Monday, January 08, 2007

Hvernig á að bregðast við svona?

Góðan og blessaðan daginn...

Ég var að vafra um netið og rakst á þessa grein hjá einum sem kom á tónleikana hjá Sálinni og Gospel... það var ekki laust við að mér hafi brugðið, endilega lesið og þið sem fílið mig ekki persónulega eða sönglega eigið eftir að skemmta ykkur vel ;)

"Sýningin hófst á því að Gospelkór Reykjavíkur flutti lagið Amazing Graze undir forustu einsöngvara sem heitir víst Ágústa Ósk Óskarsdóttir. Við Pálína erum nú ekki miklir sérfræðingar í Gospelsöng, en við vorum hvoru öðru sammála um að þessi flutningur væri svo slæmur að okkur liði hálf illa og vorum að hugsa um að fara bara strax. Okkur var svo tjáð að lögin sem Gospel kórinn ætlaði að flytja á bjagaðri ensku væru nú ekki nema tvö til viðbótar áður en Sálin stígi á svið svo við ákváðum að þrauka, en máttum hafa töluvert fyrir því að grípa ekki til vopna og enda þenna harmleik eftir pínlegan flutning á Lean on me og O happy Day.
Loks steig Stefán Hilmarsson á sviðið ásamt fríðu föruneyti. Mér þykir Stebbi Hilmars frábær söngvari og mikil fagmaður og hann sannaði það að minnsta kosti fyrir mitt leyti um leið og hann andaði í hljóðneman að þessi svokallaði kór átti ekkert heima á sviðinu með karlinum." (http://www.andmenning.com/)

Eins gott að hafa þettta innnan gæsalappa því að þessi kæri maður á sannarlega einkarétt á þessum skrifum og ekki ætla ég að vera kærð fyrir ritstuld auk þess sem ég syng svona pínlega...

Jájá... allavegana er ég fegin að það hafi ekki allir sömu skoðun (ég viðurkenni það alveg að það væri hræææðilegt að allir hefðu þessa skoðun að minnsta kosti) og er ég enn þakklátari fyrir ykkur sem hafið verið svo kær að tjá ykkur við mig í tali og skrifum... hahahhahaha

En hey... það var nú talað sérstaklega um það í þessu námi sem ég hef verið í að það muni ekki allir fíla mann og maður þarf að læra að láta það ekki á sig fá og kannski meira en það... maður þarf kannski bara að læra að virða það líka... Ég meina, hvernig getur maður vaxið (hvort sem það er í söng eða einhverju öðru) ef maður fær ekki gagnrýni ;)

Ég viðurkenni það alveg að ég skrifa um þetta því að ég veit ekki alveg hvernig á að höndla svona (hef ekki lennt í því áður og þetta er pottþétt ekki í síðasta skiptið) en ef ég myndi ekki skrifa um þetta eða koma þessu á einhvern hátt frá mér þá myndi þetta byrja að naga mig að innan (I know myself) svo að ég ákvað bara að skyrpa þessu út hrrrrr-tuppp þá er það farið ;) og ég mun bara vinna enn harðara að því að bæta mig...

Love from me to you all... (you to Kristinn ;) )

8 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Nohh... Kristinn er eins og við í bransanum köllum atvinnuhá***** greinilega meistari í að tala með rassgatinu! Ég var þarna og þetta var geðveikislega flott hjá þér!! ég hef heyrt það úr öllum áttum... og frá fólki sem þekkir þig ekki neitt! Ekki hlusta á þetta, þú ert klikkað góð söngkona... þetta er bara svona, það er meira að segja til fólk sem segja að Plant kunni ekki að syngja... fólk sem kann bara að tala með afturendanum ætti einfaldlega að halda sér saman ;) ekkert persónulegt Kristinn minn but put a kork in it

11:37 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hehehe Sæmi... fagmaður!! Mér heyrist nú á þessum Kristni að honum sé bara nokkuð illa við Gospelkórinn yfir höfuð þannig að ég myndi nú ekki láta þetta á mig fá! Hann greinilega veit ekkert í sinn haus um söng. Stóðst þig án efa vel ;)

12:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ Ágústa mín!
gleðilegt nýtt ár...
tja, ég á ekki til orð, ég meina það, Óskar mundi ekki láta þig syngja ef þú kynnir ekki að syngja! En svona er þetta víst, harður heimur! Annars get ekkert sagt, sá ekki tónleikana, en ég veit að þú gerir alltaf þitt besta.
lov u, vildis

2:58 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hahahah!!! Mér finnst þessi grein eiginlega bara fyndin! Ágústa þú ert klikkað góð og þú veist það, en við sem ætlum okkur eitthvað í lífinu þurfum víst að brynja okkur strax því það fær aldrei neinn bara góða dóma. Svo að taktu það til þín sem þú veist þú átt skilið en ekki hitt (og sérstaklega ekki þetta því þetta er ekki byggt á neinu nema persónulegri skoðun)!

