hæ aftur...
Komið nú sæl og blessuð (ef einhverjir eru hér enn)
Ég er búin að opna myspace síðu ef þið hafið áhuga á að kíkja þar inn slóðin er:
http://www.myspace.com/agustaosk
þar hef ég sett inn lítið demó af lagi sem var tekið upp með mér (á eftir að laga nokkra parta en það fær að dvelja þarna um sinn að minnsta kosti) og getið þið hlustað og endilega segið mér hvernig ykkur finnst...
hey... og ef einhver sem les þetta er með myspace og vill adda mér inn hjá sér þá endilega ekki hika... ég er pínu feimin við það núna en það hlýtur að koma ;) bráðum fer eg örugglega að adda fullt af fólki en enn er ég pínu hikandi (hrædd um höfnun líklega, jea eða eitthvað svoleiðis... en kannski er ekkert um svoleiðis á myspace... veit ekki, þetta er allt voðalega nýtt fyrir mér)
jæja það var þetta sem ég vildi segja í bili, kem kannski með færslu einn daginn, hef verið í skrítnu tímabili og alls ekki fundið mig í að blogga... ég er of opin stundum á þetta blogg og vildi ég ekki hætta mér inn á þær slóðir þessa dagana... nenni ekki að tjá mig um ástandið núna ;) en til að taka allan vafa og mögulegar sögusagnir á ég frábært hjónaband (og er það líklega það sem hefur haldið límingunum saman) frábæra stórfjölskyldu (og eiga þau svakalegan þátt í að hjálpa mér í gegnum þennan tíma) og yndisleg börn... þetta er það mikilvægasta í mínu lífi og vil ég ekki að spurningar um mig og okkar samband sé... mér er alveg sama um hinar sögurnar sem geta myndast... ahhahaha þær eru örugglega ekki sannar hvort sem er...
Jæja endilega kíkið á myspacið mitt, ég er mjög ánægð með það og vonandi verðið þið glöð að geta heyrt eitthvað sem ég er að gera... (álfheiður mín, þú þarna hinum megin á landinu átt örugglega eftir að njóta)
Sjáumst brátt...
Ágústa

5 Comments:
Frábært að "heyra" frá þér loksins aftur. Hef saknað þín úr bloggheimum.
Best ég kíki á "myspace-ið", þokkalega spennt.
Bestu kveðjur,
Álfh.
Smá framhald ... var að hlusta og þetta er MEIRIHÁTTAR!! Við hjónin sátum hér orðlaus og dolfallin, karlinn þekkti reyndar ekki röddina þína ... hehe.
Hver spilar og er þetta fyrir eitthvað sérstakt???
Langar að heyra meira um þetta.
ÁI
En yndislegt að heyra... vá hvað mér finnst frábært hvað þér fannst þetta flott...
Óskar Einarsson spilaði undir o´g tók upp og já þetta er fyrir atvinnuleit :) ég ætla sem sagt að fara á milli jólahlaðborða (veitingastaða sem eru með jólahlaðborð) og spyrja hvort þau vilja svona jazzsöngkonu til að syngja dinnertónlist og þetta er bara smá demó fyrir það ;)
Takk aftur fyrir kommentið, þetta gladdi mitt litla hjarta... sérstaklega af því að ég veit að þú segir bara það sem þér finnst hahahaha
Elska þig og ykkur... skilaðu til Bjarts að Ingvari fannst ofurvænt um upphringinguna og hann var svooo uppörvaður. Yndislegt að eiga vini eins og ykkur.
Ykkar Ágústa Ósk
hæ Ágústa mín!
Rosa flott mæspeis og flott demó...sakna þess að heyra þig syngja...It´s been a while...
Ég kíki alltaf við á blogginu þínu (ég er svo mikill nörd bara með blogg ekkert mæspeis...)gaman að sjá líf;)
Bestu kveðjur til þín og þinna
B.
Hæhæ Bryndísin mín...
Já það er tími síðan, allt of langur, ekki bara að heyra mig syngja heldur bara að heyra mig tala og ég þig :(
Elska þig mikið B.
Þín Ágústa
Post a Comment
<< Home