Wednesday, April 12, 2006

Allt að koma...

Góðan dagin gott fólk...

Í fréttum er þetta helst...

Mér líður miklu betur, er núna á því tímabili sem hitinn er að læðast út úr líkamanum og skilur eftir sig raka þegar hann fer út um dyrnar skiljiði... þetta var pent orðað, sumir hefðu sagt, ég svitna eins og svín á þessu tímabili, en ekki ég því að ég er svo mikil dama ;) En hvernig er það fyrst ég er að blanda svínum í umræðuna.. svitna þau??? og annað... er ekki merkilegt að af öllum dýrum er hjartað í svínum líkast okkar!!! Hvaða kaldhæðni er það Guð? Ég bara spyr.

Í öðrum óspurðum fréttum... óspurðum og ekki óspurðum... ja með því að kíkja á síðuna mína þá eru þið í raun að óska eftir fréttum frá mér... sem sagt í öðrum fréttum er þetta helst og gleðilegast að ég er að fara að hætta í vinnunni minni... jeiii... reyndar er þetta æðisleg vinna en batteríið mitt var bara búið og ég er búin að vera á einhverjum aukaforða (sem er líka búinn) í langan tíma... en nú get ég bara talið niður og ég skal segja ykkur það að það eru 12 næturvaktir eftir! Til hamingju Ágústa að þú fæddist hér! Eins og þið sjáið er ég mjög sátt við þetta... og gleymi því alveg að ég veit ekkert hvað ég er að fara að gera.. en ég treysti Guði... ég ætla að tékka á nokkrum hugmyndum og ef þær ganga ekki þá er GUð með eitthvað annað og betra fyrir mig og fjölskylduna mína.

JÆJA... Páskarnir bara að koma, átti yndislegt spjall við Aron Elí í gær um páskana og allt sem gerðist þá... fyndið hvað spurningarnar verða þroskaðri frá ári til árs og hann er kominn með svo djúpan skilning á fagnaðarerindinu.... hann er í svona Biblíufíling núna, langar að vita meir og meir gjörsamlega þyrstir eftir meira.

Um daginn var ég að syngja lag sem heytir ,,Hold me now" og Aron Elí spyr "hvað ertu að syngja, hvað þýðir þetta" ég segist ætla að segja honum það þegar ég væri búin að bursta á honum tennurnar og við komin upp í rúm. Svo þegar hann er lagstur sit ég hjá honum og syng svona 2 setningar á ensku og segi honum svoo hvað þær þýða og svo framvegis... svo söng ég 5-6 setningar á ensku og týmdi ekki að slíta það í sundur því að ég sá að þetta var að hafa áhrif á hann (þó svo að hann skildi ekki) því að augun hans fylltust af tárum og hann teygði hendurnar í áttina að mér og faðmaði mig svo fast. Vá þetta var svo dýrmætt móment, Guð snerti á svo áberandi hátt við honum. Langaði bara að deila þessu með ykkur...

Við heyumst brátt aftur... takk fyrir bænirnar, þær virkuðu eins og alltaf, Guð er stórkoslegur!!!

Kveðja frá mér til ykkar...

2 Comments:

Blogger Álfheiður said...

Til hamingju með að vera að hætta í vinnu elsku vinkona. Ég er ánægð með þig. Gott að heyra að þér líður betur.
Ég fékk líka tár í augun þegar ég var að lesa um samverustundir ykkar Arons Elís. Þessi börn eru algjörir gullmolar og við eigum sko að njóta hverrar mínútu með þeim.
Love you all ...

4:40 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já...loksins ertu að fara að hætta...til hamingju..forvitnilegt hvað tekur við næst!

8:35 PM  

Post a Comment

<< Home