Thursday, March 13, 2008

Læst WC eður ei???

Hi...

Ég er í Danmörku núna og það er alveg frábært... Er á fullu í skólanum og það eru svo mikil forréttindi fyrir mig að hafa fengið að kynnast CVI og öllu því sem kemur þessu við... I'm so happy!!!

Jiiii í gær var mjög sérstakt sem ég lenti í... Við vorum að halda tónleika og það sem var svona sérstakt við það var að þeir voru haldnir á stað sem kallast Operaen og sá staður var í Christianiu! Já já mín er orðin veraldarvön með meiru.... en í alvöru talað það var mjög sérstök lífsreynsla sem ég varð fyrir... Andrúmsloftið þegar maður gekk um göturnar var mjög rólegt en samt á einhvern hátt þrúgandi, lyktin var angan af hassi og á hverju götuhorni voru karlar að kynda, með eld í stórri tunnu og var lyktin af því líka einkennandi. Ég var að fíla þetta (ekki svo að skilja að ég var að fíla hassið og allt það, heldur bara fólkið fannst mér bara mjög vinsamlegt og þessi götustemning fannst mér heillandi, allt í svona sérkennilegum básum og svoleiðis) og fann ekki til ógnunar á nokkurn hátt en sumir í hópnum voru bara hreinlega hræddir að ganga þarna í gegn. Þegar við gengum upp tröppurnar til að komast inn á staðin þar sem við áttum að syngja voru tvær stúlkur að rúlla sér jaaah líklega heitir það jónu, það var spes og mjög sorglegt. Það voru geðveikir tónleikarnir, ég blúsaði af mér rassinn (svo að nú er ekkert sem heitir rass á mér hahaha iiii jú það er víst nóg af honum enn ;) ) oooooh það var svo gaman!!!! Svo kemur það skrítnasta við þetta allt saman... ég þurfti að pissa, kannski ekkert skrítið í sjálfu sér, en baðherbergið á Óperunni í Kristjaníu var ekki læst og það voru ekki almennilegar hurðar, það var bara svona kúreka-hlerar... Sást á milli hleranna og meðfram og allt... mjööööööög sérstakt, en ég var í spreng svo að ég þurfti bara að let it go... það kom enginn á meðan, svo að það var gott, já og það var ekkert merkt karlar og konur... jebb sem sagt allt verulega frjálslegt í Kristjaníu!

Já ég segi meir bráðum... en ég kann enn betur að meta það að geta læst að mér þegar ég fer á klósettið, því að ég náði engan veginn þessari "ahhhh hvað þetta var gott" tilfinningu, sem maður fær stundum þegar maður er í spreng og kemst loks á klósett, þetta var meira svona "fljót, fljót, fljót buna... drííífa siiiig"

Ok komið nóg af klósettumræðu...

Síja sún...

Hi hi

Ágú

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

hæ yndisleg..mikið var gaman að lesa bloggin þín..alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast hjá þér!

ég er með allt annan blogglink og var alveg rugluð þegar ég fékk skilaboðin um að þú værir farin að blogga upp á nýtt..
fer og skipti þessum link út á bloggsíðunni minni með det samme!

þín eina og sanna..
árný

7:58 PM  
Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir afmæliskveðjuna og kommentið á bloggið mitt sæta Ágú págú! Gaman að sjá að þú kíkir stundum þar inn! Og það hefði verið gaman að fá þig í boðið á sunnudaginn en gott að sjá að þú skemmtir þér í Kristjaníu á meðan :P

Hlakka til að sjá þig sem allra, allra fyrst! Ég sé þig alltof sjaldan!

Love you
Hreindís

8:39 PM  

Post a Comment

<< Home