
Komið þið sæl og blessuð...
Þetta eru fallegu og saklausu börnin mín! Aron Elí 7 ára og Árnheiður Ósk 2.5 árs. Mér finnst svo notalegt og gott að vita að þau séu bara börn og séu saklaus... því rak mér í rogastans (segir maður það???)við upphringingu sem ég fékk um daginn. Í símanum var Elli pabbi hans Arons Elís og var með upplýsingar fyrir mig sem ég vildi að ég hefði ekki þurft að fá (ég er samt ánægð með að hafa fengið þær, en ég vildi að svona þurfi ekki að gerast!!!!!!!!!!) Ég minni á að þetta er ekki færsla fyrir viðkvæma og orðbragðið verður ekki með snyrtilegu móti.
Það er sem sagt drengur í bekknum hans Arons Elís sem var að fræð Aron Elí (saklausa barnið mitt) og annan um alls konar... m.a. tott og homma!!!!! Þessi strákur sagði þeim hvað væri að totta (ég minni á að þetta er bekjarbróðir hans) og sjálfur sagðist hann vera hommi og ætti kærasta og eftir skóla ætluðu þeir að fara að totta hvern annan!!!!!!!!!! JÁ FÁIÐ SJOKK!!!! ÉG FÉKK ÞAÐ!!! Ekki nóg með það en hann sagði Aroni Elí að segja JÁ og Aron Elí gerði það og þá sagði strákurinn "núna átt þú að totta mig" og Aron Elí neitaði en þá sagði strákurinn við hann að hann hafi sagt já og hann YRÐI að gera það. En Aron Elí var með skynsemi og setti puttana í eyrun og labbaði í burtu... SEM BETUR FER. Elli fékk að heyra þetta um seinustu pabbahelgi og sagði mér sem sagt frá þessu... úffffff
Nú var málið að við Ingvar tækju son okkar 7 ÁRA í kynlífsfræðslu!!!!!!!!! Við settumst niður með barninu okkar og sögðum honum frá því að við vissum um þetta og hvort hann vildi tala um þetta og hann opnaði sig upp á gátt... Hann talaði og talaði og spurði og spurði t.d. -þarf maður að RÍÐA til að eignast börn!!!!!- (er það nú subbulega orðað, en svona orðar þessi strákur hlutina!) og ég sagði "já maður þarf að stunda kynlíf til þess" og þá sagði hann "þarf ég að gera það þegar ég verð 12 ára???" (þá ætlaði þessi strákur að totta fram að 12 ára aldri og fara þá að ríða!!!) Aron Elí var frekar stressaður og sagðis ekkert kunna þetta (ÞAÐ ER KANNSKI EKKI SKRÍTIÐ ENDA BARA 7 OG ÉG ENDURTEK 7 ÁRA, pælið í hvað er verið að leggja á börn... hann er komin með kynlífsáhyggjur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég meina það!) Við sögðum honum að 12 ára væri allt of ungt og hann þyrfti ekkert að hafa áhyggjur af þessu. Kynlíf væri bara fyrir fullorðna en ekki börn og unglinga. Hann færi ekki að stunda kynlíf fyrir en hann væri búin að eignast konuna sem Guð ætli að gefa honum og þá yrði það allt gott. En eins og er er það ekkert fyrir hann að hafa áhyggjur af. Og svo komum við aðeins inn á kynferðislegt ofbeldi (fyrst við vorum á þessum nótum) og sögðum honum að það mætti ENGINN ENGINN snerta á honum typpið eða knúsa hann nema hann vildi sjálfur. Hann væri orðinn nógu stór til þess að þvo sér sjálfur, klæða sig sjálfur og þurka, hann þyrfti enga hjálp og svo sagði ég honum að ef einhverntíman hann lenti í þannig aðstæðum að einhver vildi að hann gerði eitthvað sem hann vildi ekki og hann væri búinn að segja nei en viðkomandi hlustaði ekki, þá ætti hann bara að sparka í manninn og forða sér út!
Svo báðum við saman og hann bað sérstaklega fyrir þessum strák (án þess að við stungum upp á því, hann fann það bara að hann þyrfti á fyrirbæn að halda, gott hjá honum og gott hjá Guði að hjálpa honum og láta Aron Elí vita að það væri ekki allt eðlilegt í kringum þennan strák).
Ég ætla að láta þetta gott heitið í dag. Vonandi misbauð ykkur ekki við þessa lesningu en ég hvet ykkur til að spjalla við börnin ykkar áður en einhver annar gerir það!!!!
Love you ... Ykkar Ágústa Ósk