Wednesday, May 24, 2006

EXTRA!!!

Þetta var alveg hreint dásamleg helgi sem við vinkonurnar áttum saman... við sváfum mjööög mikið, borðuðum óóógeðslega gott (bæði skiptin á Greifanum og í bæði skiptin ostaveislu (5 tegundir af osti) með pepp og svepp) hlóum svaaaka mikið og slöppuðum af. Það sem bar af þessa helgi þegar ég hugsa til baka er allt sem heitir "extra effort". Guð svoleiðis dekraði við okkur stelpurnar... eitt dæmi: það var snjókoma, hálfgerð hríð þegar við stöllurnar gengum inn innganginn á sundlauginni á Akureyri og við sögðum við Guð " það væri yndislegt að fá sól í pottinum" og þegar við komum út þá var svona heiðskýr hringur á lofti og sólin steikti okkur í 1 klukkutíma og korter. Svo þegar við þurftum að fara upp úr þá var orðið kalt. Annað : við vorum að keyra frá Egilstöðum til Akureyrar og Alda bara hastaði á snjóinn og við vorum í æðislegu ferðaveðri allan tíman ;) þetta var bara allt svona. Annað : Gistihúseigandinn heyrði að við værum að fara á Greifan og þá var hann einmitt með samning við þau um að gestirnir hans fá 15% afslátt af mat þar....... sumir myndu segja að þetta væri allt saman tilviljun, en ég kýs að kalla þetta blessun (hversu barnalegt sem sumum finnst það) og að Guð vilju gefa okkur þetta extra.

Ef Guð konungurinn vill gefa okkur extra af hverju gerum við það þá ekki líka??? Bæði með Guð í huga og líka bara hvort annað??? Eitt dæmi frá þessari helgi, um hana Öldu mína... hún bjó um mig í gestaherberginu sínu og þegar ég kom upp í þá var heitur hitapoki undir sænginni minni, hann hafði hitað fótasvæðið dásamlega vel og ég kúrði með hann á fótunum á mér, þetta var OFUR NOTALEGT. Alda þurfti þetta ekki, en með þessu sýndi hún mér alveg gífurlega væntumþykju og ég fékk svo að finna það. Gerum meira af þessu (Alda er snillingur í þessu) við maka okkar, börnin okkar og náungan... eitthvað sem við þurfum ekki ennnnn það sýnir svo mikið hversu mikið okkur þykir vænt um viðkomandi... Guð þurfti ekki að gefa okkur sól í pottinum en með því að hann gerði það þá sýndi hann okkur hvað honum þykir vænt um okkur.. við vissum það alveg en þið skiljið... ég vissi alveg að Öldu þætti vænt um mig en með því að setja hitapokan þá sýndi hún mér það svo greinilega með verkunum. Iljum hvort öðru um hjartaræturnar, gefum þetta extra!!!

Endaði svo tíman hjá Öldu á að halda Volare kynningu hjá henni fyrir yndislegar konur. Við áttum frábæran tíma og þær fóru í fótabað og dekruðu svolítið við sig með frábærum vörum ;) Takk Álfheiður, Fanney, Kristín, Íris Lind og Bogga... þið voruð frábærar á minni fyrstu kynningu ;)

Takk Alda mín fyrir helgina... þetta var YNDISLEG afmælisgjöf!!!
Love you... Extra mikið!

Ágústa...

P.S.
Dóttir mín er á fullu að læra hvað fingurnir heita og var að koma til mín, hélt um löngutöng og spurði "er þetta langaamma" hahahahahha ein að muna bara part af nafninu... hahahahha varð að segja ykkur þetta

Friday, May 19, 2006

Akureyri beibí

Jæja þá er komið að litlu dekurferðinni okkar Öldu... vá hvað við ætluðum að liggja í sólbaði og hafa það gott, en svo hringir Alda í mig í gær og sagði mér að fyrir austan væri jólasnjónum að kingja niður og versta veðrinu og stormi væri spáð á norðurlandi um helgina... ó vell. þá höfum við það bara gott inni! allavegana er það á tæru að við ætlum að hafa það gott og þá er fátt sem getur eiðilagt það skal ég segja ykkur... it's all in our mind!!!!

