Saturday, June 10, 2006

Lífið er gott!

Góðan daginn...

Hvað segið þið gott? Ég segi allavegana allt gott... blessun á blessun ofan hér á bæ. Já Guð er svo sannarlega góður Guð. Það helsta í fréttum er það að búðin gegnur ROSALEGA vel og erum við að fíla okkur í þessu hlutverki, að þjóna viðskiptavininum þar til hann er geggggjað ánægður og erum við að sjá mikinn ávöxt af þessu.

Ég er nú á fullu að sækja um undanþágu til þess að geta stundað söngnámið mitt í FÍH á næsta ári. Ég er orðin 27 ára og því borgar Reykjavíkurborg ekki niður skólan minn svo að ég þurfti að sækja um undanþágu. Ég fékk svakalega góðar einkunnir í vor á III. stigs prófinu mínu, í tónfærði og hrynþjálfun. Og ég hef verið að fá geggjuð meðmæli hjá söngkennaranum mínum og Óskari svo að þetta er mjög jákvætt, vonandi er það bara Guðs vilji að ég verði þarna áfram næsta vetur... en ég segi VERÐI GUÐS VILJI... því að hann er sá besti fyrir okkur. (mont mont kafli búinn)

Já kemur smá mont kafli í viðbót...



Þetta er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn... hún er 2 og 1/2 vikna og fáum við hana í ágúst heim... hún er hreinræktaður persi og er algjörlega yndisleg... við höfum verið að bíða eftir kettling síðan í febrúar og loksins sjáum við fyrir endan á þessari bið... takk elsku elsku Kolla mín, hún er fullkomin og við hlökkum alveg svakalega til og munum hugsa rosalega vel um hana ;) Love you!!! Endilega kíkið á fleiri myndir af litlunni okkar á http://gullkisi.com og systrum hennar. Þar getið þið líka lesið um karakter persana og fleira.. þetta eru alveg sérstök dýr!

Já lífið er gott!

Þetta er gott í bili... bið Guðs blessun yfir líf ykkar...

Ykkar Ágústa

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

jiiiii sætust!!! til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.....ekkert smávegis sæt!!!! Bið að heilsa ykkur öllum elskurnar;)
ykkar Bryndís

12:35 PM  
Blogger agusta said...

Takk Bryndís mín... þú verður að kíkja á hana þegar hún er komin í hús... samþykkt???

12:40 PM  
Blogger Oddur said...

Algjör dúlla þessi kettlingur, hlakka til að sjá hann....

5:47 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ohhhhhhhh Draumakisisan mín hvít með blá augu ekkert smá sæt

9:58 AM  
Anonymous Anonymous said...

Já engar smá breytingar hjá ykkur. Er ekkert búinn að vera hér inni síðan um áramót.
Gangi ykkur vel með þetta allt sman :)

...............Garrinn

1:33 PM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku Ágústa og fjölskylda. Fallegt bloggið ykkar vildi nú bara kvitta fyrir mig því við Anna Mirra kíktum hér í kvöld. Anna hefur það ofsalega gott og er farin að labba vel um og orðin ágætlega stöðug í fótunum þó svo hún velti líka aðeins. Núna er hún bara að læra á lífsins reglur eins og kassan sinn og að borða sjálf. Knús og kossar Kolla og Anna Mirra

2:17 AM  

Post a Comment

<< Home