Allt gott að frétta...
Hola...
Já já þá er maður komin til Íslands eftir FRÁBÆRA ferð... Við (ég, Ingvar, Aron Elí og Addý) fórum sem sagt til Spánar með elskulegu foreldrum mínum og það var svo meiriháttar... svo seinni vikuna kom Sæmundur með krakkana sína og þá var kátt á hjalla... mikið svakalega var gaman að vera öll svona saman og kynnast betur... Krakkarnir voru alveg svakalega góð öll saman og við nutum okkar í botn. Við gerðum allt sem góðum ferðamönnum sæmir... fórum á ströndina, Addý og Birna Lind þurftu að tæma úr skónum ef það komu evö sandkorn ofaní en Aron Elí og Kjartan Ísak voru þvílíkt flottir í sjónum og gleymdu sér alveg. Fórum í tívolí og aþr skemmtu allir sér stórkoslega... Sundlaug, þar var hákarlaleikurinn vinsælastur duru-duru-duru-duru. Fórum í púl og þar var ég ekki að gera góða hluti Sæmundur og Ingvar fóru töluvert í púl svona seinnt á kvöldin eftir að allt var komið í ró. Fórum mikið út að borða næææs, búðir, sólbað, skoða okkur um og bara að njóta þess að vera til... ég er strax farin að hlakka til næstu ferðar ;) Takk fyrir ferðina allir sem voru með mér, þið voru bestu ferðafélagar ever... elska ykkur alveg rooosalega mikið.
Svo er það að frétta að ég fékk inngöngu inn í Háskóla Íslands og er stefnan tekin á ljósamóðurina (hlakka til að taka á móti börnunum ykkar í framtíðinni ;) og þarf ég að byrja á hjúkkunni. Guð ætlar að vera með mér í þessu og það er svo greinilegt miðað við hvernig í komst inn, Hann potaði mér einhvernveginn inn bakdyramegin hahahaha. Ég var búin að fá tvisvar neitun og eitthvað en ég er komin inn jeiiii, ég veit alls ekki hvernig Guð fór að þessu, en svona virkar hann einmitt, þegar allar dyr virðast lokaðar þá er hann með einn leinigang sem við sjáum ekki í fyrstu... snilld að tilheyra svona karakter, vóóó og ég er barnið hans.. forréttindi!!!
Kisan okkar er í smá heimsókn núna og verður hjá okkur í nótt... hún er alveg hrein dásamleg svo róleg og góð, um leið og hún er komin í fangið er hún farin að mala og svo mjög leikglöð... alveg yndisleg...
Gott í bili...
Kær kveðja Ágústa Ósk

3 Comments:
hæhæ Ágústa...
Takk kærlega fyrir þetta fallega boð.. þú ert greinilega með RISA stórt hjarta! En þú þart ekki að hafa áhyggjur.. þetta var meira skrifað í letikasti heldur en uppgjöf.. :)
En yndislegt að vita af því að það er til fólk með svona fallegt hjarta... :)
Eftir að hafa skoðað bloggið þitt þá þekki ég til þín.. Er búin að þekkja Bryndísi Evu í mörg ár þannig að ég fattaði hver þú værir.. :)
Vonandi hafið þið það gott og enn á ný þakka ég boð þitt...
Bassi biður innilega að heilsa ykkur..
Linda Sæberg.
hey þú sæta!
Börnin mín voru að horfa á mynd sem heitir Kjúlli litli í gær....svei mér ef það fór ekki aðeins um hana dóttur mína;);)
Frábært að allt gekk svona vel...förum svo að hittast smá....kísak rukkar reglulega um að fá að gista með frænda sínum...verðum að fara að make that happen...
Já og til hammó með háskólann... þú verður án efa prýðisljósa;)
Knús til allra
þín B.
Já endilega Bryndís mín... ég elska þessi börn ykkar, þau eru algjörir snillingar. Hahhahahhahahahahhaha ógeðslega fyndið þetta með kjúlla síís þetta var óborganlegt atriði!
Já það er meira en sjálfsagt að leifa strákunum að gista saman.. heyrumst eftir miðjan ágúst í sambandi við það, þá er vispó búið á Egilsstöðum...
love you alot...
Þín Ágústa
Post a Comment
<< Home