Sjáumst eftir helgina ;)

Sjáumst á eftir Alda ;)

gúúúd bæ...

Friday, May 12, 2006

Gleði, gleði, gleði!

Góðan og blessaðan daginn...

Ég vil byrja á að þakka ykkur elsku vinir mínir fyrir hlýjar afmæliskveðjur... þið eruð ómetanleg og gefið lífinu lit... hvert og eitt ykkar!!!

Lífið er svo yndislegt, rosalega er mikill munur að hafa sumar og sól... ég elska þetta líferni. Við hjónin erum búin að vera núna í nýju vinnunni í tvær vikur, fyrir þá sem ekki vita erum við að taka við búðinni HIGH AND MIGHTY þið getið séð nánar um það í tveim færslum framar) og þetta gengur svo vel, við erum að fíla það svo mikið að vera svona mikið saman og við elskum að dekra við viðskiptavininna og gefa þeim 150% þjónustu...
Svo var ég að byrja að selja Volare snyrtivörur og ég er með svo góða tilfinningu fyrir því dæmi. Þetta eru snyrtivörur sem ertu ræktaðar úr aloe vera og fleiri jurtum úr Jórdandalnum í Ísrael og svo úr dauðahafinu (sem Jórdandalurinn liggur við)... Guð lofaði Ísraelsmönnum land sem myndi flæða í mjólk og hunangi og það gerði hann svo sannarlega... þetta eru meiriháttar vörur... mig langar að spyrja ykkur kæru vinir... mynduð þið vilja halda kósýkvöld heima hjá ykkur, þar sem ég kynni nokkrar vörur, býð ykkur í fótabað og hafa gaman saman??? endilega hafið þá samband við mig, annað hvort í síma 899-5886 eða á e-maili eða bara í kommenti hér á síðunni... það væri svo gaman að fá að hitta ykkur sem eruð að koma hér inn og lesa! :)

Ég er að fara í stigspróf í söng á mánudaginn og er búin að vera að æfa mig á fullu undanfarið og mér gengur svo vel... ég hlakka bara til að fara og spreyta mig á prófinu. Og svo annað í sambandi við söng... ég er að fara að syngja einsöng á samkomu á sunnudaginn 14. mai... mikið rosalega væri gaman að fá að hitta einhvern þar ;) Endilega kíkið þið á samkomu að Fossaleini 14 í Grafarvogi kl 20:00.

Ég ætla að segja þetta gott... þetta voru bara smá fréttir úr lífi mínu núna... hey... endilega hugsið þetta með kósýkvöldið.. langar ykkur ekki endilega að fá mig í heimsókn og nokkrar vinkonur í viðbót, kynnast frábærum vörum og njóta góðs af (það er alltaf gjöf fyrir gestgjafan ;) )

Guð blessi ykkur svooo ríkulega næstu daga...

Ykkar Ágústa Ósk

Sunday, May 07, 2006

7. mai

Fallegur dagur og hefur verið fallegur dagur síðan ég man eftir mér... Ég get bókað það að það verður gott veður... ég man ekki eftir einum einasta 7 mai án þess að það sé sól og mikið vor í lofti...ég elska þennan dag! Annað við þennan dag, hann minnir mig alltaf á að ég er orðinn einu ári eldri en ég var þann 6. mai og fyrir það er ég líka þakklát fyrir... enn eitt árið í heilbrigði, ást og umhyggju vina og vandamanna... ég elska þennan dag! Mamma mín og pabbi eignuðst að sjálfsögðu gullmola þann dag og held ég að þau séu þakklát hahhahah. Þennan dag gaf Guð mér, mér persónulega til þess að gleðjast, fá gjafir, fá hamingjuóskir já og bara athygli hahhahahaha. Þennan dag valdi Guð sérstaklega og skrifaði í bókina sína um að ég ætti að fæðast... magnað... mér þykir vænt um það. Ég á þennan dag nema ég veit um eina sem á hann með mér, annars hef ég ekki vitað um neinn annan sem á þennan dag... Guð blessi litlu vinkonu mína sem á hann með mér :) (hún er bara tveggja ára í dag) Munaði litlu að ég fengi Kísak í afmælisgjöf (sonur bróður míns) hann er algjör snillingur og eitt það fallegasta barn sem ég hef séð en hann fékk sinn eigin 9.mai.