Heyri í þér (og fíla það)
María ;)

2:56 PM  
Blogger agusta said...

Takk fyrir og takk fyrir!

hahahahha PUT A KORK IN IT AAAAAHAHAHHA...
Verð að hrósa þér Sæmundur fyrir frábæran húmor í þessu flotta kommenti... takk fyrir hver þú ert í lífi mínu ;) Jebb ætli tónlistarmenn þurfi ekki að hlusta á margt og mikið og já bara allir listamenn (góður í sambandi við Robert Plant)

Já Fríða líklega er þetta rétt ályktað hjá þér, samt bregður manni að sjá nafnið sitt (fullt nafn... halló) og að heita VÍST... eitthvað svo mikil fyrirlitning... en jæja... I'm over it ;) hahahahah

Gleðilegt ár sömuleiðis Vildís og takk fyrir hvatninguna.. þú ert frábært vinkona...

Blessuð María mín og takk fyrir mig ;) Já ætli það sé ekki bara mikið til í því hjá þér í sambandi við brynjuna sem við þurfum að hafa í sambandi við diss og annað... þetta var mitt fyrsta og frábært að hafa ykkur þarna hinum megin til að stappa í mann stálinu... ég kann að meta það. Já og ég fíla þig í botn líka... elska það að hafa kynnst þér svona vel þetta ár.. hahahah ekki bara nokkra daga heldur þetta skólaár... Love you...

Ykkar Ágústa og ég þakka ykkur svooo fyrir ;)

6:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

Einmitt, all svakalegur lestur þetta! Gott hjá þér að koma þessu frá þér, það er ómögulegt að burðast með svona. Sem betur fer hefur fólk mismundandi skoðanir og sem betur fer geta allir fundið sér eitthvað til hæfis í heimi tónlistarinnar og þá auðvita á sama hátt líkar okkur ekki sum tónlist.
Ég til dæmis þoli ekki kántrý tónlist og eitt ákveðið hljóðfæri, sem ég ætla nú ekki að nefna hér, en ég versna BARA með árunum! En það er um að gera, eins og þú segir sjálf, að standa aftur upp og halda áfram, jafnframt að bera höfuðið hátt, læra að þekkja kosti sína og galla, vaxa og þroskast í auðmýkt fyrir viðfangsefninu og muna hver drifkrafturinn er, fyrir hvern og hvers vegna þú ert að gera það sem þú hefur valið að gera, hafa fókusinn á heilbrigðum stað. Takk fyrir að deila þessu með okkur, við stöndum með þér í litlum sem stórum sigrum. Ég get ekki kallað þetta ósigur því ég er viss um að á því augnabliki sem þú söngst þetta þá upplifðir þú sigur innra með þér, hvað hugsanir sem hafa svo komið í kjölfarið þekki ég ekki. Þú ein þekkir sjálfa þig best og veist best hversu stórir sigrarnir þínir eru þegar þú miðar þig við sjálfa þig. Ég hlakka svoooo til að heyra í þér þegar við komum heim á næsta ári! Knús í krús krús;) Ps.Munum líka að oft höndlar andi fólks ekki þann heilagleika sem fyglir því þegar trúað fólk er samankomið til að syngja um trú sína, þetta er barátta góðs og ills eins og við vitum og stundum höfðar það sem við gerum bara einfaldlega ekki til fólks :)

3:44 AM  
Blogger agusta said...

Takk fyrir þetta laaaanga komment Kolbrún mín, þú ert nú algjört gull!!! Já þetta var mikill sigur og margt sem er að gerast í lífi mínu er mikill sigur og ég er að læknast af alls konar komplexum ;)

Mikið rétt í sambandi við andan sem er með okkur og aðrir höndla ekki ooog er mjög líklegt að þetta eigi við í þetta skipti... því ef maður skoðar síðuna hans þá er hann t.d. með link inn á vantrú.is. Vona ég samt að það hafi bara verið röddin mín sem hann fílaði ekki frekar en hitt, því að annars er hann í frekar slæmum málum.. en Drottinn blessi hann!!!

Takk aftur fyrir að deila þessu öllu með mér og þú ert alveg frábær.. mér þykir rosalega vænt um þig ;)

7:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

Mér fannst þetta MJÖÖÖÖG vel sungið hjá þér... og já, ég fílaði það... líkt og Kolbrún segir þá hefur hann örugglega bara verið í vörn út af því að gospelkórinn er að syngja um Jesú og Jesús er svo sannarlega lifandi og snertir við fólki í dag, svo fólk sem kærir sig ekki um að hann snerti við sér líður kannski óþægilega í svona aðstæðum og reynir að vinna sig út úr því með því að skjóta á fólk... meðan átökin eru bara innra með þeim sjálfum. En við eigum bara að fagna þegar við verðum fyrir mótlæti vegna Jesú :) Guð blessi þig og sönginn þinn á þessu ári. Love to you :) Ingunn

8:31 AM  

Post a Comment

<< Home