Framkvæmum...
Pétur gauuur, geðveikt að sjá þig hér inni...
Hafið þið ekki lent í því að hugsa eitthvað og ekki framkvæma það sem þið voruð að hugsa og fengið það í hausinn svona eftir á því að þið hefðuð átt að framkvæma það sem þið hugsuðuð?
Ég var niðrí FÍH um daginn og var að fara í tíma. Inn í gömlu bygginguna á skólanum kemur kona og ég geng fram hjá henni og hugsa "ég ætti að segja henni að skrifsstofan sé í hinni byggingunni" en svo hugsaði ég "æææ hún getur verið að gera margskonar hluti annað en að fara á skrifsstofuna, ég er ekki að skipta mér af þessu" svo 10 mín síðar er bankað á dyrnar þar sem við erum að vinna ég og Kristjana og spurt "vitið þið hvar skrifsstofan er í þessu húsi eiginlega, er búin að fara um allt og finn hana hvergi" (ég skil ekki hvernig hún gat verið svona lengi að leita því að þetta er ekki svo stórt hús) Þarna hefði ég getast sparað þessari konu sporin og tíman!!! But I didn't!!!
Um dagin var ég á leiksýningu. Horfði á KRÆ-BEIBÍ þar sem er hriiikalega fallegur aðalleikari (og hefur oft verið sagt að strákurinn sé líkur mér hahahha) að leika (Siggi Þór bróðir minn). Svo var ég að spjalla við hann eftir sýninguna og mér var litið sem snöggvast til hliðar og sá lítin strák, svona um 7-8 ára og hann var að taka mynd af Sigga Þór. Ég hugsaði "ætti ég ekki að stinga upp á að ég tæki mynd af þeim saman" svo spáði ég bara ekkert í þennan strák meir og hélt bara áfram að tala við Sigga Þór. Svo þegar heim var komið þá sagði Siggi Þór "æææ ég vorkenndi stráknum svo mikið sem var með myndavélina, hann var heillengi að reyna að taka mynd en ég held að engin hafi tekist" aaaarrrrg, þarna hefði ég getað glatt litla drenginn og hann hefði átt frábæra mynd!!! But I didn't!!!!
Ég held að ef eitthvað jákvætt kemur í hugan okkar þá ættum við að go for it. Ef tilgangurinn er að gleðja eða hjálpa. Auðvitað eigum við ekki að vera afskiptasöm. Það er þarna fín lína en ég held að við vitum svona í flestum tilfellum þegar við eigum að láta vaða og framkvæma hugsunina. Segja eitthvað fallegt við náungan, þrátt fyrir að okkur þykir það asnalegt, kannski er það ákkurat það sem náunginn þarf að heyra :)
Friður...
Ágústa Ósk

2 Comments:
Rosa dugleg að blogga ... og er þetta allt fyrir mig??? ...hehe
Gaman að lesa skrifin þín góða mín. Skilaðu kveðju til þinna.
Þokkalega Álfheiður...
Allt fyrir þig...
Takk fyrir að kíkja við :) Love it!!!!
Skilaðví
Post a Comment
<< Home