Sálin og gospel... gleðileg jól og gleðilegt ár!
Gleðileg jól elsku þið...
Mynda forritið í tölvunni minni er eitthvað mis þessa dagana svo að ég hef ekki náð að setja neinar myndir af fallegu börnunum mínum eins og ég ætlaði mér... en vonandi fer þetta að lagast ;)
Það eru þrusutónleikar í kvöld með sálinni og gospel og vitiði hvað... ég á að syngja sóló í fyrsta laginu :) veiii ég hlakka ekkert smá til... við kórinn munum sem sagt syngja 3 gospel lög til að byrja með... munum taka amazing grais (sem ég syng sem sagt ein í ) svo tökum við lean on me (sem Edgar fer á kostum í) og svo í lokin af þessari gospelsveiflu tökum við o happy day... já þetta verður svaka gaman... hlakka til!! hey... 2700 manns ;)
Ég ætla að fara að hafa mig eitthvað til... er að fara á æfingu fyrir herlegheitin... heyrumst betur seinna...
Gleðilegt ár og vonandi verður árið 2007 yndislegt!!!
Mamma og pabbi, sæmundur með börnin sín yndislegu og siggi þór munu koma til okkar í mat á gamlárskvöld... ofninn hjá mömmu og pabba sagði "hingað og ekki lengra, annars tek ég rafmagnið af íbúðinni ykkar" á aðfangadagskvöld og það gerði hann nokkrum sinnum, þar til þau tóku mark á hótuninni ... Þetta verður GAMAN!!!!
Love from me to you...
Ágústa Ósk Óskarsdóttir (formleg í þessu bara ;) )

7 Comments:
Það má segja að þú hafir hafið tónleikana með stæl í gær! flottasta upphaf tónleika okkar ever:) þetta var geeeeeðveikt flott hjá þér!
Gleðilegt nýtt ár!!
b.kv.
Eva Dögg
vááá takk elsku Eva mín... þú fórst reyndar á kostum einu erindi seinna... það var alveg meiriháttar hjá ykkur eins og alltaf, snilldar útsetning hjá ykkur stöllum. Vissi ekki að þú læsir síðuna mína og alltaf gaman að sjá ný "andlit" hérna ;)
Þú ert yndisleg og stendur þig vel... þú varst glæsileg í gær ;)
Frábært Ágústa!!
Ég vildi að ég hefði getað hlustað á þig. En ég veit að þú hefur gert þetta með stæl, eins og annað sem þú tekur þér fyrir hendur.
Nýárskveðjur frá Egilsstöðum
Takk Álfheiður mín... já það hefði verið snilld hefðir þú verið þarna, en takk fyrir að hafa svona trú á mér ;)
Þú ert frábær...
Love Ágústa
Hæ hæ Gleðilegt ár! Fengum Sálar dvd diskinn í jóló!! Geðveikt flott hjá ykkur... var alveg pínu abbó ;) hehe
Hafið það gott á nýja árinu.
Kv
Fríða og co
Gleðilegt ár og til hamingju með glæsilega framistöðu
Agústa mín. Ég verð að fá að kíkja á þetta hjá þér þegar ég flyt heim....þá verðuru örugglega búin að afreka svo mikið að við verðum að taka heilt kvöld í að glápa og fá okkur eitthvað gott að borða saman. Díll??...........Kveðja, Kolbrún USA
Já já Fríða, svona er að fara burt af klakanum ;) Gleðilegt ár til þín og þinna...
Já Kolbrún það er díll, reyndar á ég ekkert upptöku af því sem ég er að gera, en ég meina, við getum hist á spjallað fyrir það ;) Gleðilegt ár til ykkar, hlakka til að hitta ykkur og syngja saman ;)
Love Ágústa
Post a Comment
<< Home