Monday, May 01, 2006

Stjörnuspá???

GÓÐAN DAGINNNNNN!

Já dagurinn í dag er góður dagur, því að við getum ákveðið það. Við getum líka ákveðið að dagurinn í dag verði ekki góður. Það sem hafur verið mér hugleikið undanfarið er hvað við höfum mikið að segja um hvernig dagarnir, kringumstæður og athafnir daglegs lífs ganga fyrir sig. Með jákvæðu hugarfari getum við horft á það sem kemur fyrir okkur sem tækifæri til að þroskast og verða sterkari persónur. En með neikvæðu hugarfari getum við verið gjörsamlega ónýt og jafnvel leiðst út í þunglyndi. Við höfum alveg svakalega mikið um það að segja...

Hvernig hugsum við... hugsum við að það gerist aldrei neitt gott fyrir mig?
- Börnin mín eru að vera veik (þó svo að þau gráti smá eða eru bara hreinlega óþekk, finnum við þá alltaf afsökun fyrir náungan og segjum að við höldum að börnin séu að verða veik???? og með því þá tölum við veikindi inn í líf barnanna okkar!)
- Hugsum við að ég verð að búast við því versta svo að ég verði ekki fyrir vonbrygðum?
- Þegar eitthvað slæmt gerist fyrir okkur... segjum við ,,Týpíst ég er aldrei heppin" eða ,, þetta er alveg dæmigert fyrir mig, það gerist aldrei neitt gott hjá mér"
og lengi mætti áfram telja.

Ég fer stundum inn í mjög neikvæðar hugsanir og finn ég rosalegan mun á mér við það... allt verður svo mikið erfiðara og það er svo svart framundan... En nú er ég á fullu að taka til í huganum mínum... hverju leifi ég að dvelja í huganum á mér??? Allavegana er ég að gera mitt besta til að hafa það jákvætt.

Við eigum svo sannarlega að búast við því besta úr lífinu
Við eigum að búast við því besta frá fólkinu í kringum okkur... ekki ætla því að það sé að gera okkur mein og tala illa um okkur... Ég á svo rosalega auðvelt með að gera fólki upp hugsanir og þá eru þær yfirleitt neikvæðar... ,, hann er örugglega að hugsa hvað ég sé léleg í þessu eða hinu" eða ,, hún vonar kannski að mér mistakist" eða eitthvað annað... pælum aðeins í því hvernig við búumst við að fólk hugsi um okkur, því að það er kjörið tækifæri til að byrja jákvæða ferlið... s.s. að ætla fólki ekki það neikvæða!

Svo eitt í lokin í sambandi að búast við að dagurinn verði góður og ekki vera að vænta þess að allt fari úr skorðum... þá myndi ég ráðleggja þeim sem lesa stjörnuspár að hætta því. Ég sá grein í Nýju lífi um konu sem er fíkill á stjörnuspá... hún lætur stjörnuspá stjórna lífinu sínu... en hvernig bregst hún við þegar hún fær svona setningar...
- Þetta er ekki þinn dagur og hugmyndirnar koma frá öðrum en þér (hún mun ekki einu sinni reyna að fá hugmyndir...)
- Útlit er fyrir ósamkomulag og jafnvel rifrildi á heimilinu. (við getum bókað ósætti... því að hún býst við því!)
- Mikil spenna er í loftinu og erfitt getur reynst að ná samkomulagi (hún býr til spennuna sjálf með því að vera búast við henni)
- Einhverjir erfiðleikar eru í ástarsambandi þar sem þér finnst ást þín ekki vera endurgoldin. Þú gerðir rétt í því að reyna eitthvað nýtt. (best að hætt með honum, næsti hlýtur að verða betri en þessi... stjörnurnar segja mér það, borgar sig ekkert að reyna að vinna í málunum)
- Grár hversdagsleikinn er heldur leiðinlegur um þessar mundir. (Hvernig væri að reyna að finna upp á einhverju skemmtilegu til að gera hversdagsleikan skemmtilegri, frekar en að sætta sig við að þetta af því að stjörnurnar segja að þetta sé bara svona)
-Einhver hefur í hyggju að komast fram fyrir þig á ákveðnum vettvangi og þú mátt hafa þig allan við að halda stöðu þinni. (einmitt það sem ég var að segja áðan... að gera öðrum upp hugsanir og neikvætt viðhorf... við getum bókað það að viðkomandi sem fær þessa stjörnuspá verður tortryggin við náungan)
-Þú gengur í gegnum erfitt tímabil í sambandi sem að venjulega er mjög gott. Nýjar hugmyndir koma fram síðari hluta dags. (best að vera vakandi fyrir því sem er venjulega gott en verður erfitt í dag... en verst að ég get ekki fengið nýjar hugmyndir þangað til seinni partinn... vonandi fer þetta ekki að ganga illa fyrir en í kvöld svo að ég geti gert eitthvað í málunum, því að ég er alveg geld þangað til!)

Tek það fram að þetta er alvöru stjörnuspá sem ég fann á netinu fyrir nokkur merki fyrir daginn í dag 1. mai... þetta er ekki eitthvað sem ég er að búa til... Mér finnst þetta persónulega ekki jákvætt...

ÉG hef ekki meira að segja nema Guð er góður og elskar okkur svo mikið og þráir að gefa okkur GÓÐAR gjafir og þráir að hjálpa okkur að snúa öllum málum upp í jákvætt og uppbyggilegt fyrir okkur.... BÚUMST VIÐ ÞVÍ!!!!!!!!!!!

