Sunday, March 02, 2008

Fallegur dagur...

jamm jamm... góður laugardagur búinn.... þetta var svona stelpu stelpu dagur!

Yndislegt veður einkenndi þennan frábæra dag. Addý kom með mér á Gospel æfingu og var svoooo góð... yndisleg.
Fórum í sund og we went CRAZY í rennibrautinni, fjör, það var 4 stiga hiti og ekkert kalt. Fengum okkur svo ís og fórum svo í mat til mömmu og pabba... notalegt. Svo gisti hún hjá mínum frábæru foreldrum (veit nú ekki hvað ég gerði án þeirra, í alvöru) og ég fór að syngja.... Abba prógram með tveim örðum... svaaaka stuð. Þetta var sem sagt á kvennakvöldi og það var geeeðveikt stuð á kellunum.

HEY VÁ MAÐUR... Ekkert smá skrítið... ég var á leiðinni á æfingu og var að keyra niður brekkuna í Nóatúni og það voru 6 bílar í röð á rauðu ljósi og PÆLIÐI Í ÞVÍ... 5 af þessum 6 bílstjórum voru að bora í nefið!!!! Ég meina það, ég hélt að ég væri farin að sjá ofsjónir!!! En neinei, þeir voru allir með fingurinn á kafii!!! fjúff. hahahah svolítið skondið verð ég að segja.

Ég ætla að fara að sofa... er nefnilega með ónýta mynd frá videoleigunni... ég fór sem sagt í gær og tók ÞVÍLÍKA stelpumynd af því að Ingvar er í London og ætlaði að horfa á hana en þá kom bara "this disc is dirty" svo að ég skilaði henni í dag og fékk aðra sem er líka dirty!!! oooohhh svoooo pirrandi... en ég læt það ekkert á mig fá og lít bara á björtu hliðina og segi bara "jæja ég verð alla vegana ekki þreytt á morgun vegna videogláps"

Góða nótt og dreymi ykkur vel...

Ykkar Ágú-págú

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Það er aldeilis að þú tekur þig harkalega á í að byrja að blogga aftur.. ég styð það heilshugar en er ekki blogg á dag heldur gróft!?! ;)

Í sambandi við síðasta blogg þá á ég uppáhalds tilvitnun úr bók sem heitir Lögmál andans og er svona: "Sýndu hlýju, vegna þess að allir sem þú hittir heyja erfiða orrustu" -Plató-

Heimurinn væri alveg betri ef maður myndi eftir þessu á hverjum degi!

7:44 PM  
Blogger Unknown said...

já þetta er FRÁBÆRT lögmál verð ég að segja...

En með blogg á dag, segi ég bara "kemur skapinu í lag" ef þú skoðar yfir bloggferil minn þá gerist þetta alltaf... ég fer alveg á flug (og það er yfirleitt á vorin) og svo bara ekkert.. svo að ég segi njóttu á með það er ;)

Love you María... finnst þú frábær... eins og ég segi á facebook þá ertu einn af mínum uppáhalds ;)

9:16 PM  
Blogger Unknown said...

og já... vonandi líður þér betur elskan mín!!! Töku poppmessu einhverntíman saman... kannski að dúettinn fagri geti gert einhvað svoleiðis einhverntíman... ahhahahha

9:16 PM  

Post a Comment

<< Home