Hitt og þetta...
Hæhæhæ...
Langar að láta ykkur vita að miðasala er hafin til þess að koma á tónleika með Gospelkór Reykjavíkur og Sálinni hans Jóns míns sem verða þann 15. sept í Laugardalshöll! Þetta verða vægast sagt frábærir tónleikar með hugljúfum smellum frá Sálinni... Þið getið nálgast miða hér... http://www.midi.is/default.aspx?pageID=10&eventID=4508&uID=48
Svo er líka annað sem mig langar að minnast á og það er hann Magni sem er í rockstar þættinum... það er mega ódýrt að kjósa hann næst þegar það verður kosning (bara 19 kr smsið... flott átak hjá símafyrirtækjum Íslands ;) ) og legg ég til að við hendum öll 5 stykkjum á kallinn það er ekki nema tæpar 100 kr. Mér finnst hann búinn að standa sig rosalega vel og hefur komið mér ROSALEGA á óvart. Ekki vissi ég að drengurinn gæti sungið svona og líka karakterinn sem er að koma svona ágætlega út... ég er bara stolt af þessum strák ;)
Ég sjálf er að fara í Háskólan í næstu viku og veit ég nú ekki alveg hvernig það leggst í mig, veit í raun ekkert hvað ég er að fara út í :S En það kemur bara allt í ljós, ég geri mitt besta og svo verðum við bara að sjá.
Fer í söngskólan líka og það er eitthvað sem mig hlakkar svakalega til, rosalega hlakka ég til þess að fara að takast á við lögin mín og hitta snillinginn Kristjönu Stefáns kennaran minn og stúdera með henni... snilld!!!!
Ég er að skoða sjálfa mig mjög mikið þessa dagana og ekki er það það léttasta sem ég hef gert... ó nei. Ég er að skoða mig og hver ég er. Hver er ég ég ég? Og þá er ég ekki að spyrja hver er ég sem söngkona, móðir, dóttir, eiginkona eða svoleiðis heldur hver er ég í Guði.. ææææ kann ekki alveg að útskýra. Sko það hefur margt mótað mig en hver er ég áður en allt mótaði mig? Hvernig er mitt sjálfsmat, hvernig met ég mig? Jæja, ég get ekki alveg útskýrt það enda er ég frekar ringluð sjálf. Langar að gera gott, langar að vera á réttum stað, langar að uppfylla þarfir fólksins míns en hvernig er best að gera það???? Heyrðu, heyrumst síðar maður!!!
Bæbæ
Ágústa Ósk
