Jæja gott fólk... allt fínt að frétta??
Rosa fínt hérna megin. Það er búið að vera mikið að gera, var í söngnáminu mínu á mán-mið og það var hreint út sagt GEGT sííís maður... snilld!
Svo fór ég að kíkja á litlu kisuna okkar, ég ætla að setja nokkrar myndir af okkur saman hérna...

Kannski smá úr fókus en það sést í gegn hversu sæt hún er

hérna er hún búin að pissa á mig :/ það voru blendnar tilfinningar því að hún Kolla(ræktandinn) hafði sagt mér fyrir nokkrum mánuðum að ef litlum kettlingum líður vel hjá viðkomandi þá merkja þær sér manneskjuna með því að pissa á hana, svo að það var kærkomið ;) en samt svolítið ógeðlegt að finna heitt kattarhland renna á milli brjóstanna á manni... hahahhaha

Henni leið svo vel hjá mér að hún malaði og sleikti mig, svo baðaði hún fótunum í allar áttir sem merkir öryggi ;)

Þetta var svo yndislegt og hún algjört yndi... lá hjá mér í 1 og 1/2 tíma... geggjað... feldurinn eins og dúnn... hlakka til að fá hana Önnu Myrru heim!
Sjáumst ;)

7 Comments:
Krútt!!!
Glæsileg lítil læða þarna, á eflaust eftir að verða ómissandi hlekkur í fjölskyldunni ykkar.
hæ! veit að ég hef aldrei kommentað en kíki samt reglulega á síðuna þína...til hamingju með litla kisann, algjör dúlla! Svo sæt, vonandi sé ég hana svo einhven tíma
kv.Ásta Ingalls
Hellú! til hamingju með Önnu Myrru! Hún er alveg ótrúlega falleg ;)
Gangi ykkur vel með nýja meðliminn.
Kv Fríða
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo hvað hún er sææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææææt!!!!!!! Mig langar líka!!!! aldrei að vita :o)... samt hálf kjánó að hafa innikött með ekkert útieðli í allri þessari sveit... hmmm...æ þarf að hugsa málið betur...
sakna þín Ágústa mín.
þín ofurbissí Alda palda sveitastelpa.
Herre Gud!
Hver er sætust af öllum?!!!!!! Hlakka til að knúsa hana! vonandi pissar hún á mig, annars verð ég mógðuð, kattarkonan mikla hehe! Annars vonast ég til að sjá ykkur í sveitinni sem fyrst, love you! Kolbrún
Gaman að heyra af ykkur hér á blogginu:-) Gangi ykkur vel og bið innilega að heilsa.
Gunna (Aron og Gunna á Selfossi) :-)
Post a Comment
<< Home