Jæja, nú í kvöld urðu tímamót í lífi okkar hjóna! Við erum búin að vera að leita af íbúð í töluverðan tíma núna og ég er ekki með tölu á hversu margar íbúðir við höfum skoðað,en engin hefur komið til greina hingað til!!! En í kvöld kíktum við á tvær íbúðir og þegar við sáum þá fyrri á netinu fyrir um 10 dögum, þá leist okkur ekkert á hana og ætluðum ekki einu sinn að skoða hana (sem er mjög skrítið vegna þess að okkar mottó í þessu öllu saman er að "það kostar ekkert að skoða"). Svo sagði Ingvar við mig í gær "heyrð mig langar til að skoða þessa íbúð" og ég sagði bara allt í lagi. Svo alveg síðan þá hef ég verið með undarlega tilfinningu í maganum um að þetta geti nú bara jafnvel verið íbúðin... svo í kvöld fórum við að skoða hana, og í fyrsta skiptið fékk ég svona tilfinningu "já þetta gæti verið hún" og það sem meira er þá virlaði það líka svona á Ingvar. Þetta er frábært og mér líður svo vel.
Núna erum við að biðja Guð um að Hans vilji verði í þessu og við treystu því að Hann sé með okkur í þessu sem og öllu öðru. Við vorum saman í litlu stofunni okkar í kvöld og vorum að biðja og hlusta á Guð og dróum svo sitthvort spjaldið úr öskju sem við eigum sem heitir "Orð Guðs til þín" og við dróum þetta:
"Þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann oss." 1.Jóh.5.14.
"Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni, þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það, sem hjarta þitt girnist." Sálm.37.3-4.
Sem sagt, við ætlum að gera tilboð í íbúðina á morgun og leggjum það í Guðs hendi og hvílum í honum og treystum því að ef við eigum að fá þessa íbúð þá fáum við hana á því verði sem við viljum borga fyrir hana... Þvílík forréttindi að þurfa ekki að hafa áhyggjur og verða hugsjúkur um hlutina, því að ég veit að Jesús vill bara það besta fyrir mig og pældu í því að hann vill veita mér það sem hjartað mitt girnist ef ég treysti honum! Hann er frábær og ég elska hann.
Jæja þetta er orðið nóg í dag (nei ég meina í nótt) og ég ætla að fara að sofa, ég bara gat ekki beðið með að skrifa þetta og auk þess er mesti friðurinn á nóttunni, þegar krakkarnir mínir sofa!
Guð blessi ykkur og ég læt ykkur vita þegar ég veit meira!!!