Friday, February 23, 2007

geggjaðir tónleikar


Þá er sýningin búin og það gekk rosalega vel, hvernig sem á málið er litið... tónlistin var frábær, kórinn skemmtilegur, einsöngvarar frábærir.. og þar eru ég og María meðtaldar að sjálfsögðu.. við fórum á kostum (þó ég segi sjálf frá)... ég ætla að skilja eftir tvær myndir af mér sem KILLER QUEEN...

Það er ekki laust við að það sé töluverð áreynsla í gangi og miiiikill fílingur skal ég segja ykkur!

Á sunnudaginn fer ég til Danmerkur og er að fara að hefja þar 3 ára kennaranám í söngtækninni sem hefur verið að gera kraftaverk fyrir röddina mína síðasta árið... Complete vocal technique heitir sú tækni og hlakka ég ekkert smá til að mennta mig í þeim fræðum og hjálpa öðrum... hú-hú... love it!!! Ég verð fram á föstudag og kem þá aftur í 6 vikur og fer svo aftur úr í 5 daga og svo framvegis... þetta verður yndislegt!

Jæja.. heyrumst brátt og fyrir ykkur sem misstuð af sýningunni þá verður önnur eftir páska! GEGGJAÐ STÖFF!!!

KILLER KVEÐJA......... Ágústa Ósk

Monday, February 19, 2007

WE WILL ROCK YOU...

JJJJJÆJA nú er komið að því...

Á fimmtudaginn verður sýndur söngleikurinn We will rock you... eða frekar svona konsert útfærsla af söngleiknum sem er byggður á lögum eftir QUEEN... Ég er eitt aðalhlutverkið, mun leika Killer Queen sem er vond kona! hahahahhah... Og svo er María sem er í gospelkórnum með mér aðalhlutverkið... jeiii... gaaaaman... Þetta verður alveg svaaaakalega gaman og ég hlakka alveg svaka til... svo að þið ykkar sem getið komið, verið svo hjartanlega velkomin... hér læt ég beisik upplýsingar...

Staður: Tónlistarskóli FÍH

Kostar: EKKERT

Kl: 20:00

Hvenær: Fimmtudaginn 22. febrúar

Hlakka til að sjá ykkur...

Love Ágú