Á léttari nótum.
Sælt veri fólkið!
ÉG fór í óperuna á sunnudagskvöldið sem var alveg gríðarleg skemmtun. Ég, mamma og Árný fórum saman að sjá Öskubusku. Aðalhlutverkið lék hann Garðar Thor og svo var hann Bergþór Pálsson í einu af aðalhlutverkunum líka og var hann mjöög fyndinn í sýningunni. Á tímabili var þetta mjög fyndið og svo var á hinum tímabilunum svo geggjaður söngur (reynar allan tíman) að ég fór að velta því alvarlega fyrir mér að langa að syngja svona... hvenrig hljómar það, Ágústa í óperu??? veit ekki, bara veit það alls ekki en mig langar að prufa það í söngkúrsinum sem ég er að fara að byrja í á mánudaginn næsta... íííks, mjööööög spennandi það. Ég er sem sagt að fara í árs diplóma nám í söng þar sem röddin verður tekin algjörlega í nefið (samt ekki gegnum nefið eða neitt svoleiðis) allskonar stílar og fínerí (og m.a. er ég búin að ákveða að prufa óperu). Svo er Kristjana Stefánsdóttir að fara að kenna mér í FÍH og verður það líka algjört dúndur!!! Hey.. svo ég klári Öskubusku kvöldið, þá sá ég tvo í sýningunni sem ég þekki. Annar þeirra er Þorri og var hann mjög flottur þarna og svo Áskeir Páll sem var nú bara algjör snillingur, þeir voru báðir í kórnum sem var hluti af leiksýningunni og var geggggjaðslega flottur! Ég segi bara takk kærlega fyrir kvöldið kellur og vonandi höldum við áfram að vera svona gífurlega menningalegar og ef við förum aftur í óperuna, þá prufum við að vera uppi næst (til að sjá textan án þess að fá svaka hálsríg... ok?) og biðjum fyrir þessu þarna sem við töluðum um í hléinu og vonandi opnar Guð dyr fyrir okkur með það ;) ;)
En með kynferðismálið, þá ætla ég að hringja í skólan á miðvikudaginn og tala við stjórnvöld þar og ég læt ykkur vita hvað gerist!
Heyrumst!!!

6 Comments:
hæ ágústa mín og takk fyrir frábært kvöld frá a til ö..maturinn á ruby tuesday var æði..þið mæðgurnar sáuð til þess að ég gat breytt algjörlega um andrúmsloft sem ég var í þörf fyrir..
óperan var mjög góð og ég er sammála öllum þínum kommentum um leikara og söngvara...
já..við biðjum fyrir máli málanna og sjáum hvað kemur út úr því..takk fyrir að vera þú og vera í lífi mínu sem algjör blessun..
Takk sömuleiðis Árný mín. Þú ert líka alveg svakaleg blessun inn í mitt líf og ég þakka Guð fyrir þig og manninn þinn! Takk takk takk.
Þín Ágústa
Ég vil einnig þakka fyrir yndislegt kvöld þegar við fórum þrjár að sjá ÖSKUBUSKU það var yndislegt - við gerum þetta pottþétt aftur.
Þín mamma
hahhahahhahahahaha já einmitt mamma mín. Öskubuska var það!!! ahhahahahah vá hvað ég ruglaðist þarna... !!!
Já takk elsku mamma mín fyrir kvöldið. Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir þig og vináttu þína, þú ert svooo dýrmæt og mikil vinkona! Ég elska þig...
Þín...
hahhahahhahahahaha já einmitt mamma mín. Öskubuska var það!!! ahhahahahah vá hvað ég ruglaðist þarna... !!!
Já takk elsku mamma mín fyrir kvöldið. Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir þig og vináttu þína, þú ert svooo dýrmæt og mikil vinkona! Ég elska þig...
Þín...
Rosalega er ég spennt að vita hvernig þér líkar Kristjana Stef.hún er ein sú flottasta að mínu mati og geggjaður karakter. Frábært að þú skulir geta prófað hina ýmsu stíla, þetta verður algjört ævintýri fyrir þig;)
Knús í krús, Kolbrún
Post a Comment
<< Home