Tuesday, April 22, 2008

Endilega lesið niður og njotið minninga..

Hér eru 45 atriði sem ég fékk sent á facebook og ákvað að þýða þau, því að þau glöddu mig svo mikið... Þetta minnir mann á að það þarf ekkert alltaf svo stór og mikil atriði til að verða glaður með hvern dag... Njótið vel!!! Sum atriðanna færðu mér sérstakan yl í hjartað og það er hellingur af þessu bara ný búið að gerast... það var gaman að rifja upp við öll atriðin hvenær þetta og þetta gerðist síðast fyrir mig...

1. Verða ástfangin.
2. Hlægja svo rooosalega að þú meiðir þig í andlitinu.
3. Heit og yndisleg sturta.
4. Engin röð í búðinni.
5. Sérstakt augnatillit.
6. Fá skemmtilegt mail.
7. Fara í bíl/mótorhjólatúr á fallegum stað.
8. Heyra uppáhaldslagið sitt í útvarpinu.
9. Liggja í rúminu og heyra rigninguna dynja á þakinu.
10. Heit og hrein handklæði beinnt út úr þurrkaranum.
11. Súkkulaði shake (jarðabera eða vanillu).
12. Freyðibað.
13. Fliss.
14. Góðar samræður.
15. Ströndin
16. Finna 5000 kall í vasanum á jakkanum sem maður hefur ekki farið í síðan seinasta sumar.
17. Hlæja að sjáfum sér.
18. Horfa í augun á einhverjum og vita að sá hinn sami elskar mann.
19. Símtal sem varir lengi við einhvern sérstakan
20. Hlaupa í gegnum úðara.
21. Hlæja af engri ástæðu.
22. Heyra einhvern segja við mann að maður sér fallegur.
23. Hlæja af einkahúmor með vinum
25. Óvart heyra einhvern segja eitthvað fallegt um mann.
26. Vakna og líta á klukkuna og fatta að maður á enn nokkra tíma eftir áður en maður þarf að vakna.
27. Fyrsti kossinn (annað hvort fyrsti ever eða með nýrri manneskju)
28. Eignast nýja vini eða vera með þeim gömlu.
29. Leika við nýjan kettling eða hvolp.
30. Þegar einhver fiktar í hárinu á manni.
31. Góðir draumar.
32. Heitt súkkulaði.
33. Ferðast um Ísland með vinum.
34. Róla í rólu.
35. Mynda augnkontakt við ókunnugan.
36. Baka smákökur.
37. Fá eitthvað heimagert frá vini.
38. Halda í höndina á einhverjum sem manni þykir vænt um.
39. Rekast á gamlan vin og átt sig á því að sumt (gott eða slæmt) breytist aldrei
40. Sjá svipinn á einhverjum sem fær gjöf frá þér sem þú veist að þeim mun líka vel.
41. Horfa á sólarupprás.
42. fara fram úr á morgnanna og vera þakklátur fyrir annan fallegan dag.
43. Vita að einhver saknar þín.
44. Fá faðmalag frá einhverjum sem þér þykir mjög vænt um.
45. Vita að þú hafir gert það rétta, sama hvað aðrir segja um þig.

Vonandi hefur þú notið þess að lesa í gegnum þennan lista. Ég veit að ég gerði það og færði mér meira vor í hjarta.

Monday, April 14, 2008

Sigurhelgi...

Halló halló heillandi lesandi :) (önnur augabrún upp)

Mikið rosalega átti ég góða helgi, er enn með bros á vör...

Föstudagur:
Vaknaði snemma og sótti Sigga Þór og Ólöfu og við lögðum af stað til Akureyrar í sigurförina :) Við áttum frábæran akstur. Stoppuðum og fengum okkur að borða, hlustuðum á frábæra tónlist, skiptumst á skemmtilegum sögum og bara nutum þess í botn að vera að ferðast í faaallegu veðri. Ég og Siggi Þór skiptumst á að keyra. Komum á Akureyri og Siggi Þór fór á æfingu fyrir keppnina... Svo skelltum við okkur í sund og svo á Greifan... Kvöldið endaði með hriiikalega fyndnu leikriti þar sem frænka mín Kristín Þóra fór gjöööörsamlega á kostum... ó jiii við öskruðum af hlátri öll þrjú... roosalega var þetta skemmtilegt!

Laugardagur:
Þurftum að mæta á æfingu snemma (segi við... en auðvitað var það bara hann... við vorum jú mikilvægar líka því að við vorum "standa við bakið hópurinn" og hvöttum hann til dáða... ég var svoooo viss um að hann mynd vinna þetta) og vorum á æfingu og rennsli alveg til 4 um daginn.. þá fórum við heim og lögðum okkur örlítið. Fengum okkur að borða og svo bara keppnin... Keppnin var náttlega sérlega skemmtileg og brá mér mikið við það að gítarinn hans var ekki inni... en ég var svoooo stolt af honum að halda bara ótrauður áfram og spila bara með. Sýndi mjög mikið hvað hann er pro og öruggur með það sem hann er að gera. Hann á framtíðina fyrir sér gaurinn! Ég hef miiikla trú á honum... Svo fór þetta eins og maður hafði sagt allan tíman og drengurinn vann. Hann bjóst ekki við þessu, svo að þetta kom honum skemmtilega á óvart. Hann er með fæturnar á jörðinni þó svo að á einni viku hafi hann klárað vel heppnað leikrit (sem aðalleikari), komist inn í leiklistaskólan (sem er nú ekki hlaupið að) og unnið söngkeppni framhaldsskólana!!! Ég er nú hrædd um að ég væri búin að fljúga örlítið upp frá jörðinni en hann stendur stöðugur... vá mér finnst það magnað. Eftir keppnina fórum við bara upp á hótelherbergi að tjilla... mjög notalegt... Svo fór ég heim til mín (ég gisti hjá frænku minni) og ákvað að kíkja aðeins á ballið og hlusta á hljómsveitina Buff. Mikið var það gaman, geggjuð hljómsveit... þeir höfðu það svoo gaman á sviðinu og gerðu allt sitt svo vel. Gaman að heyra loks í Pétri almennilega þar sem hann er kallaður "bakrödd Íslands" ég verð nú aðeins að fá að segja að hann er nú bara muuun meira en bakrödd... hann er fanta söngvari!!! Hinir líka Stebbi og Hannes stóðu sig mjög vel... þétt hljómsveit þarna á ferð! Ég stóð bara aftast og hlustaði... horfði á krakkana dansa og skemmta sér...
Laugardagurinn var í heild sinni alveg frááábær og ég naut hverrar mínútu!!!!!!!

