Loksins myndirnar...
Jæja þá er myndaforritið komið í lag og ætla ég því að setja myndir af krökkunum mínum hérna inn...
Aron Elí á leiðinni í afmæli. Hann er orðinn 8 ára snáðinn og æfir fótbolta á fullu, auk þess sem hann er í batminton. Fluglæs og mjög klár í stærðfræði og stafsetningu ;) (eitthvað sem ég var ekki) Hann er yndislegur og svo hjartahlýr...

Svo kemur skottan mín hún Arnheiður Ósk. Hún er 3 og hálfs árs og það er alltaf gaman hjá henni. Mjög hress og einstaklega skemmtileg stelpa... til í allt og þorir öllu ;) Okkur langar að setja hana í ballet því að henni langar að dasa í bleikum kjól, sem by the way er uppáhalds liturinn hennar og Solla stirða er hennar uppáhald líka (enda svaka bleik gella sú). Hún lítur svakalega upp til bróður síns og elskar félagskap... hahahha þetta er orðið eins og dálkur fyrir þau tvö í einkamála-auglýsingum... jiiii...

Ég var að hugsa að mér langar svo að halda dagbók... það er svo margt sem gerist á hverjum degi og alls konar tilfinningar, maður er oft að lenda í svipuðum aðstæðum og maður getur þá lært eitthvað af þeim fyrri ef maður getur flett því upp hvernig maður höndlaði það seinast... svo er líka bara svo gaman að geta litið til baka, til þessa tíma á meðan börnin eru svona lítil og rifjað upp... já ég held að ég geri það bara... fari út í bókabúð og kaupi mér dagbók... ahahhaha hef ekki skrifað dagbók frá því árið '95, enda er líka mjög gaman að kíkja á hvað maður var að gera fyrir ákkurat 12 árum síðan...
Jæja eigið góðan dag... og Sæmundur takk fyrir gríðarlega skemmtilegt og hressandi komment í færslunni hér að framan... Snerti mig djúpt ;)
Ykkar Ágú

4 Comments:
Yndisleg börn sem þú átt mín kæra!
Kveðjur, Álfh.
OK... vá ég er bara alltaf að commenta hérna...hehe Fannst bara svo gaman að sjá Aron Elí... hann var nú einu sinni einn af litlu börnunum mínum á leikskólanum... heldur betur búin að stækka ;)Ekkert smá mikill töffari ;) Líst vel á fótboltamálin hjá töffaranum! Svo er náttla Addý bara sætust ;)
frábærir krakkarnir þínir ágústa mín...gullfalleg og vel heppnuð bæði tvö;) mér líst vel á ballettinn...verðum að senda þessar bleiku dætur okkar í það...sé það þokkalega fyrir mér! hey...eigum við svo að hanga saman næsta sumar með krakkana eins og í denn...ég sakna þess að hanga...og hlakka svo til sumarsins..þúst af því það er svo sumarlegt úti núna..hmm
anyways...bullukomment er þetta orðið..held ég láti gott heita;)
kv. þín B.
Já Álfheiður mín.. frábærir krakkar!!! Mín uppáhlads ;)
Fríða... já ég fíla það að þú sért alltaf að kommenta ;) og það er eins og mig minnir að þú hafir verið í uppáhaldi hjá Aroni Elí... eða var það Addý? Passaðir þú einhverntíman Addý? man það ekki...
Bryndís mín... Já endilega let's! Ég hlakka til að sjá stelpurnar í ballettinum í framhaldinu... Reyndar sagði Birna Lind á leiðinni heim að henni þótti ekki gaman og ætlaði ekki aftur... en það kemur í ljós... kannski kemur hún þá bara næsta haust ;) en vonandi gengur þetta... henni leist ekkert á þessar vondu stóru ballerínur hahahaha þær voru svooo skerí...
Sjáumst allar og takk fyrir að kommenta svona fallega um börnin mín...
Post a Comment
<< Home