Sigurhelgi...
Halló halló heillandi lesandi :) (önnur augabrún upp)
Mikið rosalega átti ég góða helgi, er enn með bros á vör...
Föstudagur:
Vaknaði snemma og sótti Sigga Þór og Ólöfu og við lögðum af stað til Akureyrar í sigurförina :) Við áttum frábæran akstur. Stoppuðum og fengum okkur að borða, hlustuðum á frábæra tónlist, skiptumst á skemmtilegum sögum og bara nutum þess í botn að vera að ferðast í faaallegu veðri. Ég og Siggi Þór skiptumst á að keyra. Komum á Akureyri og Siggi Þór fór á æfingu fyrir keppnina... Svo skelltum við okkur í sund og svo á Greifan... Kvöldið endaði með hriiikalega fyndnu leikriti þar sem frænka mín Kristín Þóra fór gjöööörsamlega á kostum... ó jiii við öskruðum af hlátri öll þrjú... roosalega var þetta skemmtilegt!
Laugardagur:
Þurftum að mæta á æfingu snemma (segi við... en auðvitað var það bara hann... við vorum jú mikilvægar líka því að við vorum "standa við bakið hópurinn" og hvöttum hann til dáða... ég var svoooo viss um að hann mynd vinna þetta) og vorum á æfingu og rennsli alveg til 4 um daginn.. þá fórum við heim og lögðum okkur örlítið. Fengum okkur að borða og svo bara keppnin... Keppnin var náttlega sérlega skemmtileg og brá mér mikið við það að gítarinn hans var ekki inni... en ég var svoooo stolt af honum að halda bara ótrauður áfram og spila bara með. Sýndi mjög mikið hvað hann er pro og öruggur með það sem hann er að gera. Hann á framtíðina fyrir sér gaurinn! Ég hef miiikla trú á honum... Svo fór þetta eins og maður hafði sagt allan tíman og drengurinn vann. Hann bjóst ekki við þessu, svo að þetta kom honum skemmtilega á óvart. Hann er með fæturnar á jörðinni þó svo að á einni viku hafi hann klárað vel heppnað leikrit (sem aðalleikari), komist inn í leiklistaskólan (sem er nú ekki hlaupið að) og unnið söngkeppni framhaldsskólana!!! Ég er nú hrædd um að ég væri búin að fljúga örlítið upp frá jörðinni en hann stendur stöðugur... vá mér finnst það magnað. Eftir keppnina fórum við bara upp á hótelherbergi að tjilla... mjög notalegt... Svo fór ég heim til mín (ég gisti hjá frænku minni) og ákvað að kíkja aðeins á ballið og hlusta á hljómsveitina Buff. Mikið var það gaman, geggjuð hljómsveit... þeir höfðu það svoo gaman á sviðinu og gerðu allt sitt svo vel. Gaman að heyra loks í Pétri almennilega þar sem hann er kallaður "bakrödd Íslands" ég verð nú aðeins að fá að segja að hann er nú bara muuun meira en bakrödd... hann er fanta söngvari!!! Hinir líka Stebbi og Hannes stóðu sig mjög vel... þétt hljómsveit þarna á ferð! Ég stóð bara aftast og hlustaði... horfði á krakkana dansa og skemmta sér...
Laugardagurinn var í heild sinni alveg frááábær og ég naut hverrar mínútu!!!!!!!
Sunnudagurinn:
Tókum okkur góðan tíma í að vakna og fengum okkur að borða í róleg heitum. Keyrðum svo heim í sæluvímu eftir frábæra helgi á Akrueyri. Þegar heim var komið voru mamma og pabbi búin að grilla sigurgrill. Sæmundur og Vala, Ingvar og Addý mætt á staðin og allir að rifna úr stolti yfir litla kallinum okkar!!! Sigurður Þór Óskarsson er flottastur!!!!
Þetta var bara lítil ferðasaga takk Siggi Þór að vilja hafa stóru systir með og Ólöf, það var frábært að fá að kynnast þér örlítið betur. Takk Krístín Þóra fyrir að leifa mér að sofa heima hjá þér, þú gerðir þessa helgi yndislega og takk fyrir elsku þið sem gerðuð þessa helgi sérstaka!!!
Ykkar Ágú

7 Comments:
Þú mátt svo sannarlega vera stolt stóra systir ... til hamingju með bróður þinn!!! Bara flottur :o)
Þetta er ekkert nema frábært... ég er mjöög glöð fyrir hans hönd!!
Þessi.... þessi á eftir að sigra heiminn!
Sigurhelgi í Sigurðarvikunni.
Takk fyrir Álfheiður... já ég er svo sannarlega stolt af honum... alveg glæsilegur!
hahha María Sigurhelgi í Sigurðarvikunni... minnir mig á eitt sem ég las á vefnum og það var Sigurvegari Þór Óskarsson... mér fannst það svolítið flott :)
Ég er líka glöð :)
bjóst ekki við neinum öðrum endalokum..frændi minn er snillingur..allt sem hann snertir verður að gulli í þessum málum..til hamingju þið öll..:)
árný frænka..
hhahaha... það er svo gaman að lesa þetta blogg því að þá rifjast þetta allt saman upp fyrir manni... sem er svo gaman því að þetta var svo ógeðslega skemmtileg ferð...
Ég vil nú bara þakka þér fyrir að hafa nennt að koma með Ágústa! Þú ert án efa langbesta stóra systir sem maður getur hugsað sér! Að nenna að koma sjálfviljug til AKUREYRAR að horfa á mig syngja eitt lag! Og ég tala nú ekki einu sinni um að nenna að vakna kl. 10 og vera á æfingu með mér til kl. 4!! Ég á ekkert einasta orð alveg hreint! Bara takk fyrir allt. Það var ótrúlega gaman að hanga þarna með þér og Ólöfu og Kristínu. Ferð sem maður mun muna eftir og verður gaman að rifja upp eftir nokkur ár...
Þú ert yyyyndisleg!!
Þinn lilli bróðir
Já ástin þetta var yyyndislegt!
Það kom bara ekkert annað til greina en að fá að upplifa þetta með þér (svo að það er ég sem á að þakka þér fyrir að vilja hafa mig með). Ég var alltaf búin að hugsa það að fara á keppnina því að ég vildi vera í salnum þegar þú myndir sigra og þegar þú sagðir mér að þetta yrði á Akrueyri þá var það nú bara enn meira gaman. Þegar þú sagðir að þetta væri á Akreyri held ég að ég hafi ekki einu sinni hikað, ég sagði bara "ég kem með" hahah það sem fór í gegnum hugan þá var "ég vil ekki sjá hann sigra í sjónvarpinu! hahahah
TAKK ELSKU SIGGI ÞÓR MINN!
Ég er svooo þakklát fyrir vináttu okkar, hún er mjööög dýrmæt...
Elska þig...
Þín alltaf...
Post a Comment
<< Home