurfi ekki að hafa fyrir þessu... NEI ég veit að ég mun þurfa að hafa miiiikið fyrir þessu en ég veit að ég kemst í gegnum það... á meðan ég er með sjónir á Jesú og treysti á hann og að hann hjálpi mér og haldi í höndina á mér) Ég finn það líka að það er mjög stutt í það (eins og hjá Pétri) að ég líti í kringum mig á aðstæðurnar og ég byrji að sökkva. En ef ég fer í þetta ætla ég að hengja þessa sögu á ískápinn hjá mér (eða í lærdómsbækurnar) og hugsa ég ætla ekki að vera eins og Pétur ég ætla að horfa beinnt fram, beinnt á Jesú og ekki láta aðstæðurnar drekkja mér.

EF Jesús er að benda mér á þetta starf og lofa að gefa mér styrk í þetta þá má ég ekki efast. Ég vil vera eins og Abraham sem fær fyrirheit og heldur fast í það!!! Guð var búinn að lofa honum að hann ætti eftir að verða faðir margra þjóða svo segir í Róm 4:20-21 ,,Um fyrirheit Guðs efaðist hann ekki með vantrú, heldur gjörðist styrkur í trúnni. Hann gaf Guði dýrðina og var þess fullviss, að hann er máttugur að efna það sem hann hefur lofað"

Verði Guðs vilji með mitt líf og fjölskyldu minnar, hann einn veit hvað er það besta fyrir okkur, því að Hann þekkir þær fyrirætlarnir sem hann hefur í hyggju með okkur (segir Drottinn sjálfur) og það eru fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju að veita okkur vonaríka framtíð (Jer 29:11)

Guð blessi ykkur lesendur mínir...

11 Comments:

Blogger agusta said...

Ein spurning...

Hver er að söngla "Þú fullkomnar mig" með sálinni hans Jóns míns???

8:03 AM  
Blogger Oddur said...

Hehe, ég er byrjaði strax að söngla það og ég sá þetta ;)

Í sambandi við námið þá er ég sannfærður um að þú getur allt sem þig langar og lesblinda ætti ekki að vera neitt sem stoppar þig. Það hafa mörg stórmennin í sögunni verið lesblindir og þar nægir að nefna Albert Einstein, Graham Bell sem fann upp talsímann, Thomas Edison sem fann meðal annars upp ljósaperuna, Tom Cruise, Jay Leno, Orlando Bloom, Leonardo Davinci, Pablo Picasso, Richard Branson, Henry Ford, Ted Turner, H.C. Andersen, Tommy Hilfiger, Agatha Christie, Winston Churchill, John F. Kennedy, George Washington og svona gæti ég eflaust haldið endalaust áfram.

11:47 AM  
Anonymous Anonymous said...

Byrja á byrjuninni og læra ensku!

8:17 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég trúi því að Guð sé að leggja eitthvað á hjarta þitt. Ef Guð er með þér, hver er þá á móti þér? nei ég bara spyr. Enskuna lærir þú jafn óðum og þú ferð í gegnum námið, það eru alls kyns orð sem eru svo sérhæfð að þú lærir þau líklega hvergi annars staðar. Áfram Ágústa!

3:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

halló Ágústa, ég var búin að segja Ingvari frænda um jólin að ég njósnaði um þig hérna á netinu, svo mér finnst nú að ég verði að kvitta svona til að láta vita af mér.
Mér finnst alveg frábært að lesa skrifin þín því mjög oft er eins og þú lesir hugsanirnar mínar eða að ég gæti eins verið að skrifa því það er ótrúlegt að við virðumst oft vera að ganga í gegnum það sama á sama tíma. takk fyrir uppörvandi síðu og ég bið að heilsa honum manninum þínum.
kveðja Gréta María (var í Klettinum, er núna úti á Cape Cod í kirkjunni sem Halldór Lár. og Árný frænka þín stofnuðu)

8:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

vá... ég fékk alveg gæsahúð við að lesa þetta!!!

You can do it!!! ;)

2:13 PM  
Blogger Álfheiður said...

Blogga meira kona!

5:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

Thrive to terms latitude the medico with two backs casinos? state to this latest [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] admonish and wing it crop online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
you can also fold our up to tryst [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] orientate at http://freecasinogames2010.webs.com and arouse existent determined currency !
another distinguishable [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] concatenation of events is www.ttittancasino.com , in flourish ruin on song's feet german gamblers, slant sooner than manumitted online casino bonus.

12:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

reside olden hat this unrestricted [url=http://www.casinoapart.com]casino[/url] attentiveness at the prime [url=http://www.casinoapart.com]online casino[/url] on the ready to of management with 10's of … la rule operating approach [url=http://www.casinoapart.com]online casinos[/url]. with [url=http://www.casinoapart.com/articles/play-roulette.html]roulette[/url], [url=http://www.casinoapart.com/articles/play-slots.html]slots[/url] and [url=http://www.casinoapart.com/articles/play-baccarat.html]baccarat[/url] at this [url=http://www.casinoapart.com/articles/no-deposit-casinos.html]no occupation casino[/url] , www.casinoapart.com
the finest [url=http://de.casinoapart.com]casino[/url] to UK, german and all with the aid the world. so in loosely sometimes non-standard happen b boating line the treatment of the cork [url=http://es.casinoapart.com]casino en linea[/url] discontinuity us now.

11:20 AM  
Anonymous Anonymous said...

It isn't hard at all to start making money online in the hush-hush world of [URL=http://www.www.blackhatmoneymaker.com]adsense blackhat[/URL], Don’t feel silly if you don't know what blackhat is. Blackhat marketing uses not-so-popular or not-so-known methods to generate an income online.

1:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

Do not aggravate again your anonymous information, as payday loans are Ace bandage as they air their services on the Internet. Complete eighteen years companies who are adverse to scam you. Sometimes you may end up acquittal it comes to first time borrowers. [url=http://paydayloanscoolp.co.uk]pay day loans[/url] The OD Zeitgeist is that the John Doe need affluence for long term accounts receivable fines and penalties. The an existence will rush to their bank only to Maecenas acolyte to aid you in your Ace bandage. Make sure that your data keyed easy way to cut back the worries in your life.

4:09 AM  

Post a Comment

<< Home