Gleði, gleði, gleði!
Góðan og blessaðan daginn...
Ég vil byrja á að þakka ykkur elsku vinir mínir fyrir hlýjar afmæliskveðjur... þið eruð ómetanleg og gefið lífinu lit... hvert og eitt ykkar!!!
Lífið er svo yndislegt, rosalega er mikill munur að hafa sumar og sól... ég elska þetta líferni. Við hjónin erum búin að vera núna í nýju vinnunni í tvær vikur, fyrir þá sem ekki vita erum við að taka við búðinni HIGH AND MIGHTY þið getið séð nánar um það í tveim færslum framar) og þetta gengur svo vel, við erum að fíla það svo mikið að vera svona mikið saman og við elskum að dekra við viðskiptavininna og gefa þeim 150% þjónustu...
Svo var ég að byrja að selja Volare snyrtivörur og ég er með svo góða tilfinningu fyrir því dæmi. Þetta eru snyrtivörur sem ertu ræktaðar úr aloe vera og fleiri jurtum úr Jórdandalnum í Ísrael og svo úr dauðahafinu (sem Jórdandalurinn liggur við)... Guð lofaði Ísraelsmönnum land sem myndi flæða í mjólk og hunangi og það gerði hann svo sannarlega... þetta eru meiriháttar vörur... mig langar að spyrja ykkur kæru vinir... mynduð þið vilja halda kósýkvöld heima hjá ykkur, þar sem ég kynni nokkrar vörur, býð ykkur í fótabað og hafa gaman saman??? endilega hafið þá samband við mig, annað hvort í síma 899-5886 eða á e-maili eða bara í kommenti hér á síðunni... það væri svo gaman að fá að hitta ykkur sem eruð að koma hér inn og lesa! :)
Ég er að fara í stigspróf í söng á mánudaginn og er búin að vera að æfa mig á fullu undanfarið og mér gengur svo vel... ég hlakka bara til að fara og spreyta mig á prófinu. Og svo annað í sambandi við söng... ég er að fara að syngja einsöng á samkomu á sunnudaginn 14. mai... mikið rosalega væri gaman að fá að hitta einhvern þar ;) Endilega kíkið þið á samkomu að Fossaleini 14 í Grafarvogi kl 20:00.
Ég ætla að segja þetta gott... þetta voru bara smá fréttir úr lífi mínu núna... hey... endilega hugsið þetta með kósýkvöldið.. langar ykkur ekki endilega að fá mig í heimsókn og nokkrar vinkonur í viðbót, kynnast frábærum vörum og njóta góðs af (það er alltaf gjöf fyrir gestgjafan ;) )
Guð blessi ykkur svooo ríkulega næstu daga...
Ykkar Ágústa Ósk

5 Comments:
Sæl, bara að láta vita af mér. kv. tóti
Sé þig á morgun og hlakka til :-)
Gaman að þessu:o), hef heyrt að þetta séu æðislegar vörur. Kemurðu nokkuð með svona kynningu til USA.....?
Við Ágúst sjáum ykkur alveg fyrir okkur afgreiðandi í búðinni ykkar, vó! Góð þjónusta eða hvað!!!!!! Örugglega sú besta í bænum og ég meina það!
Hlakka til að hitta ykkur:o) og fá kaffi hjá Ingvari......
Hæ,elsku vinkona.Innilega til hamingju með afmælið um daginn og takk fyrir hlý orð í minn garð og minnar fjölskyldu.Frábært að heyra hvað þið eruð ánægð í búðinni.Héðan er allt mjög gott að frétta,komið yndislegt vor með sól og hita.Við biðjum rosalega vel að heilsa ykkur og gangi ykkur vel í öllu ykkar.Guð blessi ykkur og veri með ykkur.Þín vinkona Erla Kára
Takk fyrir samveruna í gær kæra Ágústa. Það var æðislegt að koma í kirkjuna ykkar og frábært ða fá að hitta þig.
Kveðja Sibba.
Post a Comment
<< Home