Wednesday, July 26, 2006

Allt gott að frétta...

Hola...

Já já þá er maður komin til Íslands eftir FRÁBÆRA ferð... Við (ég, Ingvar, Aron Elí og Addý) fórum sem sagt til Spánar með elskulegu foreldrum mínum og það var svo meiriháttar... svo seinni vikuna kom Sæmundur með krakkana sína og þá var kátt á hjalla... mikið svakalega var gaman að vera öll svona saman og kynnast betur... Krakkarnir voru alveg svakalega góð öll saman og við nutum okkar í botn. Við gerðum allt sem góðum ferðamönnum sæmir... fórum á ströndina, Addý og Birna Lind þurftu að tæma úr skónum ef það komu evö sandkorn ofaní en Aron Elí og Kjartan Ísak voru þvílíkt flottir í sjónum og gleymdu sér alveg. Fórum í tívolí og aþr skemmtu allir sér stórkoslega... Sundlaug, þar var hákarlaleikurinn vinsælastur duru-duru-duru-duru. Fórum í púl og þar var ég ekki að gera góða hluti Sæmundur og Ingvar fóru töluvert í púl svona seinnt á kvöldin eftir að allt var komið í ró. Fórum mikið út að borða næææs, búðir, sólbað, skoða okkur um og bara að njóta þess að vera til... ég er strax farin að hlakka til næstu ferðar ;) Takk fyrir ferðina allir sem voru með mér, þið voru bestu ferðafélagar ever... elska ykkur alveg rooosalega mikið.

Svo er það að frétta að ég fékk inngöngu inn í Háskóla Íslands og er stefnan tekin á ljósamóðurina (hlakka til að taka á móti börnunum ykkar í framtíðinni ;) og þarf ég að byrja á hjúkkunni. Guð ætlar að vera með mér í þessu og það er svo greinilegt miðað við hvernig í komst inn, Hann potaði mér einhvernveginn inn bakdyramegin hahahaha. Ég var búin að fá tvisvar neitun og eitthvað en ég er komin inn jeiiii, ég veit alls ekki hvernig Guð fór að þessu, en svona virkar hann einmitt, þegar allar dyr virðast lokaðar þá er hann með einn leinigang sem við sjáum ekki í fyrstu... snilld að tilheyra svona karakter, vóóó og ég er barnið hans.. forréttindi!!!

Kisan okkar er í smá heimsókn núna og verður hjá okkur í nótt... hún er alveg hrein dásamleg svo róleg og góð, um leið og hún er komin í fangið er hún farin að mala og svo mjög leikglöð... alveg yndisleg...

Gott í bili...

Kær kveðja Ágústa Ósk