Nokkrar tilnefningar...
Gúdden tag...
Ég ákvað að hafa nokkra daga á milli blogga vegna háðs í síðustu færslu frá kommentfriend... Ég veit ég dett alveg inn í þennan lúðagýr í sambandi við bloggið og svo sjáið þið ekkert í marga annaðhvort daga, vikur eða mánuði.
Ég ætla að krýna nokkra í dag...
Afrek dagsins í dag:
- Án efa Dagný svilkonan mín sem eignaðist tvíburastelpur í dag!!! TIL HAMINGJU ELSKU ELSKU DAGNÝ OG ARNAR... Þá eiga þau BAAARA 5 stykki af börnum og öfunda ég þau tæplega, en ég samgleðst þeim bara enn meira! Hlakka til að fá að hitta skvísurnar, bíst við að þegar þær vaxa úr grasi fái ein rautt hár eins og Dagný og hin ljóst hár eins og Addý... nú á ég þetta skjalfast! Ég er mjög stolt af henni... Hetjan mín...
Hrós dagsins:
-Fá án efa gæjarnir í fiskibúðinni... rosalega voru þeir nettir á því!!! Hressir og hjálplegir,,, töluðu um að allir dagar þeirra væru föstudagar... þeir fengu aldgjörlega að heyra það frá mér að ég kynni að meta það að ganga inn í fiskibúð og fá svona móttökur... Addý sagði þegar hún kom út í bíl "þetta voru góðir og flottir gaurar" hahaha
Óréttlæti dagsins:
-Án efa hefur Herkúles (kisinn minn) verið beittur mesta óréttlætinu í dag... Hann var að leika með dótamús og naut þess í botn, svo missti hann hana frá sér og þá kemur Dísabella (hinn kisinn minn og kærastan hans) og tekur músina og þegar aumingja Herkúles ætlar að fá hana aftur þá urraði mín bara á kallinn og hann lagðist niður í uppgjafarstellingu... "bbbara svona að láta þig vita það elskan mín að þú mátt bara alveg vera með músina... já bara eins lengi og þú vilt"
Útpælari dagsins:
-Án efa Kjartan Ísak (sonur bróður míns) honum var sem sagt keyrt í skólan í morgun sem er í Hafnafirði og Sæmi býr í Hvassaleiti og kl 10:30 var hringt heim úr skólanum og Kjartan Ísak orðinn veikur... Þeir fara í bakaríið á leiðinni heim og strákurinn svoooona líka hress eftir það! Já já saknaði bara pabba og langaði heim (pabbi hans er að fara til útlanda í 2 vikur og hann ætlaði bara að nota allan þann tíma sem honum gæti gefist)
Jamm fleiri verða tilnefningarnar ekki í dag... en kannski fleiri seinna!
Takk fyrir mig...

4 Comments:
Frábærar tilnefningar hjá þér - mættum við gera meira af því að hrósa hvort öðru. Ég vil hins vegar tilnefna þig sjálfa sem hetjuna mína, þú ert svo ótrúlega dugleg og jákvæð að við hin mættum sko aldeilis taka þig til fyrirmyndar hvað þetta varðar og svo margt annað líka.
Varð svona að kvitta fyrir mig einu sinni, en ég er reglulegur gestur á síðunni þinni mín kæra, ég fylgist með minni konu og oftar en ekki þá uppörvar þú mig.
Love you.
Þín mamma
Takk elsku mamma mín...
Ég veit nú ekki alveg hvort ég eigi þessa lofræðu skilið en ég verð nú að segja að þú ert það sama fyrir mig og ég fyrir þig... það er svooolítið skondið með okkar samband... þegar ég þarf á uppörvun að halda þá ert þú í svo góðum gír og getur hjálpað mér og svo öfugt... þvílíkt dýrmætt...
Elska þig svo mikið og er svo þakklát fyrir að hafa fæðst í ÞESSA fjölskyldu!!!
þín Ágú-págú
Elsku Ágústa mín
Þú ert hér með orðinn uppáhalds bloggarinn minn. Það vantaði nú bara - uppáhalds á svooo mörgum öðrum sviðum.
Ég vil taka undir með mömmu þinni og tilnefna þig sem eina af mínum hetjum. Það er svo margt sem hægt er að taka þig sér til fyrirmyndar með og þú mátt alveg vita það að þú ert mín fyrirmynd á mörgum sviðum! Þú ert svo jákvæð og klár og yndisleg!
Love you sæta stelpa!
Hreindís
Hahhahaha þú ert one of a kind Hreindís!
Þú ert líka alveg gífurlega yndsileg manneskja og það er svoooo mikið í þig spunnið, alveg frábært að fylgjast með þér og er það mér mikill heiður að vera þín uppáhalds á einhverjum sviðum. Takk fyrir það...
Þú ert yndisleg, falleg og flott...
Þín ágú
Post a Comment
<< Home