Ég er búin að eiga yndislegan afmælisdag. Ég og Ingvar fórum á humarstaðinn á Stokkseyri í gær og keyrðum svo Frakka til Reykjavíkur (danskennara og höfund af dönsunum sem Solla Stirða í Lazy town litla sæta stelpan dansar) og við náðum að vitna svo mikið fyrir honum og hann spurði og spurði um okkar Jesú... svo gáfum við honum lofgjörðardiskinn okkar með Michael W Smith og biðjum núna bara fyrir að hann opni hjartað sitt fyrir Guði... Í Jesú nafni...

Ég svaf út í morgun (krakkarnir gistu hjá afa sínum og ömmu... takk elsku foreldrarnir mínir fyrir að passa fyrir okkur. Það gaf okkur svo mikið að geta bara verið svona tvö ein saman) fékk morgunmat í rúmið frá bóndanum... yndislegt. Svo lærði ég í tónfræði og labbaði svo yfir til mömmu og pabba, fórí sólbað og hafði það gott... ég fékk sparibuxur og bol frá mömmu og pabba, svo íþróttagalla frá bóndanum og frá krökkunum bol og veski... ekki amalegt það...

Fórum í afmæli til Bjarneyjar (hún átti afmæli 5 mai) og hittum þar yndislegt fólk, Vildísi og Eika, Benna og Björg það var gaman... svo enduðum við fjölsk. að fara á KFC að borða kjúlla... þar voru gígantískar rennibrautir fyrir krakkana og þau voru svo ánægð og glöð!

Sem sagt FRÁBÆR dagur og mikill friður...

Ég fékk líka frábæra afmælisgjöf frá Öldu minni... þau hjónin hringdu og sungu dúett fyrir mig (afmælissönginn) og Alda bauð mér til Akureyrar, bara við tvær að slappa af, sauma, prjóna, sund, (bikinivax... óóóó mæn) sofa út, borða, tala jájájá tala og tala saman... finna okkur stað fyrir Júróvísjon og bara að njóta þess að vera með hvorri annarri... hlakka til Alda mín og ég elska þig svo mikið!

Ég kveð í bili... enda góði dagurinn minn senn á enda og góður dagur framundan...
Kær kveðja Ágústa Ósk

Monday, May 01, 2006

Stjörnuspá???

GÓÐAN DAGINNNNNN!

Já dagurinn í dag er góður dagur, því að við getum ákveðið það. Við getum líka ákveðið að dagurinn í dag verði ekki góður. Það sem hafur verið mér hugleikið undanfarið er hvað við höfum mikið að segja um hvernig dagarnir, kringumstæður og athafnir daglegs lífs ganga fyrir sig. Með jákvæðu hugarfari getum við horft á það sem kemur fyrir okkur sem tækifæri til að þroskast og verða sterkari persónur. En með neikvæðu hugarfari getum við verið gjörsamlega ónýt og jafnvel leiðst út í þunglyndi. Við höfum alveg svakalega mikið um það að segja...

Hvernig hugsum við... hugsum við að það gerist aldrei neitt gott fyrir mig?
- Börnin mín eru að vera veik (þó svo að þau gráti smá eða eru bara hreinlega óþekk, finnum við þá alltaf afsökun fyrir náungan og segjum að við höldum að börnin séu að verða veik???? og með því þá tölum við veikindi inn í líf barnanna okkar!)
- Hugsum við að ég verð að búast við því versta svo að ég verði ekki fyrir vonbrygðum?
- Þegar eitthvað slæmt gerist fyrir okkur... segjum við ,,Týpíst ég er aldrei heppin" eða ,, þetta er alveg dæmigert fyrir mig, það gerist aldrei neitt gott hjá mér"
og lengi mætti áfram telja.

