Er á lífi...
Jæja... bara svona að láta vita að ég er á lífi... þetta hefur verið rosalega erfiður tími, heilsan mín er eitthvað að gefa sig og þess vegna hef ég látið tölvuna bara alveg í friði og ég er bara að reyna að ná þessu úr mér. Er frekar svekkt yfir að vera 27 ára með heilsu á við 72 ára... Guð er að vinna og ég verð bara að treysta því að þetta hafi einhvern tilgang sem ég mun skilja eftir smá stund. Ég þarf bara að fara að gera eitthvað heilbrigðara en að vinna á nóttunni það er ekki að fara vel með mig og fara að hreyfa mig, borða hollari mat og eitthvað.
Jæja ég hef ekki orku í meira...
Guð blessi ykkur og þið megið hafa mig og fjölskyldu mína í bænum ykkar.
Takk fyrir og sjáumst...
Ykkar Ágústa

3 Comments:
Hæ Ágústa.
Ég vona að þér fari að líða betur og náir fullri heilsu.
Ég hef þig og fjölskylduna þína í bænum mínum.
Kv. Sibba
Við biðjum fyrir þér hérna á Austurlandinu
Takk stelpur.. þið eruð yndislegar... mér líður betur ;)
Love you!
Post a Comment
<< Home