Bestu kveðjur
Ágústa Ósk Óskarsdóttir

13 Comments:

Blogger Álfheiður said...

Flott innlegg frá þér! Ég hef einmitt verið mikið að hugsa um þetta undanfarna daga. Hugsa jákvætt og tala jákvæða hluti inn í líf okkar og okkar nánustu. Haltu áfram að blogga Ágústa mín, það gefur mér mikið ;)
Love you

8:26 AM  
Blogger agusta said...

Takk Álfheiður mín...

Þú gefur mér líka alveg gífurlega mikið og er ég svo þakklát fyrir þig og þína...

Elska þig voðalega mikið.

Þín Ágú

8:56 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þú ert alveg ótrúleg. það bregst varla að þegar ég kíki við á síðunni þinni þá er þar eitthvað frá þér sem talar beint inn í mínar aðstæður og gefur mér nýja sýn á það sem ég er að fást við. Það var svo gaman að rekast á þig í kirjunni um daginn og þó svo að við höfum ekki verið í sambandi lengi lengi þá þykir mér alltaf svo vænt um þig. Guð blessi þig litla mín og takk fyrir mig.
Kveðja Sigrún

5:37 PM  
Blogger agusta said...

æææ hvað er frábært að heyra frá þér Sigrún mín... já það var yndislegt að hita þig upp í kirkju og það fyndnasta var að það var eins og við hefðum ekki verið aðskildar í 5 ár... það var í raun bara eins og við hefðum sést í gær...

Það væri svo gaman að hafa meira samband og hittast...

þykir vænt um þig..

Þín vinkona ágústa

12:17 AM  
Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir gott blogg... talaði mikið til mín...sjálfur er ég mjög neikvæður...bíst alltaf við því versta, takk fyrir gott spark í rassinn!:)

7:43 PM  
Blogger Glimmergella said...

Hæ Ágústa mín.
Alveg sammála því sem þú ert að tala um hérna, Íslendingar sérstakleg láta svooo oft stjórnast af neikvæðni og svartsýni og gera sér ekki einu sinni grein fyrir því sjálfir, og eitra með því allt í kringum sig. Ég held að allir hafi gott af smá sparki í rassinn í þessum efnum.

Verð að segja að það var rosa gaman að hitta á þig í dag .. þá sjaldan :)

Bestu kveðjur
Dóra

9:13 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ Ágústa.
Flott færsla hjá þér og svo sönn.
Kveðja, Sibba

8:07 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hae, elsku Agustan min!!!
Frabaert blogg hja ter og god hvatning til okkar Islendina ad hugsa jakvaett. Gott hvernig tu talar alltaf ut ur lifi tinu inn i lif okkar hinna.
Mer tykir svo ogurlega vaent um tig og hlakka til ad sja tig tegar eg kem aftur heim. Er einmitt ad lesa bok eftir konu fra Astraliu m.a. um tad hvad Gud er godur og vill okkur bara vel og eg for ad paela i tvi hvort ad dimmir dagarnir a Islandi hafi ahrif a ad vid buumst vid tvi versta og hvort ad folk i solskinslondum se almennt jakvaedara... gaeti verid bull. Gott ad eiga Jesus sem lysir upp myrkrid i salu manns.
Allaveganna, tu ert frabaer penni og eg er svo takklat fyrir vinattu tina. Tu ert einstok!!
Knus i poka, Ingunn

1:59 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ Ágústa mín! Mikið hjartanlega er ég sammála þér! Þetta efni með jákvæðni og neikvæðni í garð okkar sjálfra og annarra hefur verið mér afar hugleikið síðan í fyrravor. Ég veit ekki hvort þú sást greinina sem ég skrifaði á heimasíðuna mína um daginn, þú hefðir gaman af að lesa hana. Guð blessi þig! og ykkur! Hér er linkurinn á fréttina. Knús í krús;) Kolbrún
http://www.agust.org/CommunityStarterKit/Frettir/1821.aspx

2:21 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hóst hóst, ég aftur! Linkurinn kom ekki inn í commentinu sem ég setti inn áðan, reyni aftur núna!

http://www.agust.org/CommunityStarterKit/Frettir/1821.aspx

2:30 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hóst hóst hóst, ég enn og aftur! Hey linkurinn vill ekki birtast eins og hann á að gera þannig að ef þú vilt kíkja á þetta ferðu bara inn á síðuna okkar og smellir á fréttina "Sumarkveðja og pælingar". Hætti þessu nú, over and out! Kolbrún;)

2:33 AM  
Blogger Álfheiður said...

... hún á afmæli hún Ágústa ...

Til hamingju með daginn mín kæra.

8:56 PM  
Blogger agusta said...

Takk fyrir þetta Álfheiður mín;) mér þykir svo vænt um þig trausta vinkona.


Ingunn gaman að heyra í þér þar sem þú ert þarna hinum megin við hnöttinn... frábært og gangi þér vel, njóttu þess í botn að vera í sól og sumari ;) Elska þig.

Kolbrún mín ég hlakka til að lesa greinina þína og ég hlakka enn meira til að hitta þig í eigin persónu og smitast af þér (gleði og karakter Guðs í þér) því að við smitum alltaf hvort annað af hverju sem er gleði og fílu hahahahah love from me yo you.

10:10 PM  

Post a Comment

<< Home