Thursday, March 13, 2008

Læst WC eður ei???

Hi...

Ég er í Danmörku núna og það er alveg frábært... Er á fullu í skólanum og það eru svo mikil forréttindi fyrir mig að hafa fengið að kynnast CVI og öllu því sem kemur þessu við... I'm so happy!!!

Jiiii í gær var mjög sérstakt sem ég lenti í... Við vorum að halda tónleika og það sem var svona sérstakt við það var að þeir voru haldnir á stað sem kallast Operaen og sá staður var í Christianiu! Já já mín er orðin veraldarvön með meiru.... en í alvöru talað það var mjög sérstök lífsreynsla sem ég varð fyrir... Andrúmsloftið þegar maður gekk um göturnar var mjög rólegt en samt á einhvern hátt þrúgandi, lyktin var angan af hassi og á hverju götuhorni voru karlar að kynda, með eld í stórri tunnu og var lyktin af því líka einkennandi. Ég var að fíla þetta (ekki svo að skilja að ég var að fíla hassið og allt það, heldur bara fólkið fannst mér bara mjög vinsamlegt og þessi götustemning fannst mér heillandi, allt í svona sérkennilegum básum og svoleiðis) og fann ekki til ógnunar á nokkurn hátt en sumir í hópnum voru bara hreinlega hræddir að ganga þarna í gegn. Þegar við gengum upp tröppurnar til að komast inn á staðin þar sem við áttum að syngja voru tvær stúlkur að rúlla sér jaaah líklega heitir það jónu, það var spes og mjög sorglegt. Það voru geðveikir tónleikarnir, ég blúsaði af mér rassinn (svo að nú er ekkert sem heitir rass á mér hahaha iiii jú það er víst nóg af honum enn ;) ) oooooh það var svo gaman!!!! Svo kemur það skrítnasta við þetta allt saman... ég þurfti að pissa, kannski ekkert skrítið í sjálfu sér, en baðherbergið á Óperunni í Kristjaníu var ekki læst og það voru ekki almennilegar hurðar, það var bara svona kúreka-hlerar... Sást á milli hleranna og meðfram og allt... mjööööööög sérstakt, en ég var í spreng svo að ég þurfti bara að let it go... það kom enginn á meðan, svo að það var gott, já og það var ekkert merkt karlar og konur... jebb sem sagt allt verulega frjálslegt í Kristjaníu!

Já ég segi meir bráðum... en ég kann enn betur að meta það að geta læst að mér þegar ég fer á klósettið, því að ég náði engan veginn þessari "ahhhh hvað þetta var gott" tilfinningu, sem maður fær stundum þegar maður er í spreng og kemst loks á klósett, þetta var meira svona "fljót, fljót, fljót buna... drííífa siiiig"

Ok komið nóg af klósettumræðu...

Síja sún...

Hi hi

Ágú

Tuesday, March 04, 2008

Nokkrar tilnefningar...

Gúdden tag...

Ég ákvað að hafa nokkra daga á milli blogga vegna háðs í síðustu færslu frá kommentfriend... Ég veit ég dett alveg inn í þennan lúðagýr í sambandi við bloggið og svo sjáið þið ekkert í marga annaðhvort daga, vikur eða mánuði.
Ég ætla að krýna nokkra í dag...

Afrek dagsins í dag:
- Án efa Dagný svilkonan mín sem eignaðist tvíburastelpur í dag!!! TIL HAMINGJU ELSKU ELSKU DAGNÝ OG ARNAR... Þá eiga þau BAAARA 5 stykki af börnum og öfunda ég þau tæplega, en ég samgleðst þeim bara enn meira! Hlakka til að fá að hitta skvísurnar, bíst við að þegar þær vaxa úr grasi fái ein rautt hár eins og Dagný og hin ljóst hár eins og Addý... nú á ég þetta skjalfast! Ég er mjög stolt af henni... Hetjan mín...

Hrós dagsins:
-Fá án efa gæjarnir í fiskibúðinni... rosalega voru þeir nettir á því!!! Hressir og hjálplegir,,, töluðu um að allir dagar þeirra væru föstudagar... þeir fengu aldgjörlega að heyra það frá mér að ég kynni að meta það að ganga inn í fiskibúð og fá svona móttökur... Addý sagði þegar hún kom út í bíl "þetta voru góðir og flottir gaurar" hahaha

Óréttlæti dagsins:
-Án efa hefur Herkúles (kisinn minn) verið beittur mesta óréttlætinu í dag... Hann var að leika með dótamús og naut þess í botn, svo missti hann hana frá sér og þá kemur Dísabella (hinn kisinn minn og kærastan hans) og tekur músina og þegar aumingja Herkúles ætlar að fá hana aftur þá urraði mín bara á kallinn og hann lagðist niður í uppgjafarstellingu... "bbbara svona að láta þig vita það elskan mín að þú mátt bara alveg vera með músina... já bara eins lengi og þú vilt"

Útpælari dagsins:
-Án efa Kjartan Ísak (sonur bróður míns) honum var sem sagt keyrt í skólan í morgun sem er í Hafnafirði og Sæmi býr í Hvassaleiti og kl 10:30 var hringt heim úr skólanum og Kjartan Ísak orðinn veikur... Þeir fara í bakaríið á leiðinni heim og strákurinn svoooona líka hress eftir það! Já já saknaði bara pabba og langaði heim (pabbi hans er að fara til útlanda í 2 vikur og hann ætlaði bara að nota allan þann tíma sem honum gæti gefist)

Jamm fleiri verða tilnefningarnar ekki í dag... en kannski fleiri seinna!

Takk fyrir mig...

Sunday, March 02, 2008

Fallegur dagur...

jamm jamm... góður laugardagur búinn.... þetta var svona stelpu stelpu dagur!

Yndislegt veður einkenndi þennan frábæra dag. Addý kom með mér á Gospel æfingu og var svoooo góð... yndisleg.
Fórum í sund og we went CRAZY í rennibrautinni, fjör, það var 4 stiga hiti og ekkert kalt. Fengum okkur svo ís og fórum svo í mat til mömmu og pabba... notalegt. Svo gisti hún hjá mínum frábæru foreldrum (veit nú ekki hvað ég gerði án þeirra, í alvöru) og ég fór að syngja.... Abba prógram með tveim örðum... svaaaka stuð. Þetta var sem sagt á kvennakvöldi og það var geeeðveikt stuð á kellunum.

HEY VÁ MAÐUR... Ekkert smá skrítið... ég var á leiðinni á æfingu og var að keyra niður brekkuna í Nóatúni og það voru 6 bílar í röð á rauðu ljósi og PÆLIÐI Í ÞVÍ... 5 af þessum 6 bílstjórum voru að bora í nefið!!!! Ég meina það, ég hélt að ég væri farin að sjá ofsjónir!!! En neinei, þeir voru allir með fingurinn á kafii!!! fjúff. hahahah svolítið skondið verð ég að segja.

Ég ætla að fara að sofa... er nefnilega með ónýta mynd frá videoleigunni... ég fór sem sagt í gær og tók ÞVÍLÍKA stelpumynd af því að Ingvar er í London og ætlaði að horfa á hana en þá kom bara "this disc is dirty" svo að ég skilaði henni í dag og fékk aðra sem er líka dirty!!! oooohhh svoooo pirrandi... en ég læt það ekkert á mig fá og lít bara á björtu hliðina og segi bara "jæja ég verð alla vegana ekki þreytt á morgun vegna videogláps"

Góða nótt og dreymi ykkur vel...

Ykkar Ágú-págú