Wednesday, September 13, 2006

¨Rockstar!!!!!

Jahérna... klukkan er 2:19 að nóttu til og ég er að reyna að kjósa hann Magna okkar en ekkert gengur... kerfið er að springa!!!

En ég verð nú að segja það að sá sem mér fannst bestur í kvöld (nú verður bróðir minn hneikslaður en það er allt í lagi því að hann les held ég ekki síðuna mína ;) hahahaha) en já mér fannst Lukas bestur í kvöld.. vá ég hélt að ég myndi nú seinnt segja þetta en jú það kom... mér fannt hann mjög góður í kvöld... ég spyr mig hvernig mömmu átti hann?? sííís maður... hann þarf á þeim að halda. Magni kemur bara heim og faðmar fjölskylduna og veðrur enn heimsfrægur á Íslandi sem og auðvitað um allan heim...

Mér fannst Dilana geggjuð í Roxanne, ég er svo ánægð með hana að hafa trúað á sjálfa sig og það sem hún sá fyrir sér og æltaði að gera, hún fékk nú ekki fídbakkið frá hljómsveitinni en hún breytti ekki... þetta var rosalega flott!!!

Toby var líka fínn... ég man samt ekki mikið, en hann var ágætur!

Eitt sem ég er líka búin að komast að er að ég ætla ALDREI að kaupa KFC ojjjj hvað þetta eru hræðilega leiðinlegar auglýsingar...

Heyrumst...

Kv. Ágústa