EXTRA!!!
Þetta var alveg hreint dásamleg helgi sem við vinkonurnar áttum saman... við sváfum mjööög mikið, borðuðum óóógeðslega gott (bæði skiptin á Greifanum og í bæði skiptin ostaveislu (5 tegundir af osti) með pepp og svepp) hlóum svaaaka mikið og slöppuðum af. Það sem bar af þessa helgi þegar ég hugsa til baka er allt sem heitir "extra effort". Guð svoleiðis dekraði við okkur stelpurnar... eitt dæmi: það var snjókoma, hálfgerð hríð þegar við stöllurnar gengum inn innganginn á sundlauginni á Akureyri og við sögðum við Guð " það væri yndislegt að fá sól í pottinum" og þegar við komum út þá var svona heiðskýr hringur á lofti og sólin steikti okkur í 1 klukkutíma og korter. Svo þegar við þurftum að fara upp úr þá var orðið kalt. Annað : við vorum að keyra frá Egilstöðum til Akureyrar og Alda bara hastaði á snjóinn og við vorum í æðislegu ferðaveðri allan tíman ;) þetta var bara allt svona. Annað : Gistihúseigandinn heyrði að við værum að fara á Greifan og þá var hann einmitt með samning við þau um að gestirnir hans fá 15% afslátt af mat þar....... sumir myndu segja að þetta væri allt saman tilviljun, en ég kýs að kalla þetta blessun (hversu barnalegt sem sumum finnst það) og að Guð vilju gefa okkur þetta extra.
Ef Guð konungurinn vill gefa okkur extra af hverju gerum við það þá ekki líka??? Bæði með Guð í huga og líka bara hvort annað??? Eitt dæmi frá þessari helgi, um hana Öldu mína... hún bjó um mig í gestaherberginu sínu og þegar ég kom upp í þá var heitur hitapoki undir sænginni minni, hann hafði hitað fótasvæðið dásamlega vel og ég kúrði með hann á fótunum á mér, þetta var OFUR NOTALEGT. Alda þurfti þetta ekki, en með þessu sýndi hún mér alveg gífurlega væntumþykju og ég fékk svo að finna það. Gerum meira af þessu (Alda er snillingur í þessu) við maka okkar, börnin okkar og náungan... eitthvað sem við þurfum ekki ennnnn það sýnir svo mikið hversu mikið okkur þykir vænt um viðkomandi... Guð þurfti ekki að gefa okkur sól í pottinum en með því að hann gerði það þá sýndi hann okkur hvað honum þykir vænt um okkur.. við vissum það alveg en þið skiljið... ég vissi alveg að Öldu þætti vænt um mig en með því að setja hitapokan þá sýndi hún mér það svo greinilega með verkunum. Iljum hvort öðru um hjartaræturnar, gefum þetta extra!!!
Endaði svo tíman hjá Öldu á að halda Volare kynningu hjá henni fyrir yndislegar konur. Við áttum frábæran tíma og þær fóru í fótabað og dekruðu svolítið við sig með frábærum vörum ;) Takk Álfheiður, Fanney, Kristín, Íris Lind og Bogga... þið voruð frábærar á minni fyrstu kynningu ;)
Takk Alda mín fyrir helgina... þetta var YNDISLEG afmælisgjöf!!!
Love you... Extra mikið!
Ágústa...
P.S.
Dóttir mín er á fullu að læra hvað fingurnir heita og var að koma til mín, hélt um löngutöng og spurði "er þetta langaamma" hahahahahha ein að muna bara part af nafninu... hahahahha varð að segja ykkur þetta

3 Comments:
Hún dóttir þín er nú greinilega algjör gullmoli, það sá ég eftir að hafa hitt hana einu sinni. Vona að ég eigi eftir að hitta mörgum sinnum aftur.
Kveðja Sibba.
hehehe..psið þitt er snild! Kósý ferð! mmm...annars var ég að koma af laugarvatni með Jassa, Önnu og Bödda, þannig að mér finnst ég skilja hvernig þér líður. Við áttum mjög góðan tíma....er reyndar úber steiktur eftir að hafa sofnað í bílnum og með fullt af sofum(ekki sófum..grín) á mér. Ég náði nú ágætri tan...það er fyrir öllu
Ps. Það settist geitungur á vísifingurinn minn í sundi á laugarvatni! spáðu í því! Hey... krem(aloa vera-verð í sambandi við dúddann)!!
oh já þetta var sko snilldarferð elsku dúllan mín! Hugsa til hennar með söknuði núna þegar allt er komið á fullt... jæja, garagó...fullt að gera... koss og knús, Alda.
Post a Comment
<< Home