Ég fer stundum inn í mjög neikvæðar hugsanir og finn ég rosalegan mun á mér við það... allt verður svo mikið erfiðara og það er svo svart framundan... En nú er ég á fullu að taka til í huganum mínum... hverju leifi ég að dvelja í huganum á mér??? Allavegana er ég að gera mitt besta til að hafa það jákvætt.

Við eigum svo sannarlega að búast við því besta úr lífinu
Við eigum að búast við því besta frá fólkinu í kringum okkur... ekki ætla því að það sé að gera okkur mein og tala illa um okkur... Ég á svo rosalega auðvelt með að gera fólki upp hugsanir og þá eru þær yfirleitt neikvæðar... ,, hann er örugglega að hugsa hvað ég sé léleg í þessu eða hinu" eða ,, hún vonar kannski að mér mistakist" eða eitthvað annað... pælum aðeins í því hvernig við búumst við að fólk hugsi um okkur, því að það er kjörið tækifæri til að byrja jákvæða ferlið... s.s. að ætla fólki ekki það neikvæða!

Svo eitt í lokin í sambandi að búast við að dagurinn verði góður og ekki vera að vænta þess að allt fari úr skorðum... þá myndi ég ráðleggja þeim sem lesa stjörnuspár að hætta því. Ég sá grein í Nýju lífi um konu sem er fíkill á stjörnuspá... hún lætur stjörnuspá stjórna lífinu sínu... en hvernig bregst hún við þegar hún fær svona setningar...
- Þetta er ekki þinn dagur og hugmyndirnar koma frá öðrum en þér (hún mun ekki einu sinni reyna að fá hugmyndir...)
- Útlit er fyrir ósamkomulag og jafnvel rifrildi á heimilinu. (við getum bókað ósætti... því að hún býst við því!)
- Mikil spenna er í loftinu og erfitt getur reynst að ná samkomulagi (hún býr til spennuna sjálf með því að vera búast við henni)
- Einhverjir erfiðleikar eru í ástarsambandi þar sem þér finnst ást þín ekki vera endurgoldin. Þú gerðir rétt í því að reyna eitthvað nýtt. (best að hætt með honum, næsti hlýtur að verða betri en þessi... stjörnurnar segja mér það, borgar sig ekkert að reyna að vinna í málunum)
- Grár hversdagsleikinn er heldur leiðinlegur um þessar mundir. (Hvernig væri að reyna að finna upp á einhverju skemmtilegu til að gera hversdagsleikan skemmtilegri, frekar en að sætta sig við að þetta af því að stjörnurnar segja að þetta sé bara svona)
-Einhver hefur í hyggju að komast fram fyrir þig á ákveðnum vettvangi og þú mátt hafa þig allan við að halda stöðu þinni. (einmitt það sem ég var að segja áðan... að gera öðrum upp hugsanir og neikvætt viðhorf... við getum bókað það að viðkomandi sem fær þessa stjörnuspá verður tortryggin við náungan)
-Þú gengur í gegnum erfitt tímabil í sambandi sem að venjulega er mjög gott. Nýjar hugmyndir koma fram síðari hluta dags. (best að vera vakandi fyrir því sem er venjulega gott en verður erfitt í dag... en verst að ég get ekki fengið nýjar hugmyndir þangað til seinni partinn... vonandi fer þetta ekki að ganga illa fyrir en í kvöld svo að ég geti gert eitthvað í málunum, því að ég er alveg geld þangað til!)

Tek það fram að þetta er alvöru stjörnuspá sem ég fann á netinu fyrir nokkur merki fyrir daginn í dag 1. mai... þetta er ekki eitthvað sem ég er að búa til... Mér finnst þetta persónulega ekki jákvætt...

ÉG hef ekki meira að segja nema Guð er góður og elskar okkur svo mikið og þráir að gefa okkur GÓÐAR gjafir og þráir að hjálpa okkur að snúa öllum málum upp í jákvætt og uppbyggilegt fyrir okkur.... BÚUMST VIÐ ÞVÍ!!!!!!!!!!!

Bestu kveðjur
Ágústa Ósk Óskarsdóttir