Saturday, November 25, 2006

Köben beibí...

Bara rétt að segja að eftir 7 klukkutíma verð ég að fljúga til Köben ;)

ég er sem sagt að fara að halda tónleika í JAZZHOUSE Í KÖBEN með valinkunnu liði... m.a. Rannveig Kára, Regína ósk, Friðrik Ómar, Heiða í Idol, Páll Óskar, helga Möller, Sigga Beinteins, Matti í pöpunum og fleeiiiiri... Þetta verður gaman og ætla ég að taka Kirk Franklin lagið "Hold me now" hlakka til...

Megi Guð blessa flutninginn minn og snerta við hjörtum fólksins...

Love...

Ágústa Ósk

Friday, November 03, 2006

Killer Queen

Hæhæ...

Ég horfði á svolítið athyglisvert brot um daginn, úr Kastljósi. Var þetta brot um hvort seinþroska fólk ætti að fá að eignast barn og viðtal við freeekar krúttlega svona foreldra... Ég verð að segja að ég held að þetta fólk leggi sig bara mun meira fram heldur en t.d. ríkt fólk sem kaupir krakkana sína og lætur þau alast upp á tölvuleikjum og skóladagheimilum... Það er margt ábótavant hjá þessum þroskahömluðu en þau þiggja aðstoð og segi ég bara gott hjá þeim! Ég legg til að við sem trúum á bænina, biðjum fyrir þessum litla strák. Að hann verði ekki fyrir aðkasti vegna foreldra sinna.... það er það eina sem ég hef í maganum út af!

Veit ekki af hverju ég þurfti að tjá mig aðeins um þetta mál, það hefur verið í hausnum á mér síðan ég sá þetta!

Ég fékk eitt aðalhlutverkið í Rock-söngleik sem verður settur upp í skólanum mínum (FÍH). Það eru sem sagt 3 aðalhlutverk og er ég það þriðja... þetta er geggjað hlutverk. ÉG verð sem sagt vonda konan sem kallast Killer Queen og byggist þetta á lögum með Queen... ég mun syngja 6 lög og eru öll þessi lög alveg svakalega skemmtileg... Killer Queen, A kind og magic, Play the game, Don't stop me now, Another one bites the dust og rock kaflan í Bohemian Rhapsody!!! Síííís hvað þetta verður gaman. Ég mun sýna á mér algjöörlega nýja hlið hahahhaha þessi týpa er mikill groddi og syngur samkvæmt því... rífur röddina og syngur mjög rockað.. úúú gaman, nýtt tjallens fyrir mig og ég elska það... Þetta verður sýnt í lok janúar.

Guð blessi ykkur kæru vinir...

Ágú