Sunnudagurinn:
Tókum okkur góðan tíma í að vakna og fengum okkur að borða í róleg heitum. Keyrðum svo heim í sæluvímu eftir frábæra helgi á Akrueyri. Þegar heim var komið voru mamma og pabbi búin að grilla sigurgrill. Sæmundur og Vala, Ingvar og Addý mætt á staðin og allir að rifna úr stolti yfir litla kallinum okkar!!! Sigurður Þór Óskarsson er flottastur!!!!

Þetta var bara lítil ferðasaga takk Siggi Þór að vilja hafa stóru systir með og Ólöf, það var frábært að fá að kynnast þér örlítið betur. Takk Krístín Þóra fyrir að leifa mér að sofa heima hjá þér, þú gerðir þessa helgi yndislega og takk fyrir elsku þið sem gerðuð þessa helgi sérstaka!!!

Ykkar Ágú

Monday, April 07, 2008

Siggi Þor Snillingur... mamma afmælisbarn :)

Jæja... Nú er maður að spriiiiinga úr stolti, svo ekki meira verði sagt!!!

Hann Siggi Þór minn er kominn inn í leikaranámið í Listaháskólanum og hananú!!! Verða tvítugur gaurinn og þrumaði sér þarna inn í fyrstu tilraun. Ég hafði þessa trú allan tíman, veit hvað hann hefur að bera og það sem hann hefur að geyma... GLÆSILEGUR!!!

Til hamingju elsku kallinn minn... þú ert snillingur og ég er stolt af þér!!!

Annað... mamma mín á afmæli í dag! Ég elska hana líka rosalega mikið og er ánægð með hana. Besta vinkona mín og besta mamma sem hægt er að hugsa sér. Þú ert frábær mamma mín og ég elska það að það varst ÞÚ sem fæddir mig... :)

Hérna er myndband þar sem Siggi Þór fer á kostum (alveg við hæfi að skella því hérna inn :) ) og kærastan hans hún Ólöf Jara er þarna líka (sem sagt stelpan sem hann syngur með og er skotinn í haha)
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&ba=leita&leit=kr%E6&id=5376

Kær kveðja frá Háaleitisbrautinni...

Hei hei og hó hó (samt ekki mercedes club kveðja)
Ágústa stolta :)

Wednesday, April 02, 2008

1. april

Í gær hringdi Aron Elí í mig frá skrifstofunni í skólanum sínum eftir skóla og bað mig um að sækja sig því hann væri svo haltur. Ég skaust náttlega um leið út í bíl og brunaði niðrí skóla að sækja slasaða drenginn minn. Á móti mér tekur glaður drengur á hjól sem kemur á harðaspani á móti mér og spyr "ertu komin mamma?" og ég segi að sjálfsögðu "já" og þá segir hann sigri hrósandi "FYRSTI APRÍL" váááá ég hef aaaaaaaldrei verið tekin svona!!! Mér fannst þetta fyndið með honum og hló mikið því þetta kom mér svo innilega á óvart!

Í dag fór ég að fá mér bensín. 25 kr af lítranum já takk... það má fara inn í bílinn minn!!! Ég lét fullt af fólki vita í gegnum sms í símanum og kannski komu allir tíkallarnir þannig út á eitt ahhaha veit ekki. Kom á bensínstöðina, var alveg viðbúin því að þurfa að bíða í röð en engin röð var þar og ég renndi bara bílnum að næstu pumpu og setti kortið í, tók svo dæluna, setti hana í gatið og dældi þangað til að bíllinn gubbaði næstum bensíni. Þegar ég kom inn aftur og setti hann í gang þá fór rauða nálin aaaalveg upp og það er sjón sem ég hef ekki séð mjööög lengi! Mér leið bara mjög vel þegar ég keyrði af stað :) Ég er nefnilega sú týpan sem týmir ekki að kaupa sér mikið bensín, dæli yfirleitt ekki fyrir meira en 2000 kall og nálin hreyfist varla. Bróðir minn sagði eitt sinn við mig að hann væri hissa á að bensínljósið mitt væri ekki orðið perulaust því að það væri í raun alltaf logandi :/ EN EKKI NÚNA!!!

Mér finnst þetta frábært átak sem vörubílstjórar og trukkar hafa verið í !!! Hibb hibb húrrey...

Voru þið tekin 1. apríl?

Kv Ágú