1. april
Í gær hringdi Aron Elí í mig frá skrifstofunni í skólanum sínum eftir skóla og bað mig um að sækja sig því hann væri svo haltur. Ég skaust náttlega um leið út í bíl og brunaði niðrí skóla að sækja slasaða drenginn minn. Á móti mér tekur glaður drengur á hjól sem kemur á harðaspani á móti mér og spyr "ertu komin mamma?" og ég segi að sjálfsögðu "já" og þá segir hann sigri hrósandi "FYRSTI APRÍL" váááá ég hef aaaaaaaldrei verið tekin svona!!! Mér fannst þetta fyndið með honum og hló mikið því þetta kom mér svo innilega á óvart!
Í dag fór ég að fá mér bensín. 25 kr af lítranum já takk... það má fara inn í bílinn minn!!! Ég lét fullt af fólki vita í gegnum sms í símanum og kannski komu allir tíkallarnir þannig út á eitt ahhaha veit ekki. Kom á bensínstöðina, var alveg viðbúin því að þurfa að bíða í röð en engin röð var þar og ég renndi bara bílnum að næstu pumpu og setti kortið í, tók svo dæluna, setti hana í gatið og dældi þangað til að bíllinn gubbaði næstum bensíni. Þegar ég kom inn aftur og setti hann í gang þá fór rauða nálin aaaalveg upp og það er sjón sem ég hef ekki séð mjööög lengi! Mér leið bara mjög vel þegar ég keyrði af stað :) Ég er nefnilega sú týpan sem týmir ekki að kaupa sér mikið bensín, dæli yfirleitt ekki fyrir meira en 2000 kall og nálin hreyfist varla. Bróðir minn sagði eitt sinn við mig að hann væri hissa á að bensínljósið mitt væri ekki orðið perulaust því að það væri í raun alltaf logandi :/ EN EKKI NÚNA!!!
Mér finnst þetta frábært átak sem vörubílstjórar og trukkar hafa verið í !!! Hibb hibb húrrey...
Voru þið tekin 1. apríl?
Kv Ágú

3 Comments:
En FRÁBÆRT aprílgabb! Sonur þinn er snillingur!
Ég klikkaði heldur betur á bensíninu. Fattaði þetta ekki fyrr en of seint! Var nett fúl að hafa gleymt þessu en sånn är livet eins og Svíarnir segja (mín alltaf að æfa sig í sænskunni!)
Gaman að sjá blogg frá þér!
Knús og kram
Hreindís
he..he..við erum líkar að mörgu leytinu elsku frænka..tími ekki heldur að kaupa mikið bensín í einu..:)
en fékk smsið frá þér í gær og renndi á benstínstöð rétt fyrir vinnu og þurfti ekki að bíða lengi heldur..
rosa gaman að vera á sprengfullum bíl af bensíni..takk!
nei..ég hljóp ekki apríl..það var reynt en ég var totally á verði..en ég lét kynstrin öll af börnum hlaupa apríl og höfðum við öll gaman af!
gott hjá aroni elí!
árný
Mega!
Vá hvað Aron Elí er mikill snillingur... og hefur nú alltaf verið.
Og vá hvað þú ert búin að vera dugleg að blogga svo mín beið mikil og skemmtileg lesning.
Knús á þig :)
- Ingunn Huld
Post a Comment
<< Home